Leit
- Áskriftartilboð
-
Panta i vefverslun.Frábært áskriftartilboð á tímaritinu Þjóðmálum.
Nýir áskrifendur fá í kaupbæti bókina Þjóð í hafti eftir ritstjóra og útgefanda Þjóðmála, Jakob F. Ásgeirsson. Þar er rakin saga haftaáranna (1930-1860) á einstaklega læsilegan hátt. Bókin er nýkomin út í kilju eftir að hafa verið ófáanleg í aldarfjórðung. Leiðb. verð: 1.980 kr.
Jólaljósin í Reykjavík eru tilkomuminni en þau hafa verið undanfarin ár. Þetta eru þriðju jólin frá því að bankarnir hrundu. Flestir landsmenn finna orðið illyrmislega fyrir því að pyngjan er léttari. Brúnin hefur þyngst á þeim sem hafa reynt sitt besta til að standa í skilum með afborganir af húsnæðis og bílalánum sem nær tvöfölduðust á einni nóttu um leið og kaupmáttur dróst saman. Vinstri stjórninni hefur gersamlega mistekist að létta þessar byrðar almennings. En hún hefur séð til þess að bankarnir hafi það gott. Það verður hennar arfleifð.
Því miður hefur öll umræða í landinu um hrun bankanna og orsakir þess verið á villigötum. Þegar við fáum fréttir af því að endurskoðunarfyrirtækin hafi tekið þátt í svikamyllu eigenda og stjórnenda bankanna blasir við hversu hjákátlegt það er að skella skuldinni á fáeina stjórnmála og embættismenn. Í öðrum löndum, sem fóru illa út úr fjármálakreppunni, dettur engum í hug að stilla stjórnmála og embættismönnum upp við vegg sem aðalsökudólgum. Það eru engar greinar skrifaðar um það erlendis að seðlabankinn og fjármálaeftirlitið í Bretlandi eða í Bandaríkjunum beri höfuðsök á fjármálakreppunni, hvað þá einstakir embættismenn í stjórnsýslunni. Jú, vissulega geta menn deilt um vaxtapólitík bandaríska seðlabankans, en það gera sér allir ljóst að það voru stjórnendur og eigendur bankanna sem settu fjármálakerfi Vesturlanda á hvolf.
Hér á landi hefur gamaldags vinstrihægri pólitík ruglað fólk í ríminu. Öll hugsun vinstri flokkanna frá hruni bankanna hefur snúist um það að stýra almenningsálitinu í þann farveg að kenna Sjálfstæðisflokknum um og frjálshyggjustefnu hans. Þess vegna hefur ekki verið brugðist við aðsteðjandi vanda með markvissum hætti, allt hefur snúist um að sýna fram á að Sjálfstæðisflokknum sé ekki treystandi, efnt til réttarhalda yfir forystumönnum hans, fyrrverandi forystumanni hans bolað úr starfi seðlabankastjóra (og var hann þó eini maðurinn sem varaði við falli bankanna), staðið fyrir fáránlegri sýndarmennskuumræðu um stjórnarskrárbreytingar (sem koma hruni bankanna nákvæmlega ekkert við) og lagt í gríðarmikinn kostnað vegna stjórnlagaþings og Evrópusambandsaðildar sem meirihluti þjóðarinnar er andvígur.
Ríkisútvarpið ræður miklu um umræðuna í landinu og það hefur séð til þess að forkólfar vinstri stjórnarinnar hafa komist upp með blekkingaleik sinn. Dag eftir dag fer Ríkisútvarpið silkihönskum um Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingrím J. Sigfússon. Þar býr hrein pólitík að baki. En líka ósjálfstæði og menntunarskortur. Það er áreiðanlega ein meginástæðan fyrir því hvernig komið er fyrir okkur að við búum við lítt menntaða og ósjálfstæða blaðamannastétt. Rakkarnir, sem Baugsveldið keypti t.d. til sín til að upphefja sig og siga á vammlaust fólk, keppast nú við að skella skuld á Davíð og Sjálfstæðisflokkinn og frjálshyggjuna. Það er eina vörn Baugsrakkanna. Þeir hafa hvorki vit né siðferðisþrótt til að horfast í augu við sjálfa sig og kannast við hrikalegar afleiðingar af þjónslund sinni við siðblinda húsbændur og glæpsamlegt athæfi þeirra.
Að svo mæltu óska ég lesendum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.


