Leit

Search in 
Áskriftartilboð


Panta i vefverslun.


Frábært áskriftartilboð á tímaritinu Þjóðmálum.

Nýir áskrifendur fá í kaupbæti bókina Þjóð í hafti eftir ritstjóra og útgefanda Þjóðmála, Jakob F. Ásgeirsson. Þar er rakin saga haftaáranna (1930-1860) á einstaklega læsilegan hátt. Bókin er nýkomin út í kilju eftir að hafa verið ófáanleg í aldarfjórðung. Leiðb. verð: 1.980 kr.

Nýjasta hefti Þjóðmála, 1. hefti ársins 2010, hefur strax vakið mikla athygli, sbr. ritstjórnargrein í Morgunblaðinu daginn eftir útkomu ritsins, fimmtudaginn 18. mars 2010. Þar segir meðal annars:

ÁHUGAVERÐ ÞJÓÐMÁL

Miklar umbyltingar eru í fjölmiðlun og er netvæðing mestur örlagavaldur í augnablikinu. Prentmiðlar hafa um allan heim fengið að kenna á þeirri þróun. /... /

Í öllu umrótinu hafa tímarit einnig lent í nokkurri tilvistarkreppu. En þau hafa einnig náð að laga sig að breyttum tímum með skarpari áherslum og grípandi efnismeðferð. Mætti nefna þau mörg þessu til staðfestingar. Að sinni skal þó aðeins eitt nefnt. Tímaritið Þjóðmál sendi 1. hefti 6. árgangs nýlega frá sér. Það er í senn vandað og forvitnilegt enda kennir margra grasa. Þannig er þar gerð vönduð úttekt á hinu undarlega máli um bráðnun jökla Himalaja-fjalla. Þar er fjallað um mál sem náði eyrum fjölda ráðamanna og vísindamanna og varð suga fjármagns og fræðilegrar upphafningar og margir börðu sér á brjóst. Á daginn kom að forsendurnar sem á var gagnrýnislaust byggt reyndust feysknar í meira lagi. Hafa vísindamenn sem mjög hefur verið hampað verið á harðahlaupum undan fyrri fullyrðingum.

En einn undarlegasti þátturinn sem Þjóðmál gerir úttekt á snýst um hvernig íslenskur þjóðhöfðingi reyndi með undraverðum árangri að þrengja sér upp á hið asíska leiksvið með fyrrum fréttastjóra Dagblaðsins (!) sem sérlegan hjálparkokk. Má segja að þeir félagar hafi trónað furðu lengi á toppum Himalaja-fjalla en nú sé farið að gusta óþægilega um þá. Látum hafði ekki verið linnt fyrr en búið var að tryggja þeim síðarnefnda loforð um milljónatuga styrk frá Carnegie-stofnuninni í New York, svo hann gæti í samstarfi við forsetaskrifstofuna í Reykjavík fylgt bráðnunarmálinu í Himalajafjöllum eftir. Er þessi úttekt tímaritsins öll ævintýri líkust. Er með ólíkindum að ekki hafi verið gerð opinber grein fyrir þessu sérstæða máli.

Þótt þessi athyglisverða úttekt Þjóðmála sé nefnd sérstaklega er þetta hefti sneisafullt af margvíslegu öðru áhugaverðu efni, jafnt á sviði stjórnmála, efnahagsmála, sagnfræði og bókmennta og er þá ekki allt nefnt. Fer ekki á milli mála að þetta tímarit er gefið út af miklum metnaði og er árangurinn eftir því.

Forsíða nýjasta heftisins