Leit
- Áskriftartilboð
-
Panta i vefverslun.Frábært áskriftartilboð á tímaritinu Þjóðmálum.
Nýir áskrifendur fá í kaupbæti bókina Þjóð í hafti eftir ritstjóra og útgefanda Þjóðmála, Jakob F. Ásgeirsson. Þar er rakin saga haftaáranna (1930-1860) á einstaklega læsilegan hátt. Bókin er nýkomin út í kilju eftir að hafa verið ófáanleg í aldarfjórðung. Leiðb. verð: 1.980 kr.
Tímaritið Þjóðmál kemur út fjórum sinnum á ári – vetur, sumar, vor og haust. Heiti ritsins gefur til kynna efni þess og er þá átt við þjóðmál í víðum skilningi þar sem fjallað er um bókmenntir og önnur menningarmál í bland við stjórnmálin.
Útgefandi Þjóðmála er Bókafélagið Ugla, Hraunteigi 7, 105 Reykjavík, sími 698-9140.
Í ritstjóraspjalli 1. heftis tímaritsins fylgdi Jakob F. Ásgeirsson, ritstjóri tímaritsins, blaði sínu úr hlaði með þessum orðum:
Við fyrstu sýn kann að virðast fráleitt að hefja útgáfu tímarits nú þegar heimilin fyllast dag hvern af ókeypis blöðum sem vinnandi fólk kemst ekki yfir að fletta, hvað þá að lesa. En einmitt við slíkar aðstæður gæti verið þörf fyrir tímarit um þjóðmál sem fólk kaupir sérstaklega til lestrar af því að það getur gengið að því vísu að þar sé að finna vandaðar greinar utan við dægurþrasið. Sú er að minnsta kosti von þess sem að útgáfu þessa nýja tímarits stendur.
Alvarleg tímarit hafa löngum átt erfitt uppdráttar á Íslandi. Höfuðástæðan er vitaskuld fámennið, en önnur ástæða hefur líka haft sitt að segja – skortur á hefð fyrir því að einstaklingar kosti útgáfustarfsemi í menningarskyni eða af hugmyndafræðilegum ástæðum. Flest alvarleg tímarit í hinum engilsaxneska heimi hafa átt sér „patrons“ eða velunnara sem hafa borgað reikningana þegar áskriftir og auglýsingar hafa látið á sér standa. Vonandi eignast þetta tímarit með tíð og tíma allnokkra velunnara sem eru tilbúnir að styðja við útgáfuna og auglýsa í tímaritinu af því að þeir skynja að það er nauðsyn á valkosti af þessu tagi í útgáfuflórunni á Íslandi.
En hvaða valkost býður tímaritið Þjóðmál upp á? Jú, vel skrifaðar og ígrundaðar greinar þar sem ýmislegt í stjórnmálum og þjóðlífinu almennt er tekið til skoðunar án undirgefni við margvíslegan rétttrúnað sem tröllríður okkar litla samfélagi. Tímaritinu Þjóðmálum er ætlað að verða vettvangur fyrir frjálshuga fólk sem er orðið þreytt á yfirborðslegri og einhliða fjölmiðlun um stjórnmál og menningu. Ritstjórnarstefnu Þjóðmála er að öðru leyti best lýst með orðunum: frelsi og hæfilegt íhald.


