Óskarinn og Íslendingar

Hildur Guðnadóttir tekur við Óskarsverðlaunum, fyrst Íslendinga, þann 10. febrúar 2020.

Þegar Íslendingar eignast sigurvegara á alþjóðavettvangi vekur það gjarnan mikla athygli innanlands og þjóðarstoltið rís upp. Við höfum unnið Nóbelsverðlaun, silfur- og bronsverðlaun á Ólympíuleikum, orðið heimsmeistarar í bridds og crossfit og meira að segja B-heimsmeistarar í handbolta karla.

Þann 10. febrúar 2020 kl. 03.45 unnum „við“ Óskarsverðlaun þegar Hildur Guðnadóttir vann fyrir bestu frumsömdu tónlist í bíómyndinni Joker. Þetta var stór stund og vakti mikla athygli, þar sem Íslendingur var að vinna til þessara verðlauna í fyrsta skipti. Athygli vakti hversu margir Íslendingar fóru á islendingabok.is til að sjá hvort þeir væru skyldir Hildi.

Hildur fæddist árið 1982, ólst upp í Hafnarfirði en býr nú í Berlín. Hún er tónsmiður og helsta hljóðfæri hennar er selló. Tónlistarferill hennar byrjaði þegar hún var 15 ára gömul og frá þeim tíma hefur hún gefið út margar sólóplötur og samstarfsplötur. Árið 2011 byrjaði hún að vinna við kvikmyndatónlist. Hún byrjaði að vekja mikla athygli á síðasta ári þegar hún fékk mikið lof fyrir tónsmíðina í sjónvarpsþáttunum Chernobyl, sem fjalla um eitt stærsta kjarnorkuslys sögunnar sem átti sér stað í Úkraínu árið 1986. Hildur vann m.a. bandarísku Grammy-tónlistarverðlaunin og Emmy-sjónvarpsverðlaunin fyrir þá þætti.

Joker skaut Hildi svo enn hærra á stjörnuhimininn þegar hún vann til Óskarsverðlauna, en hún vann m.a. líka bresku kvikmyndaverðlaunin BAFTA og Golden Globeverðlaunin, sem veitt eru af samtökum erlendra blaðamanna í Hollywood. Kvikmyndin Joker er upprunasaga eins helsta andstæðings Leðurblökumannsins. Fjallar hún um Arthur Fleck og hvernig mótlætið sem hann mætir í lífinu breytir honum smám saman í Jóker, stórglæpamanninn síhlæjandi. Hildur vakti mikla athygli fyrir tónlist sína í myndinni, sérstaklega þar sem hún samdi hluta hennar á meðan verið var að taka myndina upp og leikstjórinn spilaði tónlist hennar undir við upptökur sumra atriðanna. Kvikmyndin varð sjötta vinsælasta myndin á heimsvísu árið 2019.

Óskarsverðlaunin eru elstu kvikmyndaverðlaunin í heiminum og hafa verið veitt árlega í Los Angeles frá 1929. Þau vekja ávallt heimsathygli og eru sýnd í beinni útsendingu út um allan heim. Margir af þekktustu leikurum og kvikmyndagerðarmönnum heims hafa verið tilnefndir til verðlauna. Áður en Hildur Guðnadóttir steig á svið til að taka á móti Óskarsstyttunni höfðu átta aðrir Íslendingar verið tilnefndir til þessara verðlauna.

Sturla Gunnarsson var fyrsti Íslendingurinn til að vera tilnefndur til Óskarsverðlauna. Hann fæddist árið 1951 á Íslandi en fluttist þegar hann var 6-7 ára til Kanada, þar sem hann hefur búið allt sitt líf. Fyrsta kvikmyndin sem hann leikstýrði var heimildarmyndin After the Axe, sem kom út árið 1982. Fjallar hún um reynslu stjórnenda af því að vera reknir úr vinnu og tilkomu nýrrar atvinnugreinar sem sérhæfir sig í meðhöndlun slíkra uppsagna. Þessi frumraun hans í leikstjórn gekk svo vel að myndin var tilnefnd til Óskarsverðlauna sem besta heimildarmyndin í fullri lengd.

Næstur til að vera tilnefndur til Óskarsverðlauna var Friðrik Þór Friðriksson fyrir leikstjórn sína á kvikmyndinni Börn náttúrunnar. Hann fæddist árið 1953 í Reykjavík og var Börn náttúrunnar önnur mynd hans í fullri lengd, eftir kvikmyndina Skytturnar. Hann hafði áður gert fjórar heimildarmyndir og þrjár stuttmyndir. Börn náttúrunnar kom út árið 1991 og fjallar um gamlan mann úr sveit sem flytur á elliheimili í Reykjavík. Þar endurnýjar hann ást sína við gamla kærustu og saman strjúka þau af elliheimilinu. Kvikmyndin var tilnefnd sem besta erlenda myndin og vakti það mikla athygli innanlands að Stöð 2 varð fyrsta íslenska sjónvarpsstöðin til að sýna beint frá verðlaunahátíðinni. Þrátt fyrir að oft sé talað um að Friðrik Þór Friðriksson hafi verið tilnefndur til Óskarsverðlauna er það ekki beint rétt, því samkvæmt reglum Óskarsverðlaunaakademíunnar var myndin tilnefnd sem besta erlenda myndin fyrir Íslands hönd en leikstjórinn var fulltrúi myndarinnar.

Sá þriðji til að vera tilnefndur var Pétur Hlíðdal, sem starfar sem hljóðblöndunarmaður. Hann fæddist árið 1945 á Íslandi en fluttist þriggja ára til Bandaríkjanna með móður sinni eftir að faðir hans fórst í flugslysi á Hellisheiði. Hann hefur starfað við yfir 80 kvikmyndir frá 1972. Margar af þessum myndum voru m.a. stórmyndir eða myndir með stórleikurum eins og t.d. Edward Scissorhands, Batman Returns, The Client, A Time to Kill, Assassins, High Fidelity, Old School, Syriana, The Holiday, Lions for Lambs, Charlie Wilson´s War, Shutter Island, Oz the Great and Powerful, Captain America: The Winter Soldier og Captain America: Civil War.

Pétur hefur tvisvar sinnum verið tilnefndur til Óskarsverðlauna fyrir besta hljóðið í kvikmynd. Fyrsta tilnefning hans var fyrir Batman Forever, sem kom út árið 1995. Var þetta þriðja Batman-myndin sem kom út á sex ára tímabili og varð þessi mynd gríðarlega vinsæl eins og hinar myndirnar á undan. Næsta tilnefning Péturs var svo fyrir The Aviator, sem kom út árið 2004 og var í leikstjórn Martin Scorsese. Fjallar myndin um upphafsár viðskiptajöfursins, leikstjórans og flugmannsins Howard Hughes sem Leonardo DiCaprio lék svo eftirminnilega í myndinni.

Næstu Íslendingar til að vera tilnefnd voru Björk Guðmundsdóttir og Sigurjón Birgir Sigurðsson, Sjón. Björk fæddist árið 1965 í Reykjavík og hóf tónlistarferil 11 ára. Hún vakti fyrst athygli í hljómsveitinni KUKL, sem síðan þróaðist út í hljómsveitina Sykurmolarnir. Hún hóf sólóferil árið 1992 og varð heimsfræg eftir það. Sjón fæddist í Reykjavík árið 1962. Hann er skáld og rithöfundur. Ásamt Björk samdi hann tónlistina í kvikmyndinni Dancer in the Dark sem kom út árið 2000 en Björk lék einnig aðalhlutverkið í þeirri mynd. Myndin fjallar um dagdreymandi innflytjanda sem starfar í verksmiðju í Bandaríkjunum. Hún þjáist af augnhrörnunarsjúkdómi og er að spara fyrir kostnaði við aðgerð til að koma í veg fyrir að sonur hennar verði fyrir sömu örlögum. Kvikmyndin var tilnefnd til margra alþjóðlegra verðlauna og m.a. var Björk tilnefnd sem besta leikkonan í aðalhlutverki á Golden Globe-verðlaunahátíðinni. Björk og Sjón voru tilnefnd til Óskarsverðlauna í flokknum besta frumsamda lagið fyrir lagið „I‘ve Seen It All“. Björk samdi tónlistina og leikstjórinn Lars von Trier og Sjón sömdu textann.

Önnur íslenska myndin á eftir Börn náttúrunnar til að vera tilnefnd til Óskarsverðlauna var stuttmyndin Síðasti bærinn, sem kom út árið 2005. Það voru Rúnar Rúnarsson og Þórir S. Sigurjónsson sem framleiddu þá mynd. Rúnar fæddist árið 1977 í Reykjavík og er leikstjóri og framleiðandi en Þórir fæddist árið 1973 í Reykjavík og er framleiðandi og leikari. Síðasti bærinn fjallar um bónda á eina bænum í afskekktum dal sem ekki er farinn í eyði. Hann hefur búið þar alla ævi, alið upp fjölskyldu og hugað að búskapnum. Hann hefur engan áhuga á að bregða búi og flytja á elliheimili, sem börn hans hvetja hann þó til að gera. Var þessi mynd tilnefnd í flokknum besta leikna stuttmyndin.

Að lokum skal nefna tónsmiðinn Jóhann Jóhannsson. Hann fæddist árið 1969 í Reykjavík og lést árið 2018 í Berlín. Jóhann byrjaði árið 2000 að vinna við tónlist í kvikmyndum en samdi einnig tónlist fyrir leiksýningar, dansverk og sjónvarp. Tvö ár í röð var hann tilnefndur til Óskarsverðlauna fyrir bestu tónlistina í kvikmynd. Fyrsta tilnefning hans var fyrir The Theory of Everything, sem kom út árið 2014 og fjallar um samband eðlisfræðingsins Stephen Hawking og eiginkonu hans. Seinni tilnefningin kom árið 2015 fyrir kvikmyndina Sicario, sem fjallar um FBI-fulltrúa sem er ráðinn til að aðstoða við stríðið gegn fíkniefnum á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó.

Það hefur alltaf þótt mikill heiður að vera tilnefndur til Óskarsverðlauna og nú eru 37 ár síðan Íslendingur var í fyrsta sinn tilnefndur. En þökk sé Hildi getum við loksins sagt að „við“ höfum unnið Óskarsverðlaun.

Höfundur er sagnfræðingur.

Greinin birtist í vorhefti Þjóðmála, 1. tbl. 2020.
Hægt er að gerast áskrifandi að Þjóðmálum með því að senda tölvupóst á askrift@thjodmal.is eða skilaboð á facebook síðu ritsins. Ritið færst einnig í lausasölu í verslunum Pennans/Eymundsson
.