Magnús Carlsen varði heimsmeistaratitilinn - Verður einvígið haldið í Reykjavík 2022?

Heimsmeistaraeinvígið í skák var haldið í London dagana9.-28. nóvember. Um titilinn börðust tveir stigahæstu skákmenn heims; NorðmaðurinnMagnús Carlsen og ítalskættaði Bandaríkjamaðurinn Fabiano Caruana.

Margt óvenjulegt

Einvígið var fyrir marga hluti sérstakt. Leita þarf afturtil ársins 1990 til einvígis þar sem tveir stigahæstu skákmenn heims mætist, enþá tefldu Kasparov og Karpov fimmta einvígi sitt um titilinn. Enn fremur varþetta í fyrsta skipti síðan í Reykjavík 1972 sem Bandaríkjamaður tefldi umæðstu metorð í skákheiminum. Og þetta var í fyrsta skipti í sögunni sem öllumskákum heimsmeistaraeinvígis lauk með jafntefli. Einvígið var alls 12 skákir enhér áður fyrr, t.d. í Reykjavík 1972, voru tefldar 24 skákir. Margir gagnrýna hversustutt einvígin eru í dag, en það verður óneitanlega til þess að keppendur takaminni áhættu.

Vel teflt einvígi

Einvígið var afar vel teflt, sennilega best tefldaheimsmeistaraeinvígi sögunnar en þó ekki besta einvígi sögunnar. Báðir tefldu varfærnislegaog tóku litla áhættu. Magnús var nærri sigri í fyrstu skákinni. Caruana átti vinningsleiðí sjöttu skákinni sem var varla fyrir mannlegan mátt að finna þótt tölvurnar hafifundið einstigi til sigurs.

Caruana kom almennt betur undirbúinn til leiks og fékkheimsmeistarinn aldrei neitt út úr byrjuninni þegar hann hafði hvítt. Skákirnarþegar Magnús hafði svart voru skemmtilegri. Lokaskákin var t.d. æsispennandi ensvo bauð Carlsen allt í einu jafntefli, mörgum til mikillar undrunar, með betristöðu og meiri tíma. Norðmaðurinn virtist ekki vilja taka neina áhættu ogvirtist telja sig vera í góðum málum ef það yrði jafnt. Þá er nefnilega teflt tilþrautar með styttri umhugsunartíma.

Heimsmeistarinn var mikið gagnrýndur fyrir ákvörðunina.Meðal annars lét Garrí Kasparov hann heyra það og lýsti því yfir að hann teldi hannekki lengur sigurstranglegri því hann virtist vera að fara á taugum. Carlsensvaraði því heldur betur við skákborðið því hann einfaldlega rúllaði yfirBandaríkjamanninn í bráðabananum, þar sem tefld var atskák, 3-0. Spurður umummæli Kasaparov sagði hann heimsmeistarann fyrrverandi hafa rétt á því að hafaheimskulegar skoðanir. Það virðist enginn standast Norðmanninum snúning þegarumhugsunartíminn styttist.

Eftir á lýsti Magnús því yfir að hann hefði ekki teflt afturheimsmeistaraeinvígi hefði hann tapað, sem skýrir kannski eitthvað varfærni hansvið skákborðið.

Breytt fyrirkomulag?

Eftir einvígið hefur mikið verið í umræðunni að breyta þurfifyrirkomulaginu. Sá sem þetta ritar er ekki sannfærður. Einvígið vakti miklaathygli í heimspressunni og komst t.d. á forsíðu Financial Times. Stærstusjónvarpsstöðvar Bandaríkjanna fylgdu sínum manni yfir Atlantshafið. Norskaríkissjónvarpið, NRK, var allan tímann á staðnum og tók meðal annars viðtal viðÞröst Þórhallsson, sem var fyrsti stórmeistarinn sem Magnús náði jafntefli gegn,en þá var Magnús aðeins 10 ára.

Fjallað var um einvígið á forsíðu Financial Times.

Það er ekki nýtt að mörg jafntefli verði í heimsmeistaraeinvígiþegar tveir sterkir skákmenn tefla. Kasparov og Karpov gerðu eitt sinn 17jafntefli í röð. Jafntefli eru líkleg úrslit þegar tveir afar sterkir skákmennmætast.

Aðrir eru ósáttir við að úrslitin ráðist í skákum meðstyttri tímamörkum. Áður var það þannig að heimsmeistarinn hélt jafntefli ájöfnu og hafa sumir viljað taka það upp. Benda þeir að þá sé meiri pressa ááskorandann, sem þurfi að vinna skák. Taki hann hins vegar áhættu og tapi þarfhann að vinna tvær skákir, sem getur verið nánast ógerlegt. Umræðan verðurörugglega mikil á komandi mánuðum. Næsta heimsmeistaraeinvígi fer fram árið2020.

Þröstur í viðtali á NRK.

Aðstæður í Lundúnum

Greinarhöfundur fór í fyrsta skipti á heimsmeistaraeinvígi. Tefltvar í miðborg Lundúna, á Holborn-svæðinu. Keppendur tefldu bak viðhljóðeinangrað glervegg. Áhorfendur gátu þaðan horft á þá og haft aðgang að símum.Judit Polgar var með skákskýringar á skákstað og gerði það vel. Þeim varsjónvarpað um netið.

Rýmið var hins vegar þröngt og lentu áhorfendur í því að fát.d. aðeins klukkutíma inni í skáksal. Alþjóða skáksambandið hefur búið viðkrísuástand undanfarin ár, sem hefur meðal annars orðið til þess aðdagsetningar hafa legið seint fyrir á stórum skákviðburðum. Bundnar eru vonirvið að nýr forseti þess, Arkady Dvorkovitsj, muni takast að breyta stöðuskákhreyfingarinnar.

HM í Reykjavík árið2022?

Einvígi aldarinnar fór fram í Reykjavík árið 1972. Árið 2022verður því hálf öld síðan það var haldið í Laugardalshöll, en það var ein mestalandkynning sem landið hefur fengið fyrr eða síðar. Minnast þarf þeirratímamóta, og hvernig væri það betur gert en einmitt með nýjuheimsmeistaraeinvígi hérlendis?

Ísland getur sennilega boðið upp á einn glæsilegasta vettvangí heimi, Hörpu. Þar er allt til staðar. Landkynningin yrði gríðarleg. TilLondon kom fjöldi gesta víðs vegar frá í heiminum. Blaðamennirnir voru íhundraðavís. Ekki yrði það minna ef einvígið yrði haldið hér.

Áhuginn á Íslandi og einvíginu er gríðarlegur. Hægt væri aðminnast einvígisins með opnun sýningar um einvígi aldarinnar, fara með gesti aðleiði Fischers og sýna einvígisborðið sem nú er geymt í Þjóðminjasafninu. Rétt væriað hafa einhverja viðburði í Laugardalshöllinni, t.d. upphafsblaðamannafundinn.

Það yrði svo algjör happdrættisvinningur ef Bandaríkjamaðurtefldi hérlendis. Gæti það gerst að Bandaríkjamaður endurtæki afrek Fischers 50árum síðar – einnig í Reykjavík?

Greinarhöfundur ræðir við Dvorkovich í London.

Sá sem þetta ritar ræddi málið á meðan á heimsmeistaraeinvíginuí Lundúnum stóð við Arkady Dvorkovitsj, nýkjörinn forseta FIDE, sem leist vel áhugmyndina. Hann hefur þegar staðfest komu á GAMMA Reykjavíkurskákmótið í aprílnæstkomandi og er reiðubúinn að hitta íslenska ráðamenn.

Að halda heimsmeistaraeinvígi er ekki ókeypis. Aðeinsverðlaunafé, skattar og þóknun til FIDE er um tvær milljónir evra. Það er ljóstað slíkt einvígi yrði ekki haldið hérlendis án veglegs stuðnings ríkis, borgar ogeinkaaðila, þá bæði innlendra og erlendra.

Að mati undirritaðs á hér að tefla til sigurs! Þetta yrðistærsti viðburður sem Ísland hefur staðið fyrir um áratugaskeið.

Höfundur er forseti Skáksambands Íslands.

Greinin birtist í vetrarhefti Þjóðmála, 4. tbl. 2018. Hægt er að gerast áskrifandi að Þjóðmálum með því að senda tölvupóst á askrift@thjodmal.is eða skilaboð á facebook síðu ritsins. Ritið færst einnig í lausasölu í verslunum Pennans/Eymundsson.

Previous
Previous

Þroskasaga fyrirliðans

Next
Next

Læs en ekki skrifandi