Stuttbuxur skekja skákheiminn

Heimsmeistarinn Magnús Carlsen rakst harkalega á vegg þegar hann mætti kínverska stórmeistaranum Bu Xiangzhi í þriðju umferð. Sá kínverski, sem er fyrrverandi undrabarn og var um tíma yngsti stórmeistari heims, kom heimsmeistaranum á óvart þegar hann fórnaði manni strax með svörtu í 15. leik. Magnús gafst upp eftir 37 leiki. (Mynd: Maria Emelianova/Chess.com)

Annað hvert ár fer fram Heimsbikarmótið í skák. Á mótinu sem er nýlokið tefldu 128 skákmenn með útsláttarfyrirkomulagi. Mótið er ægisterkt, en meðal keppenda á mótinu voru 15 stigahæstu skákmenn heims. Meira að segja heimsmeistarinn Magnús Carlsen tók þátt.

Íslendingar áttu keppanda á mótinu. Jóhann Hjartarson ávann sér keppnisrétt þegar hann sigraði á Norðurlandamótinu í skák í Växjö í Svíþjóð í sumar. Hann er fyrsti Íslendingurinn sem teflir á þessu móti í 17 ár, en Hannes Hlífar Stefánsson tefldi á mótinu árið 2000.

Þátttaka Jóhanns var athyglisverð. Hann er ekki atvinnuskákmaður, enda í fullri vinnu hjá Íslenskri erfðagreiningu. Árið 2015 hóf Jóhann aftur taflmennsku eftir langt hlé og varð Íslandsmeistari í fyrra þegar mótið var haldið á Seltjarnarnesi. Lengi lifir í gömlum glæðum, en það má nefna að Jóhann var elstur hinna 128 keppenda þrátt fyrir að vera aðeins 54 ára. Segir það mikið um hversu ungir sterkustu skákmenn heims eru í dag. Sá eini á topp 100 yfir fimmtugu er Nigel Short.

Tefldar voru tvær skákir með hefðbundnum umhugsunartíma – ein skák á dag. Ef jafnt var, 1-1, var teflt til þrautar með styttri umhugsunartíma á þriðja degi þar úrslit fengust. Eins konar framlenging og vítaspyrnukeppni skákarinnar. Andstæðingur hans var tékkneski ofurstórmeistarinn David Navara. Sá er fæddur árið 1985, sama ár og Jóhann varð stórmeistari. Jóhann náði sér ekki á strik gegn Tékkanum sterka og tapaði báðum skákunum.

Heimsmeistarinn féll úr leik

Þátttaka Magnúsar Carlsen, sem kemur frá Noregi, vakti óneitanlega mikla athygli. Á Heimsbikarmótinu veita tvö efstu sætin þátttökurétt á áskorendamótinu á næsta ári. Þar keppa átta skákmenn um réttinn til að tefla heimsmeistaraeinvígi við Norðmanninn. Þátttaka Magnúsar þýddi það að þriðja sætið gat gefið keppnisrétt, þar sem hann getur ekki skorað á sjálfan sig.

Magnús byrjaði vel og vann andstæðinga sína í 1. og 2. umferð fremur örugglega 2-0. Í þriðju umferð rakst hann harkalega á vegg þegar hann mætti kínverska stórmeistaranum Bu Xiangzhi. Sá kínverski, sem er fyrrverandi undrabarn og var um tíma yngsti stórmeistari heims, kom Magnúsi á óvart þegar hann fórnaði manni strax með svörtu í 15. leik.

15…Bxh3! 16. gxh3 Dxh3

Hér gat Norðmaðurinn sett öryggið á oddinn og leikið 17. Df3. Bu á þá ekkert betra en að þráskáka með 17…Bh2+ og 18…Bg3+.

Magnús tefldi hins vegar til vinnings með 17. Rf1 en eftir 17…He8 18. d4 f5 var hann undir mikilli pressu.

Kínverjinn tefldi óaðfinnanlega og eftir 36. leik Magnúsar kom þessi staða upp. Kínverjinn fann skemmtilega leið til að gera út um taflið. 36…Hg1+! Magnús gafst upp. Eftir 37. Rxg1 h2 er ekki hægt að hindra að svartur veki upp drottningu.

Heimsmeistarinn náði ekki að jafna metin í seinni skákinni og féll því úr leik. Fleiri sterkir skákmenn féllu úr leik í sömu umferð og má þar nefna Nakamura, Kramnik og Caruana. Mótinu lauk 27. september en þegar þetta var ritað lágu endanleg úrslit ekki fyrir.

Stóra stuttbuxnamálið

Tap heimsmeistarans var samt ekki það sem stal senunni í skákfjölmiðlum í þriðju umferðinni heldur voru stuttbuxur eins keppandans einnig í sviðsljósinu.

Rússneskættaði Kanadamaðurinn Anton Kovalyov hafði byrjað frábærlega á mótinu. Hann vann fyrrverandi heimsmeistarann Vishy Anand í annarri umferð. Eftir sigurinn á Indverjanum vöktu ummæli Kanadamannsins í viðtali við vefsíðu mótsins nokkra athygli. Þar talaði hann um að hann væri kominn lengra en hann ætti von á – og það hentaði honum afar illa í námi sínu.

Meðal annars gagnrýndi Emil Sutovsky, formaður Félags atvinnuskákmanna, það að menn sem ekki hefðu löngun til að komast áfram væru að taka sæti af sterkum atvinnuskákmönnum.

Kovalyov hafði mætt til leiks til Tíblisi með einn lítinn bakpoka og í honum voru engar buxur – aðeins skrautlegar stuttbuxur. Þær reyndust miklar happabuxur í fyrstu umferðunum tveimur. Þegar hann mætti til leiks í þriðju umferð gegn ísraelska stórmeistarann Rodshtein gerði yfirdómarinn hins vegar athugasemdir við klæðnað Kovalyov, sem samræmdist ekki kröfum mótsins um snyrtilegan klæðnað.

Kanadamaðurinn benti á að hann hefði þegar teflt í þessum buxum í umferðum 1 og 2 og einnig á síðasta Heimsbikarmóti. Í framhaldinu gerði Kovalyov athugasemdir við að hann hefði svart í fyrstu skákinni, en hann taldi sig hafa hvítt. Kanadamaðurinn hafði þar rangt fyrir sér, en óvenjulegt er að sterkir skákmenn hafi ekki litinn á hreinu fyrir skákir.

Zurab Azmaiparashvili, forseti Skáksambands Evrópu, á orðastað við Anton Kovalyov vegna klæðaburðar þess síðarnefnda á Heimsbikarmótinu í skák. Kovalyov hafði mætt til leiks í stuttubuxum við litla kátínu dómara á mótinu. (Mynd: Maria Emelianova/Chess.com)

Á meðan yfirdómarinn skoðaði málið mætti Georgíumaðurinn Zurab Azmaiparashvili, aðalskipuleggjandi mótsins, til leiks og sagði Kovalyov að skipta um föt. Áttu þeir orðaskipti og var greinilegt að Azmaiparashvili var ekki kátur.

Kovalyov hélt úr skáksalnum. Í stað þess að fara upp á hótelherbergi og skipta um föt og mæta aftur í skákina virðist sem hann hafi pantað sér flug til heim til Kanada. Nokkru síðar sást hann úti við á leiðinni í leigubíl. Í framhaldinu sendi hann frá sér yfirlýsingu á Facebook þar sem hann bar því við að eiga ekki síðbuxur sem pössuðu sér – þar sem hann hefði fitnað. Bar hann skipuleggjanda mótsins þungum sökum fyrir dónaskap, hann hefði öskrað á sig og meðal annars kallað sig sígauna.

Í stað þess að fara upp á hótelherbergi og skipta um föt og mæta aftur í skákina pantaði Kovalyov sér flug til heim til Kanada. Nokkru síðar sást hann úti við á leiðinni í leigubíl. (Mynd: Maria Emelianova/Chess.com)

Azmaiparashvili er mjög umdeildur maður. Eftir að hann tók við forsetaembætti Skáksambands Evrópu hefur það dafnað, vaxið og styrkst. Azmaiparashvili er hins vegar langt því frá allra og er skapmaður mikill og segir stundum hluti sem eru betur ósagðir. Í yfirlýsingu hans í framhaldinu sagðist hann hafa notað orðið sígauni í þeirri merkingu að Kovalyov ætti ekki að vera klæddur eins og heimilislaus maður.

Alls konar eftirmál hafa orðið af málinu og meðal annars stóð áðurnefndur Sutovsky, formaður Félags atvinnuskákmanna, fyrir undirskriftasöfnun til stuðnings Kovalyov, sem hann hafði gagnrýnt skömmu áður fyrir að taka þátt í mótinu – þrátt fyrir tímaskort. Það er ekki bara hart barist á reitunum 64.

Höfundur er forseti Skáksambands Íslands.

—-

Greinin birtist í hausthefti Þjóðmála, 3. tbl. 2017. Hægt er að gerast áskrifandi að Þjóðmálum með því að senda tölvupóst á askrift@thjodmal.is eða skilaboð á facebook síðu ritsins. Ritið færst einnig í lausasölu í verslunum Pennans/Eymundsson.