Valdatafl á æðstu stöðum

Ólympíuskákmótið fer fram í Batumi í Georgíu við Svartahafið23. september til 6. október. Þar verður án efa hart barist á reitunum 64.

Ísland sendir lið í bæði opnum flokki og í kvennaflokki.Nýlega voru lið Íslands tilkynnt. Karlaliðið skipa Héðinn Steingrímsson,Hjörvar Steinn Grétarsson, Hannes Hlífar Stefánsson, Jóhann Hjartarson og HelgiÁss Grétarsson. Í fyrsta skipti síðan 1996 er liðið aðeins skipað stórmeisturum.

Helgi Ólafsson er liðsstjóri. Kvennaliðið skipa þær LenkaPtácníková, Guðlaug Þorsteinsdóttir, Nansý Davíðsdóttir, Jóhanna BjörgJóhannsdóttir og Sigurlaug R. Friðþjófsdóttir. Liðsstjóri er Björn ÍvarKarlsson.

Í Batumi verður einnig hart barist utan reitanna 64 því þáfer fram stjórnarkjör til æðstu embætta alþjóða skáksambandsins, FIDE. Staðaner í senn stórfurðuleg og flókin.

Forsetinn í vandræðum

Rússinn Kirsan Ilyumzhinov er forseti FIDE og hefur veriðsíðan árið 1995 þegar hann komst óvænt til valda þegar FilippseyingurinnFlorencio Campomanes hrökklaðist frá völdum. Sá hafði fellt Friðrik Ólafsson úrforsetastóli árið 1982.

Ilyumzhinov er ákaflega umdeildur maður. Hann hefur sagsthafa verið numinn á brott af geimverum og hefur verið sakaður um morð áblaðakonu í heimalandi sínu. Það er þó ósannað. Hann hefur í gegnum tíðina nýstPútín, sem notaði hann t.d. að heimsækja einræðisherra á borð við Assad ogGaddafi þegar búið var að loka öðrum leiðum til að eiga við þá opinbersamskipti.

Þegar bandarísk stjórnvöld beittu Kirsan viðskiptaþvingunumfór hins vegar verulega að þrengja að honum og um leið að FIDE, þar sem bankarfóru að hóta á því að eiga ekki í viðskiptum við FIDE á meðan þetta ástand varði.

Grikki tekur yfirsviðið

Kirsan og FIDE urðu að bregðast við. Árið 2015 afsalaðiIlyumzhinov sér helstu völdum sínum innan FIDE og fyrsti varaforseti FIDE, GrikkinnGeorgios Makropoulos, ávallt kallaður Makro, hefur verið starfandi forseti FIDEsíðan þá. Kirsan er að nafninu til forseti en er í raun og veru algjörlegavaldalaus. Hin formlegu völd eru Makro megin.

Makro hefur verið forseti gríska skáksambandsins síðan 1982og sat fyrsta FIDE-fund sinn þegar Friðrik var felldur. Hann hefur verið ístjórn FIDE síðan 1986 og fyrsti varaforseti síðan 1996. Hann hefur að margra mativerið í raun og veru valdamesti maður FIDE um áratugaskeið og hefur fengið viðurnefnið„The Puppet Master“.

Makro er þéttur maður á velli, með afar sterka nærveru. Hanner ekki góður ræðumaður en þeim mun betri plottari. Í gegnum árin hefur hannstjórnað kosningabaráttu Kirsans og er sagður heilinn á bak við sigra hans. Erklókur og um leið ófyrirleitinn þegar hann vill ná sínu fram. Sagan segir að margofthafi verið leitast eftir kröftum hans í grískum stjórnmálum en Makro hafiávallt hafnað slíkum málaleitunum. Sennilega líkað betur við að stjórna á bakvið tjöldin í FIDE!

Vík milli vina

Nú er hins vegar vík milli vina. Uppgjör varð árið 2017 ádramatískum fundi stjórnar FIDE þar sem Kirsan lýsti því grátklökkur yfir að hannværi hættur sem forseti eftir að hart var að honum sótt. Hann hætti síðar viðþá ákvörðun en síðan þá hefur allt bakland hans innan stjórnarinnar snúið viðhonum baki og nú er hann nánast algjörlega vinalaus í stjórn FIDE. Kirsan erhins vegar vinur Pútíns, sem er býsna stór breyta.

Makro og félagar hófu þá þegar leit að nýjum forsetaframbjóðandaen gekk illa. Það kom þó fyrir að þeir töldu sig hafa fundið frambjóðanda – enþá kom í kjölfarið eitt stykki símtal frá Moskvu og framboðin runnu út í sandinn.Að lokum ákvað Makro að bjóða sig bara sjálfur fram og í hans liði er gamlaklíkan sem stjórnað hefur FIDE. Margir eru þar býsna umdeildir.

Makro hefur lýst því yfir að hann ætli sér aðeins að sitja áforsetastóli í fjögur ár. Aðalmálið sé að koma í veg fyrir áframhaldandi veruKirsans á valdastóli. Nýlega lokaði svissneski bankinn UBS öllum viðskiptum áFIDE vegna Kirsans og afar erfitt hefur reynst fyrir sambandið að komast í ný bankaviðskiptiá meðan Kirsan er formlega forseti. Þetta ástand hefur kostað FIDE háar fjárhæðir.

Gervimaður í framboði

Kirsan hefur safnað að sér nýju framboðsteymi sem þykirnokkuð sérkennilegt. Enginn með skáktengingu er í teyminu. Meðalmeðframbjóðenda hans er taílensk prinsessa, sem margir vilja draga í efa að séraunverulega prinsessa, og Bandaríkjamaður að nafni Glen Stark, sem segist veraauðkýfingur en enginn veit hver er í raun og veru. Aldrei má samt vanmetaKirsan – sérstaklega ef hann hefur Pútín á bak við sig.

Nigel Short kemurfram á sjónarsviðið

Nýlega lýsti enski stórmeistarinn Nigel Short yfir framboðisínu. hann er greinilega studdur af Garry Kasparov, sem tapaði fyrir Kirsanárið 2014. Vandamál Short er hins vegar að hann hefur þótt í gegnum tíðinafrekar hrokafullur, hefur talað býsna óvarlega og móðgað marga með óheppilegumummælum. Sérstaklega hefur hann þótt hafa talað niður til skákkvenna og á tímum#metoo-byltingarinnar koma sum ummæli hans sér nú illa fyrir hann.

Ensku vinirnir Nigel Short og Malcolm Pein eru til hægri á myndinni.

Nigel Short er ólíklegur til að ná Vestur-Evrópu á bak viðsig og meira að segja er óljóst hvort hann hefur stuðnings heimalands síns, Englands.

Það vekur óneitanlega athygli að Malcolm Pein,aðalskipuleggjandi ofurmótsins London Classic, og stórvinur Shorts (kannskiekki enn), er varaforsetaefni Makro. Pein hefur látið hafa það eftir sér aðhann sé sammála Short að öllu leyti en hafi takmarkaða trú á stjórnunarhæfileikumhans. Hann hefur lýst yfir áhuga að taka við forseta embætti FIDE árið 2022.

Rússar ókyrrast –stígur Karpov fram?

Rússar kunna illa því að tapa, enda hafa þeir stjórnað þvísem þeir vilja stjórna innan FIDE síðan Campomanes felldi Friðrik Ólafsson af forsetastóliárið 1982. Þeir sjá nú fram á það að Kirsan kunni að tapa og lausnin gæti veriðað Anatoly Karpov bjóði sig fram. Kirsan mun ekki hætta við framboð nema beinfyrirmæli berist frá Pútín sjálfum.

Karpov er miklu líklegri til að ná árangri en Nigel Short,þar sem hann gæti bæði fengið stuðning frá Rússablokkinni og Kasparovblokkinni.

Spennandi tímar eru fram undan í Batumi. Þar verður teflt áÓlympíuskákmóti og í valdatafli!

Skáksamband Íslands hefur enga ákvörðun tekið sína afstöðuog mun ekki gera fyrr en framboðsfrestur rennur út.

Höfundur er forseti Skáksambands Íslands.

—-

Greinin birtist í sumarhefti Þjóðmála, 2. tbl. 2018. Hægt er að gerast áskrifandi að Þjóðmálum með því að senda tölvupóst á askrift@thjodmal.is eða skilaboð á facebook síðu ritsins. Ritið færst einnig í lausasölu í verslunum Pennans/Eymundsson.

Previous
Previous

Saklaus þar til sekt sannast

Next
Next

Sagan verður vonandi hinn réttláti dómari hrunmálanna