Einstakur árangur Armena

Skákkennsla í skólum hefur verið afar heitt efni innanskákheimsins og hefur nýr forseti FIDE, Arkady Dvorkovich, aukið mjög áherslu sambandsinsá skák í skólum.

Sífellt fleiri lönd hafa eflt sína skákkennslu í skólum.Svíar hafa undanfarið verið öflugastir Norðurlandaþjóðanna og svo hafa Norðmennmikinn áhuga á skák – en hafa þrátt fyrir að hafa sjálfan Magnús Carlsen glímtvið skort á fjármagni og afþökkuðu nýlega styrk upp á 730 milljónir króna einsog við förum betur yfir hér á eftir.

Skákkennsla í skólum á Íslandi hefur lengi verið til staðar– í marga áratugi. Við eigum marga afar færa skákkennara og –þjálfara; bæðiskákmenn sem hafa lagt fyrir sig skákkennslu og einnig hinn hefðbundna kennarasem hefur kennt skák samhliða annarri kennslu. Skákkennslan í skólum á Íslandier hins vegar nokkuð tilviljunarkennd og hefur að miklu leiti stjórnast afáhuga skólastjórnenda. Er hún minna miðstýrð en víða erlendis. Fáir hafa náðbetri árangri en Helgi Árnason í Rimaskóla en í augnablikinu er staðan þannigað sterkustu skákskólarnir eru flestir í Kópavogi.

Greinarhöfundur ásamt Lputian, Dvorkovich og ráðherra sem heldur á kennsluefni frá armenska skákskólanum.

Skáksambandið fékk hingað til lands í kringum síðasta GAMMA Reykjavíkurskákmót Smbat Lputian, skólastjóra armenska skákskólans. Hann hitti meðal annars menntamálaráðherra og fór yfir það sem hefur verið gerast í skákkennslumálum í Armeníu og víðar.

Engin þjóð sinnir betur skákkennslu í skólum en Armenar. Þarhefur skák verið skyldufag í skólum síðan 2011. Þessi fámenna þjóð, sem telurum tvær milljónir, er ein allra sterkasta skákþjóð heims. ÞrefaldirÓlympíumeistarar.

Það er ekki nóg með að Armenar styðji við skákkennsluna afstórkostlegum krafti, heldur hafa þeir gert samhliða ýmsar rannsóknir á árangriskákennslunnar. Tæplega 20 manns við Háskólann í Jerevan hafa verið að skoða árangurinnog niðurstöðurnar eru sláandi.

Það bætir námsárangur og félagsfærni að læra skák

Undirritaður sótti í maí síðastliðnum ráðstefnu í Armeníu umskák í skólum. Þar mættu margir af helstu forkólfum skákarinnar, svo sem JuditPolgar, sterkasta skákkona allra tíma, og Nigel Short, einn varaforseta FIDE ogfyrrverandi áskorandi um heimsmeistaratitilinn. Þar fór fjöldi armenskravísindamanna yfir árangurinn af skákkennslunni auk þess sem gestir rædduárangurinn í sínum löndum.

Niðurstaða armensku vísindamannanna er afgerandi. Það eykurnámsárangur og rökhugsun að læra skák. Það hefur einnig komið í ljós að skákeykur félagsfærni og dregur um leið krakkana frá snjalltækjunum.

Í heimsókn forseta FIDE til Íslands lofaði hann meðal annarsstuðningi við skákkennslu í skólum á Íslandi. Formaður skólaskáknefndar FIDE eráðurnefndur Lputian. Bæði hann og Dvorkovich eru miklir áhugamenn um skák áÍslandi og finnst landið tilvalinn vettvangur fyrir frumþróunarverkefnihérlendis sem gengi ekki síst út á það að styðja við skákkennara.

FIDE og armenski skákskólinn eru tilbúin að leggja meðalannars fram kennsluefni sem við gætum nýtt okkur til að hjálpa til við skákkennsluí skólum. Velvilji Dvorkovich og Lputian gagnvart Íslandi er augljós.

Tækifærin og grunnurinn eru til staðar. Forseti FIDE kom áframfæri loforði um stuðning við skákkennslu á Íslandi. Með stuðningi FIDE,opinberra aðila og einkaaðila getum við byggt ofan á þann góða grunn sem er tilstaðar.

Ekki er svo verra að í kaupbæti fylgir bættur námsárangur,meiri rökhugsun og aukin félagsfærni komandi kynslóða!

Skáksamband Noregs afþakkaði 730 milljóna styrk

Frá ráðstefnunni í Armeníu. Lputian, Polgar og Short.

Aðalfundir skáksambanda úti í honum stóra skákheimi vekja iðulega ekki mikla athygli. Það átti þó alls ekki við umaðalfund norska skáksambandsins sem fram fór 7. júlí sl.

Skáksambandið í Noregi fékk vilyrði upp á stuðning upp á 730milljónir (50 milljón norskar krónur) gegn því að berjast fyrir því að einokuná norskum veðmálamarkaði yrði afnumin. Sá sem bauð styrkinn er maltverska veðmálafyrirtækiðKindred, sem rekur veðmálasíðuna Unibet.

Í Noregi er kerfið áþekkt og á Íslandi. Norsk tipping erþeirra Íslensk getspá og hefur einkaleyfi á veðmálum í Noregi. Danmörk ogSvíþjóð hafa hins vegar leyft veðmálafyrirtækjum að starfa þarlendis en þó meðströngum skilyrðum og þau þurfa að sækja um leyfi.

Skáksambands Noregs er fyrir utan Norsk tipping, rétt einsog t.d. Skáksamband Íslands og Bridgesamband Íslands eru hérlendis. Norskaskáksambandið hefur lengi verið fjárvana og sáu forráðamenn Skáksambandsins þarnafrábært tækifæri til að breyta því.

Norskur skákheimur fór hins vegar gjörsamlega á hliðinaþegar þetta varð ljóst. Stjórn skáksambandsins klofnaði og varaforsetinn beittisér gegn samningum. Mörg skákfélög lýstu yfir andstöðu og sögðu að skáksambandiðætti að halda sig fyrir utan pólitísk álitamál.

Heimsmeistarinn blandar sér í málin

Þá kom til sögunnar heimsmeistarinn Magnús Carlsen. Sá varheldur betur ekki sáttur við andstöðuna við samninginn og lýsti yfir eindregnumstuðningi við hann. Sagði annað vera svik við bestu skákmenn þjóðarinnar ogsíðast en ekki síst framtíð skákarinnar. Flestir bestu skákmenn þjóðarinnar studduMagnús en þó ekki allir. Þar var stórmeistarinn Simen Agdestein, fyrrverandi þjálfariMagnúsar og bróðir umboðsmanns hans, fremstur í flokki sem beitti sér mjög gegnsamningum.

Magnús Carlsen var kampakátur með sigurlaunin í Zagreb - en væntanlega ekki jafn ánægður með niðurstöðu aðalfundar norska skáksambandsins.

Segja má að í grundvallaratriðum hafi norski skákheimurinn skipst í tvennt. Hinir virku skákmenn sáu aukin tækifæri sem földust í auknum fjármunum; að senda fleiri unga skákmenn á mót, ráða erlenda þjálfara og styrkja betur við efnilegustu skákmennina.

Hins vegar voru hinir almennu klúbbaskákmenn sem stjórnaflestum taflfélögunum. Fyrir þá skipta auknir fjármunir í skákhreyfingunni ekkiöllu máli. Þeir geta teflt sem fyrr einu sinni í viku í sínu félagi. Hinir yngrieru sjálfsagt einnig vanari því að geta veðjað þegar þeim hentar án landamæra. Munaekki þá tíma þegar fyllti þurfti út getraunaseðla og skila inn í tæka tíð álaugardögum!

Heimsmeistarinn var alls ekki sáttur. Á meðan hann tefldi á alþjóðlegu móti í Zagreb í Króatíu, sem hann vann reyndar mjög örugglega, setti hann nokkur skeyti á Facebookspjallþráð um samninginn. Sagði afstöðu „nei-manna“ lýsa algjöru metnaðarleysi fyrir hönd skákarinnar. Heimsmeistarinn greip til þess að stofna nýtt skákfélag, Offerspill, og bauðst til að borga meðlimagjaldið til norska skáksambandsins fyrir fyrstu 1.000 félagsmennina, sem hann og gerði. Það samsvarar um átta milljónum íslenskra króna.

Allt fór gjörsamlega á annan endann í Noregi. Fjölmiðlarfjölluðu lítið um mótið í Zagreb en því meira um átökin í skákhreyfingunni og afskiptiMagnúsar.

Sakaður um tilraun til valdaráns

Heimsmeistarinn var sakaður um tilraun til valdaráns og varhart gagnrýndur. Hann hafði líka leyft sér að vera ósáttur við að norskaskáksambandið valdi Stafangur sem vettvang fyrir heimsmeistaraeinvígið 2020 enekki Ósló eða Bærum, sem Magnús vildi miklu frekar. Stafangur dró að lokumtilboð sitt til baka vegna andstöðu Magnúsar. Á þessari stundu er óljóst hvortNorðmenn bjóði í einvígið, en FIDE framlengdi frestinn til að sækja um einvígið2020 um tvo mánuði fram í september – sennilega til að gefa Norðmönnum annanmöguleika á að sækja um.

Deilt var um hvort félag Magnúsar ætti að hafa atkvæðisréttá aðalfundinum og blönduðu virtir norskir lögmenn sér í málið. Magnús vareinnig sakaður um að njóta persónulegs ávinnings en neitaði því staðfastlega. Sagðisthann bara hafa hagsmuni skákarinnar að leiðarljósi, sem ég trúi að sé rétt.

Svo fór að samkomulag náðist um að félagið fengi aðeins sexfulltrúa á aðalfundinum en ekki 41 eins og meðlimafjöldinn sagði til um.

Samningurinn kolfelldur

Þegar kom að fundinum var metaðsókn og hann stóð í sex tíma.Tillagan um samninginn við Kindred var kolfelld 44-132 og ljóst var að atkvæðifélags Magnúsar hefðu engu máli skipt. Forseti Skáksambandsins, Morten L. Madsen,sem var eindreginn stuðningsmaður samningsins, var hins vegar endurkjörinn forsetisambandsins.

Málið allt hefur hins vegar vakið mikla umræðu í Noregi.Íþróttamálaráðherrann þar hefur léð máls á því að skákin fái stuðning í gegnumNorsk Tipping þrátt fyrir að vera ekki í Íþróttasambandi Noregs eða mögulega beinanaukinn stuðning frá ríkinu.

Kindred náði tilgangi sínum að miklu leyti og það án þess aðborga 50 milljónir norska króna. Þrýstingur á að einokun Norsk Tipping ánorskum veðmálamarkaði verði afnumin hefur aukist.

Mun Kindred reyna það sama í öðrum löndum?

Höfundur er forseti Skáksambands Íslands.

Aðalmynd frá Wooden Chess

Greinin birtist í sumarhefti Þjóðmála, 2. tbl. 2019. Hægt er að gerast áskrifandi að Þjóðmálum með því að senda tölvupóst á askrift@thjodmal.is eða skilaboð á facebook síðu ritsins. Ritið færst einnig í lausasölu í verslunum Pennans/Eymundsson

Previous
Previous

Kjarninn í umræðunni

Next
Next

Lilja: Þurfum að gæta að íslenskum hagsmunum í EES samstarfinu