Þórdís Kolbrún: Markaðshagkerfið býr til sterkt samfélag

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Mynd: HAG).

Frjálst markaðshagkerfi er ekki að líða undir lok heldur er það forsenda þess að við náum okkur upp úr þessu.

Þetta segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, í ítarlegu viðtali í nýjasta hefti Þjóðmála.

Nokkuð hefur verið fjallað um inngrip ríkisvaldsins til að halda hagkerfinu gangandi eins og hægt er á meðan kórónuveiran gengur yfir. Eins og oft er þegar gefur á bátinn er deilt um þá hugmyndafræði sem til þarf til að koma samfélögum, hvort sem það er hér Íslandi eða annars staðar, fyrir vind. Margir telja aðgerðir ríkisins nú einhvers konar réttlætingu á sterku ríki og jafnvel sósíalisma. En ætli það sé einhver ástæða til að halda að hið frjálsa markaðshagkerfi líði undir lok?

„Nei, það er engin ástæða til þess því við erum með þessum aðgerðum að standa vörð um markaðshagkerfið. Við erum að gera það sem þarf til að fyrirtækin geti komið standandi úr þessu og haldið áfram rekstri og fólk haldið sinni vinnu, það er verra að vera atvinnulaus en að lækka í tekjum,“ segir Þórdís Kolbrún aðspurð um þetta.

„Frjálst markaðshagkerfi er ekki að líða undir lok heldur er það forsenda þess að við náum okkur upp úr þessu. Það skiptir máli að fólk geti stofnað fyrirtæki, fengið hugmyndir, þroskað hæfileika sína og notið góðs af þeim. Því sterkari sem þessir þættir eru, þeim mun betur getum við gert það sem þarf að gera til að bæta lífskjör okkar allra. Þess vegna minni ég á að við erum í þessu saman. Við eigum eftir að fara í gegnum erfiða tíma, við munum sem samfélag gera einhver mistök og það er ekki sjálfgefið að samstaðan haldi. Við erum sterkt samfélag vegna þess að hagkerfið er markaðsdrifið og hefur getað haldið uppi því öfluga velferðarkerfi sem við höfum.“

Þórdís Kolbrún vitnar að fyrra bragði í nýleg orð Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, þar sem hann sagði að faraldurinn hefði sýnt fram á að það væri til samfélag og mikilvægt væri að huga vel að því.

„Sumir hægrimenn hafa gjarnan vitnað með velþóknun í ummæli Margrétar Thatcher sem sagði að það væri ekkert til sem héti samfélag, heldur bara hópur einstaklinga,“ segir Þórdís Kolbrún.

„Mér fannst Boris því sýna kjark með því að leggja áherslu á þetta. Auðvitað erum við samfélag. Við höfum búið til grunnkerfi sem allir hafa aðgang að og Sjálfstæðisflokkurinn á stóran þátt í því. Stefna okkar slær réttan tón í því að til þess að skapa sterkt samfélag þarf hver og einn einstaklingur að hafa nægilegt frelsi til þess að gera það sem hann langar til að gera, svo lengi sem hann skaðar ekki aðra, og njóta góðs af framtakssemi sinni. Til þess að gera okkar besta í því að Ísland sé raunverulega land tækifæranna, sem mér finnst Ísland vera margfalt meira en mörg önnur ríki, þurfum við líka að huga að mannauði í landinu og það gerum við meðal annars með því velferðarkerfi sem við búum við.“

Sem fyrr segir er Þórdís Kolbrún í ítarlegu viðtali í nýjasta hefti Þjóðmála. Þar ræðir hún um viðbrögð ríkisstjórnarinnar vegna útbreiðslu kórónuveirunnar og hversu mikilvægt markaðshagkerfið reynist í þeim aðstæðum sem nú eru uppi. Rætt er um mögulega sameiningu og fækkun ríkisstofnana og undarlega hegðun Samkeppniseftirlitsins, mikilvægi þess að leggja áherslu á nýsköpun, umhverfið í stjórnmálum og loks stöðu kvenna innan Sjálfstæðisflokksins.

Viðtalið birtist í vorhefti Þjóðmála, 1. tbl. 2020. Hægt er að gerast áskrifandi að Þjóðmálum með því að senda tölvupóst á askrift@thjodmal.is eða skilaboð á facebook síðu ritsins. Ritið færst einnig í lausasölu í verslunum Pennans/Eymundsson.