Ólympíuskákmót við Svartahaf
Ólympíuskákmótið, það 43. í sögunni, er haldið í Batumi íGeorgíu dagana 24. september til 5. október. Batumi, sem er við Svartahafið, erstundum kallað Las Vegas Georgíu. Þar eru spilavíti víðs vegar ogþangaðflykkjast til dæmis Tyrkir og Ísraelsmenn í fjárhættuspilin sem erubönnuð í þeirra löndum.
Ólympíuskákmót eru einn stærsti og fjölmennasti íþróttaviðburðurheims. Saga Ólympíuskákmótanna er löng. Fyrsta opinbera Ólympíuskákmótið varhaldið í London árið 1927 en fyrir þann tíma höfðu tvo óopinber Ólympíuskákmótfarið fram; í París 1924 og Búdapest og 1926. Mótin voru haldin reglulega framtil ársins 1939 en þá féllu þau niður vegna heimsstyrjaldarinnar. Síðan 1950hafa mótin ávallt verið haldin á tveggja ára fresti. Alls hafa verið haldin 42opinber Ólympíuskákmót. Óopinbert Ólympíuskákmót var haldið árið 1936 í Münchení Þýskalandi nasismans. Hitler sló af kröfunum og gyðingar fengu að taka þátt. Gráglettniörlaganna var að sveitir Ungverjalands og Póllands, að mestu leyti skipaðar gyðingum,unnu heimamenn.
Árið 1976 var Ólympíuskákmótið haldið í Haifa í Ísrael. Þámótmæltu flestar arabaþjóðir og héldu sitt eigið Ólympíuskákmót í Trípólí sem varlítið og fámennt. Það snerist svo við þegar mótið var haldið í Dubai íSameinuðu arabísku furstadæmunum árið 1986. Þá mættu Ísraelsmenn ekki. Pólítíkhefur því sett stóran svip á Ólympíuskákmótin í gegnum tíðina. Armenar mættuheldur ekki á Ólympíuskákmótið í Bakú 2016 í Aserbaídsjan enda eiga þjóðirnar formlegaí stríði.
Allir eru velkomnir á Ólympíuskákmótið í Batumi í Georgíu,nema þeir sem hafa komið til Suður-Ossetíu og Abkasíu, en þau héruð voruhertekin af Rússum árið 2008. Þeir sem hafa komið þangað geta verið handteknirvið komuna til Georgíu, sem lítur á þau sem sitt landsvæði.
Ísland áÓlympíuskákmótum í gegnum tíðina

Íslendingar hafa alls tekið þátt 37 sinnum áÓlympíuskákmóti; fyrst á þriðja Ólympíuskákmótinu árið 1930. Síðan 1952 hefur Íslandávallt tekið þátt. Þess fyrir utan tefldi Ísland á hinu umdeildaÓlympíuskákmóti í Þýskalandi nasismans árið 1936.
Íslandi hefur oftsinnis gengið vel á Ólympíuskákmóti. Fræger þátttakan á Ólympíuskákmótinu í Buenos Aires 1939 sem fram fór í stríðsbyrjun.Þá þurftu íslensku keppendurnir að ferðast í þrjár vikur til að komast tilbaka!
Þá vann liðið b-keppnina og Copa Argentina-bikarinn, sem varmikið afrek. Tímabilið 1984-1996 var sannkallað gullaldartímabil Íslands. Þáendaði íslenska liðið aldrei neðar en í 22. sæti og þrívegis á topp 10. Bestiárangurinn var í Dubai 1986 þegar íslenska liðið endaði í fimmta sæti. Um það afrekskrifuðu dr. Kristján Guðmundsson og Jón L. Árnason stórgóða bók; Skákstríð við Persaflóa.
Ísland hefur heldur gefið eftir á heimsvísu þrátt fyrir aðvera enn með sterkasta landslið heims miðað við höfðatölu! Síðustu ár hefur íslenskaliðið endað í kringum í 40. sæti.
Kvennaliðið

Á Ólympíuskákmótum er teflt í opnum flokki og kvennaflokki.Skákkonur geta teflt í opnum flokki og gera það stundum. Judit Polgar tefldiávallt í opnum flokki fyrir Ungverjaland.
Ísland sendi fyrst kvennalið til keppni árið 1978. Þá ætlaðiSkáksambandið ekki að senda lið. Birna Norðdahl, sem þá var ein sterkastaskákkona landsins, barði þá í borðið og sagði „Við förum samt“ og safnaði sjálffullum farareyri. Ísland sendi ekki lið á árunum 1986-1998, enda voru þá afarfáar konur teflandi hérlendis.
Síðan árið 2000 hefur íslenskt kvennalið ávallt tekið þátt.Kvennaliðið hefur síðustu ár verið í kringum 50-60. sæti.
Íslensku liðin nú
Íslenska liðið í opnum flokki skipa stórmeistararnir HéðinnSteingrímsson, Jóhann Hjartarson, Hannes Hlífar Stefánsson og Helgi ÁssGrétarsson ásamt alþjóðlega meistaranum Guðmundi Kjartanssyni. Helgi Áss, semvarð óvænt Íslandsmeistari í skák fyrr á árinu, er að tefla á fyrstaÓlympíuskákmóti sínu í 16 ár. Helgi Ólafsson er liðsstjóri.
Íslenska kvennaliðið skipa Lenka Ptácníková, stórmeistarikvenna, Guðlaug Þorsteinsdóttir, Nansý Davíðsdóttir, Jóhanna BjörgJóhannsdóttir og Sigurlaug R. Friðþjófsdóttir.

Nansý, sem er aðeins 16 ára, er að tefla á fyrsta Ólympíuskákmótisínu. Guðlaug tefldi á Ólympíuskákmótinu árið 1978, fyrir 40 árum, þegarkvennaliðið tók fyrst þátt, þá á svipuðum aldri og Nansý nú. Björn Ívar Karlssoner liðsstjóri.
Íslenska liðið í opnum flokki er í kringum 40. sæti ástyrkleikalistanum af um 180 þjóðum. Kvennaliðið er í um 60. sæti af um 150 þjóðumsem taka þátt.
Ingvar Þór Jóhannesson er fararstjóri hópsins. Greinarhöfundurmun sitja fund alþjóðaskáksambandsins. Ísland á þrjá skákstjóra á mótinu. OmarSalama, varaforseti Skáksambandsins, er einn yfirdómara mótsins en að auki eruKristján Örn Elíasson og Ingibjörg Edda Birgisdóttir meðal skákstjóra á mótinu.
Flestir sterkustuskákmenn heims nema heimsmeistarinn
Í opnum flokki eiga Bandaríkjamenn stigahæstu sveitina.Slíkt heyrir til mikilla tíðinda, en Rússar og þar áður Sovétmenn hafa átt stigahæstaliðið frá upphafi skákstiga. Rússar eru næststigahæstir og Kínverjar þeirþriðju.
Kínverjar eru stigahæstir í kvennaflokki, Úkraínukonurnæststigahæstar og heimamenn í Georgíu í þriðja sæti. Mikil hefð er fyrirkvennaskák í Georgíu.
Nánast allir sterkustu skákmenn heims tefla í Batumi.Heimsmeistarinn, hinn norski Magnús Carlsen, situr þó heima. Hann kýs að teflafrekar á Evrópumóti taflfélaga í október með norskum skákklúbbi sínum, en hannteflir heimsmeistaraeinvígi við Fabiano Caruana í London í nóvembernæstkomandi. Meira að segja indverski tígurinn Vishy Anand teflir áÓlympíuskákmótinu, en hann hefur ekki teflt á slíku móti síðan 2004.
Baráttan utanskákborðsins
Í síðasta tölublaði Þjóðmála sögðum við frá baráttunni umforsetaembætti FIDE. Þar berjast þrír um forsetastöðuna.
Þar kljást Grikkinn Georgios Makropoulos, Rússinn ArkadyDvorkovich og enski stórmeistarinn Nigel Short um vegtylluna.
Við sögðum frá þeim Makropoulos og Short í síðasta tölublaðien þá var framboð Rússans ekki komið fram. Dvorkovich þessi er ekkert peð. Hannvar áður aðstoðarforsætisráðherra Rússlands og var formaður mótsnefndar HM ífótbolta í Rússlandi. Baklandið er sterkt, sjálfur Vladimír Pútín! Rússar beitaóspart pólitískum þrýstingi, sem varð t.d. til þess að skipt var umFIDE-fulltrúa í Serbíu.
Nigel Short er ekki talinn eiga neinn möguleika á sigri.Hann vonast til þess að hvorugur hinna fái meirihluta í fyrstu umferð. Þá geti hannkomið sínum áherslum að í samningaviðræðum við annan hvorn hinna, væntanlega þáDvorkovich, en enski stórmeistarinn er svarinn óvinur Makropoulos.
Það flækir málin að samlandi Shorts, Malcolm Pein, ermeðframbjóðandi Makropoulos og greiðir einnig atkvæði fyrir hönd enska skáksambandsins.Fyrir skemmstu var mynd tekin saman af Short og Dvorkovich þar sem þeirgagnrýndu báðir Makropoulos. Sumum finnst þessi „samvinna“ Englands og Rússlandsá skáksviðinu sérkennileg í ljósi samskipta þjóðanna, sem eru við frostmark eftirmorðtilraun á Skripal-feðginunum.
Á þessu augnabliki er erfitt að segja til um hvort Grikkinneða Rússinn vinni. Örugglega á mikið eftir að ganga á bæði fyrir framan og bakvið tjöldin í Batumi.
Skákáhugamenn og áhugamenn um skákpólitík geta fylgst með áwww.skak.is. Þar verða baráttunni bæði innan og utan skákborðsins gerð góð skilá meðan á mótinu stendur.
Höfundur er forseti Skáksambands Íslands.
----
Greinin birtist í hausthefti Þjóðmála, 3. tbl. 2018. Hægt er að gerast áskrifandi að Þjóðmálum með því að senda tölvupóst á askrift@thjodmal.is eða skilaboð á facebook síðu ritsins. Ritið færst einnig í lausasölu í verslunum Pennans/Eymundsson.