GAMMA Reykjavíkurskákmótið

Aðstaðan í Hörpu er til fyrirmyndar.

GAMMA Reykjavíkurskákmótið 2019 fór fram í Hörpu dagana 8.-16. apríl. Mótið var að þessu sinni tileinkað minningu Stefáns Kristjánssonar stórmeistara, sem lést langt fyrir aldur fram í fyrra.

Sérstakur heiðursgestur mótsins var nýr forseti FIDE, hinn rússneski Arkady Dvorkovich. Sá var um tíma aðstoðarforsætisráðherra Rússlands og var formaður undirbúningsnefndar um HM í fótbolta í Rússlandi í 2020, mót sem þótti takast frábærlega. Möguleikinn á að halda heimsmeistaraeinvígið 2022 í Hörpu var ræddur.

Reykjavíkurskákmótið er tileinkað minningu Stefáns Kristjánssonar.

Jafnframt kom til landsins Smbat Lputian, æðsti stjórnandi armenska skákskólans og formaður nefndar FIDE um skák í skólum.

Armenar hafa ávallt vakið mikla athygli fyrir afar sterkt skáklandslið miðað við mannfjölda. Þeir eru þrefaldir ólympíumeistarar. Lputian hefur áhuga á að hjálpa til við uppbyggingu skákkennslu á Íslandi og mun að öllum líkindum hitta Lilju Dögg Alfreðsdóttur menntamálaráðherra og kynna henni hugmyndir sínar. Mikill metnaður er innan skákhreyfingarinnar til að gefa verulega í varðandi æskulýðsstarf og skákkennslu í skólum. Byggja þarf landslið framtíðar og rannsóknir hafa sýnt að skák hefur mörg jákvæð áhrif á námsárangur krakka. Í sumum skólum hefur verið reynt að minnka snjalltækjanotkun í skólum og þar getur skákin komið sterk inn.

Skákframtíðin er björt!

Skáksamband Íslands hleypti nýlega af stokkunum verkefni sem ber nafnið Skákframtíðin. Markmiðið er að hlúa að ungu afreksfólki í skák og byggja upp framtíðarlandslið Íslands. Stofnaðir voru úrvalsflokkar, 9-12 ára og 13-16 ára, sem hvor um sig verður skipaður 6-10 þátttakendum.

Sjóður til minningar um Sigtrygg glímukappa styður myndarlega við verkefnið

Reglulega verður nýjum áhugasömum ungmennum boðin þátttaka í Skákframtíðinni. Styrktarsjóður Sigtryggs Sigurðssonar glímukappa styður afar myndarlega við verkefnið.

Þátttakendur munu njóta sérstakrar handleiðslu af hálfu íslenskra og erlendra þjálfara. Þjálfunin innanlands verður í umsjón Björns Ívars Karlssonar, þjálfara kvennalandsliðsins og FIDE-meistara, og kennara Skákskóla Íslands undir umsjón Helga Ólafssonar, stórmeistara, landsliðsþjálfara og skólastjóra Skákskólans.

Úkraínsku stórmeistararnir Oleksandr Sulypa og Adrian Mikhalchishin munu koma til landsins og þjálfa 3-4 sinnum á ári, en báðir eru þrautreyndir þjálfarar. Sá fyrrnefndi er landsliðsþjálfari Úkraínu, eins sterkasta landsliðs heims, og sá síðarnefndi hefur verið yfirþjálfari FIDE um árabil, en auk þess að gegna stöðu landsliðsþjálfara kvennaliðs Tyrklands hefur hann ritað fjölmargar skákbækur.

Skákframtíðin byggir á svipuðu verkefni frá Póllandi sem Sulypa og Mikhalchishin komu einmitt að. Það skilaði miklum árangri því Pólverjar voru nálægt því að fagna sigri á síðasta Ólympíuskákmóti!

Sulypa kom til landsins í febrúar og kynntist þar flestum þátttakendum þessa metnaðarfulla verkefnis. Óhætt er að segja að það hafi gengið vel. Í framhaldinu hafa þeir félagar lagt fyrir verkefni og verið með kennslu á Skype.

GAMMA Reykjavíkurskákmótið

Þegar þetta er ritað eru um 230 keppendur frá 37 löndum skráðir til leiks á Reykjavíkurskákmótið og þar af um 27 stórmeistarar. Þeirra stigahæstur er enski stórmeistarinn Gawain Jones. Tveir fyrrverandi sigurvegarar eru meðal keppenda; Abhijeet Gupta, Indlandi, og Erwin L´ami, Hollandi.

Gupta og Tania eru fastagestir á Reykjavíkurskákmótinu.

Heimsmeistarinn í flokki 20 ára og yngri, Parham Maghsoodloo, mætir til leiks, en sá þykir eitt mesta efni í heiminum. Landi hans, Alireza Firouzja, er líka nafn sem rétt væri að leggja á minnið. Sá er aðeins 16 ára og er að mati Ivans Sokolov, þjálfara Írans, líklegt heimsmeistaraefni.

Indverska undrabarnið Dommaraju Gukesh teflir í fyrsta skipti á Reykjavíkurskákmóti. Í janúar síðastliðnum varð hann næstyngsti stórmeistari sögunnar, 12 ára, 7 mánaða og 17 daga. Aðeins Sergey Karjakin varð stórmeistari yngri.

Kvennahersveitin er sterk nú sem endranær. Má þar nefna hina indversku Tönju Sachdev, sem er tíður gestur hérlendis. Dinara Saduakassova frá Kasakstan er þrefaldur heimsmeistari stúlkna í yngri flokkum. Reykjavíkurskákmótið nú rekst á EM kvenna í skák og bandaríska meistaramótið þannig að sterkar skákkonur frá Bandaríkjunum og Evrópu hafa stundum verið fjölmennari en núna.

GAMMA Reykjavíkurskákmótið er miklu meira en skákmót. Þar eru alls konar hliðarviðburðir. Má þar nefna Fischerslembiskákmót. Slembiskák virkar þannig að peðunum er raðað upp á hefðbundinn hátt. Mönnunum á bak við þau er hins vegar raðað upp á tilviljanakenndan hátt. Alls eru 960 mögulegar upphafsstöður. Margir telja að vegur slembiskákarinnar muni aukast mjög á komandi árum.

Mikilvægi Reykjavíkurskákmótsins

Dvorkovich var formaður mótsnefndar HM í fótbolta 2020.

Reykjavíkurskákmótið er afar mikilvægt fyrir íslenskt skáklíf og hefur verið flaggskip þess síðan framsýnir menn héldu fyrsta Reykjavíkurskákmótið í Lídó árið 1964. Mótið er afar vinsælt og hátt skrifað úti í hinum stóra heimi og hefur síðustu ár lent í 2.-4. sæti á lista yfir bestu opnu skákmót heims í vali atvinnuskákmanna.

Reykjavíkurskákmótið er yfirleitt fyrsta alþjóðlega mótið sem ungir íslenskir skákmenn taka þátt í. Fyrir um áramót var mótið opnað fyrir öllum og var það mikið gæfuspor – ekki síst fyrir íslenska skákæsku.

Höfundur er forseti Skáksambands Íslands.

Greinin birtist í vorhefti Þjóðmála, 1. tbl. 2019. Hægt er að gerast áskrifandi að Þjóðmálum með því að senda tölvupóst á askrift@thjodmal.is eða skilaboð á facebook síðu ritsins. Ritið færst einnig í lausasölu í verslunum Pennans/Eymundsson.