Guðlaugur Þór: Þráhyggjukennd nálgun gagnvart ESB

Guðlaugur Þór Þórðarson (Mynd: HAG)

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra hefur allt frá því að hann var í forystu í ungliðahreyfingu Sjálfstæðisflokksins verið andstæðingur þess að Ísland gengi í ESB. Það vakti hins vegar athygli í umræðu um þriðja orkupakkann fyrr á þessu ári að Guðlaugur Þór og aðrir forystumenn Sjálfstæðisflokksins voru sakaðir um undirlægjuhátt og eftirgjöf gagnvart Evrópusambandinu, Evrópusambandsdaður eins og það var að orðað. Guðlaugur Þór er í ítarlegu viðtali í nýjasta hefti Þjóðmála og þar er hann meðal annars spurður út í þessa umræðu og í framhaldinu um stöðu ESB eins og hún horfir við honum í dag.

„Þegar menn saka mig um ESB-daður eða kalla mig Evrópusambandssinna, þá eru menn í raun orðnir rökþrota,“ segir Guðlaugur Þór og hlær við.

„Það eru hins vegar ýmsar blikur á lofti þegar horft er til stöðu ESB. Það sem mér hefur fundist vanta er að menn líti á stóru myndina og þá sérstaklega í sambandi við Brexit. Bretar taka, í lýðræðislegum kosningum, ákvörðun um að fara úr ESB. Menn geta haft ýmsar skoðanir á niðurstöðu þeirra kosninga, en þetta er engu að síður ákvörðun sem þeir taka og hana ber að virða. Bretar eru aftur á móti ekki að fara neitt, þeir eru ekki að fara að flytja Bretlandseyjar í Kyrrahafið og verða því alltaf hluti af Evrópu.“

Guðlaugur Þór bætir því við að það sé vont fyrir alla ef niðurstaðan verður sú að viðskiptahindranir verði á milli Bretlands og ríkjanna innan ESB og á EES-svæðinu.

„Það mun koma niður á öllum hagkerfum. Það verða engir sigurvegarar í tollastríði en mögulega er hægt að deila um hver tapar mest á þannig ástandi,“ segir Guðlaugur Þór.

„Það er ekki mikið sem Ísland getur gert í þessu máli annað en að gæta ítrustu hagsmuna okkar – og það höfum við gert. Mér er til efs að samskipti Íslands og Bretlands hafi verið jafn náin í mjög langan tíma. Það er mikil samstaða á milli þjóðanna um að þegar Bretar fara út getum við samið um framtíðarfyrirkomulag á viðskiptum okkar. Við ætlum áfram að eiga náin og góð samskipti og viðskipti við Breta. Í víðara samhengi er mikilvægt að hafa í huga að Evrópa og Evrópusambandið eru ekki einn og sami hluturinn. Sum lönd í Evrópu eru í ESB en önnur ekki, sum eru í EES en önnur ekki, það sama gildir um NATO, Schengen-samstarfið, EFTA, evrusamstarfið og þannig mætti áfram telja. Þetta er lagskipt samstarf og það er allt í lagi. Það er vanmetið vandamál, þessi ofsalega mikla harka eða einurð þeirra sem vilja sjá eitt sambandsríki í Evrópu, að það sé bara eina lausnin og að það sé óeðlileg staða að vilja eiga góð samskipti án þess að vera hluti af sambandsríki. Ég held að menn hafi í of langan tíma lagt of mikla áherslu á þetta samrunaferli.“

Er hugmyndin um aukinn Evrópusamruna mögulega gjaldþrota eða dottin upp fyrir sig?

„Mér hefur að vísu aldrei fundist sú hugmynd raunhæf og ég er búinn að fylgjast með þessum málum í yfir 30 ár. Ég hef ekki tölu á því hversu marga fundi ég hef átt um þetta mál, fyrst sem fulltrúi í ungliðahreyfingu, síðar á vettvangi EFTA og nú á þessum vettvangi,“ segir Guðlaugur Þór.

„Þetta er þráhyggjukennd nálgun. Alltaf þegar menn lenda á vegg í þessu ferli, sem menn hafa gert ítrekað, virðist eini lærdómurinn vera sá að menn ætli sér að fara í enn meiri samruna. Hætta er sú að á einhverjum tímapunkti endi þetta í öngþveiti í stað þess að menn horfist í augu við raunveruleikann. Það er mikilvægt að eiga gott samstarf í Evrópu; ríkin og löndin eru mismunandi og það er ekkert að því. Þvert á móti gerir það þessa heimsálfu bæði fjölbreyttari og skemmtilegri. Á sama tíma er þó mikilvægt að það sé opið fyrir viðskipti, ekki bara innan Evrópu heldur líka fyrir utan Evrópu.“

 

Nánar er rætt við Guðlaug Þór í ítarlegu viðtali í nýjasta hefti Þjóðmála. Þar fer Guðlaugur Þór yfir helstu þætti í utanríkismálum landsins, samstarfið á norðurslóðum, samskiptin við Bandaríkin og Rússland, veru Íslands í Mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna og loks Evrópusamstarfið, sem er iðulega í umræðunni hér á landi. Einnig er rætt um stöðu Sjálfstæðisflokksins í núverandi ríkisstjórnarsamstarfi.

Viðtalið birtist í hausthefti Þjóðmála, 3. tbl. 2019. Hægt er að gerast áskrifandi að Þjóðmálum með því að senda tölvupóst á askrift@thjodmal.is eða skilaboð á facebook síðu ritsins. Ritið færst einnig í lausasölu í verslunum Pennans/Eymundsson.