Hver ætlar að taka slaginn?
Það er vinsæll frasi um að leiðin til heljar sé vörðuð góðumásetningi. Frasinn lýsir því hvernig einstaklingar, með góðum ásetningi, takaákvarðanir eða framkvæma eitthvað án þess að vita eða sjá fyrir hvaðaafleiðingar það hefur til lengri tíma. Mannkynssagan geymir mörg dæmi um þetta.
Einstaklingar taka ákvarðanir sem byggja á þeirri þekkingusem þeir búa yfir. Enn hefur ekki komið fram sá einstaklingur sem getur séðframtíðina fyrir, þó alltaf sé nóg til að svokölluðum eftiráspekingum. En súþekking sem menn búa yfir hverju sinni er mikilvæg. Það er ekki síður mikilvægtað hún byggi á réttum upplýsingum og staðreyndum – en ekki tilfinningum eðaöðrum hvötum.
***
Það væri hægt að tala mikið og lengi um það hver sé ábyrgurfyrir því að koma réttum upplýsingum á framfæri. En við skulum halda okkur viðstjórnmálin, því þar eru, því miður, stærstu ákvarðanirnar teknar.Stjórnmálamenn eru, að mestum hluta, eins og annað fólk. Þeir taka ákvarðanirsem oftast byggja á þeirri þekkingu sem þeir ýmist búa yfir eða þekkingu sem ermötuð ofan í þá af embættismönnum. Alla virka daga ársins starfa einstaklingará launaskrá hjá hinu opinbera sem eru haldnir þeim misskilningi að þeim séfalið það hlutverk hér á jörðinni að taka ákvarðanir um líf okkar hinna. Íþeirra huga er ekki til það vandamál sem ekki má leysa með lögum ogreglugerðum. Það gengur stundum svo langt að það er óljóst hvort kemur á undan,reglurnar eða vandamálin, líkt og með eggið og hænuna.
***
Þessi ofurtrú á hið opinbera vald er allsráðandi. Of margirstjórnmálamenn, hvar sem þeir standa á hinu pólitíska litrófi, halda hægt sé aðbæta heiminn með nýjum reglugerðum, stærra ríkisvaldi, auknum afskiptum afhagkerfinu og síðast en ekki síst opinberu fjármagni.
***
En það er þetta með upplýsingarnar og þekkingu. Á þessumsíðum hefur áður verið vikið að svonefndri baráttu stéttarfélaganna um þessarmundir. Sú barátta fer fram á grundvelli hugmyndafræði sósíalismans, svo einkennilegtsem það kann að hljóma í lok árs 2018 þegar vitað er að um 100 milljónir mannahafa fallið í valinn vegna þessarar sömu hugmyndafræði. Hér stendur ekki til rekjaþær kröfur sem forystumenn stéttarfélaganna hafa lagt fram, bæði gagnvart atvinnulífinuog stjórnvöldum.
Þess í stað má velta upp þeirri ábyrgð sem atvinnulífið berá því að koma réttum upplýsingum á framfæri – og svo að það sé sagt hreint út,að berjast fyrir kapítalismanum.
Í viðtali Þjóðmálavið Dr. Eamonn Butler, framkvæmdastjóra Adam Smith-stofnunarinnar í London, sembirt var í sumarhefti ritsins, var hann meðal annars spurður að því hvort aðeinstaklingar í atvinnulífinu væru of ragir við að tala um kapítalismann ogfrjálsa markaði. Dr. Butler benti réttilega á að hlutverk stjórnenda íatvinnulífinu væri að reka fyrirtæki, þeir væru ekki stjórnmálamenn og þyrftu íraun ekki að reka pólitísk erindi. „Þeir eru heldur ekkistjórnmálaheimspekingar en þurfa þess í stað að ráða gott fólk til starfa fyrirhagsmunasamtök atvinnulífsins. Fyrir utan það að gæta hagsmuna atvinnulífsins ogfyrirtækja í praktískum atriðum er það jafnframt hlutverk þeirra að huga aðhugmyndafræðinni um frjálsa markaði, lægri skatta o.s.frv.,“ bætti Dr. Butlervið.
***
Allt er þetta satt og rétt. Stjórnendur í atvinnulífinu hafaí nógu að snúast við rekstur fyrirtækja og takmarkaðan tíma til að sinnastjórnmálum eða hugmyndabaráttu. Þá er hins vegar vert að spyrja, er nóg að hagsmunasamtökatvinnulífsins sinni þessari baráttu?
Hér landi starfa sem betur fer öflug samtök sem gætahagsmuna atvinnulífsins og það hefur verið ánægjulegt að fylgjast með störfum þeirrasíðustu ár. Flestir þeirra aðila, bæði karlar og konur, sem stýra helstu hagsmunasamtökumatvinnulífsins virðast átta sig á mikilvægi þess að glíma ekki bara viðpraktísk málefni dagsins heldur nýta þau tækifæri sem gefast til að tala fyrirauknu frelsi, lægri sköttum, minni afskiptum hins opinbera o.s.frv. Allt er þaðmikilvægt.
En það þarf meira til. Það þurfa fleiri óháðir aðilar aðláta til sín taka í baráttunni. Innan anga atvinnulífsins leynast mismunandi hagsmunirsem ekki fara alltaf saman og eftir tilvikum litast starf hagsmunasamtakanna afþví. Þetta er ekki sagt til að gera lítið úr starfi þeirra, heldur til aðítreka þörfina á því að fleiri láta til sín taka í hugmyndabaráttunni. Allt atvinnulífiðhefur hagsmuni af því að minnka ríkisvaldið, lækka skatta, fækka reglugerðum ogdraga úr opinberu eftirliti.
***
Góð stefnumótum byggir á góðum upplýsingum og atvinnulífiðber að hluta til ábyrgð á því að koma þeim upplýsingum á framfæri. Auðveldalausnin er alltaf að stækka ríkisvaldið. Það verður sárt fyrir stjórnendur atvinnulífsins,sem nenntu hvorki að leggja fjármagn né tíma í hugmyndabaráttuna, að vakna einndaginn upp við sósíalisma. Halda menn að íslenskir sósíalistar séu á einhvern háttmildari en útlenskir?
***
En að öðru. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingmaðurSjálfstæðisflokksins, skrifaði áhugaverða grein í Morgunblaðið þann 13. desember sl. Í greininni fjallar Áslaug Arna umþá staðreynd að ríkissjóður sé nú með um 300 milljarða króna bundna í íslensku bankakerfi,sé eigandi tveggja viðskiptabanka auk þess að reka Íbúðalánasjóð og Byggðastofnun.
Þá segir Áslaug Arna að á meðal margra stjórnmálamanna ríki„skrýtið, jafnvel fordómafullt, viðhorf í garð fjármálafyrirtækja,“ eins og húnkomst að orði. Hún bendir réttilega á að tíu árum eftir hrun séu margir þeirrarskoðunar að það eigi að refsa bönkunum sérstaklega, leggja á þá hærri skatta enönnur fyrirtæki (líkt og gert er á Íslandi) en að á sama tíma sé ætlast tilþess að þeir lækki vexti og gjöld og veiti góða þjónustu.
„Þeir sem benda á öfugmælin við þessa þróun eru sakaðir umað vera málsvarar fjármálaafla og þeim gerðar upp annarlegar hvatir. […] Þettaer ekkert annað en ódýr popúlismi og það sjá allir skynsamir einstaklingar,“ segirÁslaug Arna í grein sinni.
Það er bæði rétt og mikilvægt að hrósa Áslaugu Örnu fyrir aðhafa kjark og þor til að segja hlutina eins og þeir eru. Það er ekki draumurstjórnmálamanna að vera sakaðir um að vera málsvarar hinna illu fjármálaafla.
Umsvif ríkisins á fjármálamarkaði eru hættulega mikil. Bankareru samt ekkert öðruvísi en önnur fyrirtæki. Þetta eru þjónustufyrirtæki sem núhorfa fram á miklar áskoranir í ljósi þeirrar tækniþróunar sem er að eiga sérstað. Hlutverk þeirra er að breytast – og jafnvel minnka frá því sem áður var.Fólk getur fengið kreditkort hjá öðrum en bönkum, greiðslumiðlun fer fram ífjölbreyttara formi en áður og það eru fleiri aðilar farnir að veita lán, svotalin séu upp nokkur atriði í þessari þróun. Það gefur því augaleið að ríkið áekkert erindi inn í þessa starfsemi og eina hlutverk eða aðkoma ríkisins aðrekstri fjármálafyrirtækja á að vera sú að skapa þeim skýrar en einfaldarreglur og koma því skýrt áleiðis að þeim verði ekki bjargað á kostnað skattgreiðendaef illa fer – ekki frekar en öðrum fyrirtækjum. Það er síðan hlutverk fjármálafyrirtækjannaað auka traust og ásýnd sína meðal almennings.
***
Til að tvinna þetta saman við fyrri umræðu umhugmyndabaráttuna, þá liggur fyrir að hlutverk atvinnulífsins er að sýna fram áað hagsmunir þess fari saman við hagsmuni launþega og almennings – sem þeirvissulega gera. Hvorugur getur án hins verið. Það er ekki alltaf auðvelt ogsérstaklega ekki þegar helstu stéttarfélögunum er stjórnað af æsingarfólki – enþessari baráttu þarf að sinna af heilum hug. Æsingamenn koma og fara enkapítalisminn og frelsið er vonandi komið til að vera.
Höfundur er ritstjóri Þjóðmála.
Greinin birtist í vetrarhefti Þjóðmála, 4. tbl. 2018. Hægt er að gerast áskrifandi að Þjóðmálum með því að senda tölvupóst á askrift@thjodmal.is eða skilaboð á facebook síðu ritsins. Ritið færst einnig í lausasölu í verslunum Pennans/Eymundsson.