Svart og sykurlaust

Í nýrri aðgerðaráætlun gegn sykurneyslu Íslendinga, semunnin var af Landlæknisembættinu fyrir Heilbrigðisráðuneytið, er mælt með aðskattur verði lagður á sykraða og sykurlausa gosdrykki og sælgæti í þeim tilgangiað hækka verð þeirra um að minnsta kosti 20%. Auk sykurskatts leggur áætlunin meðalannars til að sjoppur hætti að bjóða upp á tilboð á óhollum vörum og aðverslanir haldi ekki lengur úti svokölluðum nammibörum.

Þrátt fyrir að aðgerðaráætlunin innihaldi margar tillögur umhvernig ríkið ætli að stýra neyslu landsmanna hefur tillagan um 20% sykurskattfengið mesta athygli, og ekki að ástæðulausu. Ef hugtakið „íslenskur sykurskattur”hljómar kunnuglega í eyrum er ástæðan líklegast sú að ekki eru nema fjögur ársíðan síðasti sykurskattur var afnuminn af ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins ogFramsóknarflokksins. En eins og trufflusvín hefur Landlæknisembættið grafiðsykurskattinn upp á ný og hyggst beita honum í þágu lýðheilsu Íslendinga.

Málsvarar sykurskattsins benda á að þær verðhækkanir semskatturinn mun líklegast orsaka hafi þau áhrif að eftirspurn á sykruðum vörumminnki og neysla á slíkum vörum muni dragast saman. Rannsóknir á tilfellum þarsem neyslusköttum hefur verið beitt til að stýra neyslu almennings frá óhollum matvælumsýna fram á að verðhækkanir séu líklegar til að hafa áhrif á eftirspurn, þótt breytinginsé í flestum tilfellum smávægileg.

Í Danmörku hækkaði verð á smjöri um 13,1% þegar skattur varlagður á fiturík matvæli árið 2011, en í kjölfarið dróst sala á smjöri saman um5,5%. Sykurskattur í Finnlandi olli 14,8% verðhækkun á sætindum og 7,3%verðhækkun á gosdrykkjum, en einungis 2,2% minnkun á neyslu sætinda og aukninguí neyslu gosdrykkja. 10% skattur á sykraða drykki í Mexíkó, sem er fátækastalandið sem hefur innleitt slíka skatta, hafði þau áhrif að sala á sykruðumdrykkjum dróst saman um 6,6%.

Slíkar breytingar á neyslu koma síður en svo á óvart. Eingrunnkenninga hagfræðinnar segir okkur að þegar verð hækkar minnkar eftirspurn,sem er ágætis grundvallarhugmynd, en líkt og með margar alhæfingar um mannlega hegðunfelst í henni ákveðin einföldun. Erfitt getur verið að spá fyrir um hversumikil breytingin verður og ófyrirséðar afleiðingar verðhækkana koma oft seint íljós.

Neyslumynstur einstaklinga er flókin vél með fjölmörg(mis)vel smurð tannhjól, og þótt verðhækkanir hafi vissulega áhrif á eftirspurneftir ákveðnum vörum er verð ekki það eina sem stýrir neysluvenjum einstaklinga.

Einn þeirra þátta sem hafa hvað mest áhrif á hvernigneytandi bregst við verðhækkun á ákveðinni vöru er hversu mikilvæg varan erfyrir neytandann, eða hversu „teygjanleg” eftirspurnin er. Eftirspurn eftireldspýtum er til dæmis fremur teygjanleg, þar sem ólíklegt er að eldspýturspili mikilvægan þátt í neyslumynstri einstaklinga. Matur og drykkur á sér hinsvegar stóran sess í fjárhag heimila og þess vegna eru neytendur ólíklegir tilað gera miklar breytingar á neyslumynstri sínu nema verðbreyting séumfangsmikil.

Hands off my Irn-Bru

Við þurfum ekki að leita langt til að finna dæmi umafleiðingar sykurskatts, því sem fyrr segir var sykurskattur settur á hér álandi árið 2013 og afnuminn aðeins tveimur árum síðar. Í skýrsluRannsóknarseturs verslunarinnar um áhrif íslenska sykurskattsins á verð ogneyslu kemur fram að skatturinn hafi haft afar lítil áhrif á bæði verð ogneyslu sykraðra matvæla. Var það helsta ástæða þess að skatturinn stóð í einsskamman tíma og raun ber vitni.

Svar Landlæknisembættisins við þessum niðurstöðum var aðskatturinn hefði ekki verið nægilega lengi við lýði og ekki verið nægilega hár.Í frétt Ríkisútvarpsins sem birtist hinn 24. júlí þessa árs kom fram að skatturinnhefði ekki gengið nægilega langt og að neytendur hefðu ekki fundið nægilega fyrirhonum, sem væri ástæða þess að fyrirhuguð verðhækkun yrði að minnsta kosti 20%,en hækkunin var aðeins verið í kringum 5% árið 2013.

Erfitt er að deila um að 20% verðhækkun muni hafa áhrif áneysluhegðun einstaklinga, sér í lagi neysluhegðun lágtekjufólks. Sterkar vísbendingareru fyrir því að sykurskattar, og svokallaðir syndaskattar almennt, hafi hlutfallslegameiri áhrif á lágtekjufólk en aðra. Lágtekjufólk er líklegra til að eyða hærra hlutfallitekna sinna á vörur sem falla undir slíka skatta og er ólíklegra til að geramiklar breytingar á neyslu sinni.

Samkvæmt rannsókn bresku hagstofunnar Office for NationalStatistics á áhrifum skatta á tekjur heimila árið 2018 eru miklar líkur á þvíað óbeinir skattar, eins og sykurskattur, geti leitt til aukins ójafnaðar, þarsem skatturinn hafi margfalt minni áhrif á hátekjufólk en lágtekjufólk.Samkvæmt rannsókn bresku hugveitunnar Institute of Economic Affairs ásykursköttum er lágtekjufólk einnig líklegt til að skipta yfir í ódýrarisykraðar vörur eða versla í auknum mæli í afsláttarverslunum, sem gæti haft neikvæðáhrif á mataræði þess.

Sykurskattar hafa þó ekki aðeins áhrif á þá sem neytaskattlagðra vara, heldur eru dæmi um að skatturinn hafi óbein áhrif sem gætir víðaí samfélaginu.

Árið 2016 tilkynnti George Osborne, þá fjármálaráðherraBretlands, að allir drykkir sem innihéldu meira en fimm grömm af sykri yrðuskattlagðir frá og með apríl 2018. Yfirlýst markmið skattsins var að kljást viðvaxandi tíðni offitu í Bretlandi með því að hvetja framleiðendur til að minnkasykurmagn í drykkjum sínum. Ávaxtasafar, mjólkur- og kaffidrykkir voruundanþegnir skattinum.

Áætlaður hagnaður af skattinum var um hálfur milljarðurpunda, eða tæplega 80 milljarðar íslenskra króna, á ári. Fljótlega kom í ljósað sú áætlun væri of metnaðarfull, en í fjárhagsáætlun Breta árið 2017 hafðiáætlaður hagnaður ríkissjóðs fallið um tæplega helming. Það að auki áætlaðigreiningarstofnunin Office for Budget Responsibility að skatturinn myndi aukaverðbólgu um rúmlega fjórðung úr prósenti, sem myndi auka vaxtagreiðslur ávísitölutengdum ríkisverðbréfum um einn milljarð punda.

Til að forðast skattinn ákváðu margir gosdrykkjaframleiðendurað breyta innihaldi drykkja sinna og minnka sykurmagn þeirra, oft með því aðskipta út sykri og gervisætuefnum eins og sakkarín eða aspartam. Stuðningsmennskattsins hafa hampað þessari þróun sem sigri en aðrir benda á að þótt sætuefnieins og aspartam minnki hitaeiningar í gosdrykkjum geti þau einnig haft neikvæðáhrif á heilsu.

Auk þess segja andstæðingar skattsins að gosdrykkir séueinfaldlega verri á bragðið eftir skattinn. Aðdáendur skoska gosdrykkjarins Irn-Brumótmæltu heiftarlega þegar framleiðandi drykkjarins tilkynnti að skipta ætti útsykri fyrir aspartam í drykknum í kjölfar skattsins. Tóku neytendur þá til ráðsað stofna undirskriftalista og koma upp varabirgðum af sykruðum Irn-Bru, en TheGuardian greinir frá hreyfingunni sem tók upp slagorðið „Hands off my Irn-Bru“.

Engar vísbendingar um bætta heilsu

Þegar áhrif sykurskatts á neyslu almennings eru rædd er eittsem ekki má gleyma; grundvallarmarkmið sykurskatts er ekki einungis að minnkaneyslu á sykruðum vörum heldur einnig að bæta heilsu almennings og minnka offitu.

Þrátt fyrir að sykurskattur hafi gjarnan leitt tilsmávægilegrar minnkunar á neyslu sykurs þar sem hann hefur verið innleiddur ererfitt að sýna fram á að skatturinn hafi nokkurs staðar haft áhrif á heilsu eðatíðni offitu. Þar sem sykurskattur hefur verið innleiddur í Bandaríkjunum, þará meðal í Berkley, San Francisco og Philadelphiu, hafði hann engin mælanlegáhrif á offitu. Jafnvel í umdæmum þar sem verð á sykruðum matvörum hækkaði ogneysla dróst töluvert saman hafði skatturinn engin áhrif á heilsu.

Enn fremur eru engar vísbendingar um að sykurskatturinn íBretlandi hafi haft áhrif á heilsu eða offitu, en skýrsla Institute of EconomicAffairs bendir á að tíðni offitu hafi haldist nær óbreytt frá árinu 2006.

Vanhugsaður skattur

Þegar litið er á tilfelli þar sem sykurskattur hefur veriðinnleiddur verður að teljast ólíklegt að sykurskatturinn sem stungið er upp á íaðgerðaráætlun Landlæknisembættisins muni hafa mikil áhrif á heilsu Íslendinga.

Það sem er frábrugðið við tillöguna nú er að skatturinn munná yfir sykurlausa gosdrykki jafnt sem sykraða gosdrykki, verði hann að veruleika.Þar sem eitt yfirlýstra markmiða sykurskatta í öðrum löndum, meðal annars íBretlandi, var að hvetja framleiðendur til að bjóða upp á breiðara úrvalsykurlausra gosdrykkja virðist þessi ákvörðun taktlaus. Sérstaklega í ljósiþess að sykruð jógúrt, sem inniheldur oft mikið magn af sykri, fellur til dæmisekki undir skattinn.

Í grein Ólafs Stephensen, framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda, sem birt var í Viðskiptamogganum 26. júní, kemur fram að forsendur tillögunnar séu byggðar á gömlum og röngum gögnum, þar sem ekki séu til nýrri tölur um sykurneyslu Íslendinga en frá 2012, sem bendir til þess að skatturinn sé vanhugsaður og lagður til á lélegum forsendum.

Líklegt er að sykurskatturinn muni þvinga kostnaði upp áneytendur og valda óþörfum flækjum á neysluskatti. Þótt mögulegt sé að svo hárskattur muni breyta neysluvenjum sumra bendir fátt til þess að skatturinn muni hafaraunveruleg áhrif á heilsu Íslendinga eða minnka offitu.

Það eina sem skatturinn er fullvís um að minnka erpersónuleg ábyrgð einstaklinga á eigin heilsu og mataræði.

Höfundur er blaðamaður og stjórnmálafræðinemi.

Greinin birtist í sumarhefti Þjóðmála, 2. tbl. 2019. Hægt er að gerast áskrifandi að Þjóðmálum með því að senda tölvupóst á askrift@thjodmal.is eða skilaboð á facebook síðu ritsins. Ritið færst einnig í lausasölu í verslunum Pennans/Eymundsson.

Previous
Previous

Maríusystur í Darmstadt

Next
Next

Kjarnarugl