Frjálst fall Jóhönnu
Þegar Jóhanna Sigurðardóttir settist í stól forsætisráðherra í minnihlutastjórn Samfylkingar og Vinstri grænna í febrúar 2009, hafði hún verið ráðherra frá maí 2007. Þar áður hafði hún verið ráðherra í sjö ár frá 1987 til 1994.Jóhanna var einhver vinsælasti stjórnmálamaður landsins þegar hún tók sæti sem félagsmálaráðherra í ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar í maí 2007. Hún naut trausts umfram flesta aðra.Samkvæmt könnun Gallup í september 2007 voru 70,3% landsmanna ánægð með störf Jóhönnu í félagsmálaráðuneytinu. Í apríl og september 2008 voru 60% landsmanna ánægð með Jóhönnu.Ánægjan með störf Jóhönnu var liðlega 26 prósentustigum meiri en Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, menntamálaráðherra og varaformanns Sjálfstæðisflokksins, sem kom næst Jóhönnu.Þegar Jóhanna tók við sem forsætisráðherra í febrúar 2009 jókst ánægjan og um 65,4% voru ánægð sem nýjan forystumann ríkisstjórnar Samfylkingar og Vinstri grænna. Frá þeim tíma var Jóhanna hins vegar nær stöðugt í frjálsu falli í hugum kjósenda.Samkvæmt könnun Gallup í mars 2012 um ánægju með störf ráðherra voru aðeins 18 af hverjum 100 kjósendum ánægðir með forsætisráðherra. Þannig höfðu sjö af hverjum tíu, sem sögðust ánægðir með Jóhönnu í febrúar 2009, snúið baki við henni. Aðeins Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra naut minni vinsælda en Jóhanna. Tæplega 23% voru ánægð með Steingrím J. Sigfússon.Jóhanna náði að rétta stöðu sína nokkuð og undir lok 2012 sögðust 26% vera ánægð með störf hennar sem forsætisráðherra.