Ærumissir í boði opinbers valds

Það er ágæt lexía fyrir þá sem telja stjórnmál dagsins í dag óvægin og hatrömm að lesa bók Davíðs Loga Sigurðssonar, Ærumissi. Bókin fjallar öðrum þræði um eitt átakamesta tímabil íslenskra stjórnmála, stjórnartíð Jónasar Jónssonar frá Hriflu sem dómsmálaráðherra 1927-1932. Tímabil þar sem ofríkur stjórnmálamaður beitti ríkisvaldinu til hins ýtrasta til að ná sér niður á andstæðingum sínum og til að umbylta íslensku þjóðfélagi.

Ærumissir
Höfundur: Davíð Logi Sigurðsson
Útgefandi: Sögur
Reykjavík, 2018
232 bls.

Sagan rekur þrautagöngu Einars M. Jónassonar, sýslumannsBarðstrendinga, frá því að Jónas frá Hriflu verður dómsmálaráðherra og læturþað verða eitt sitt fyrsta verk að setja Einar af. Inn í söguna blandast ungir lögfræðingarsem síðar verða áhrifamenn í íslensku samfélagi, einn verðandi þingmaður ogtveir verðandi forsætisráðherrar, skjólstæðingar Jónasar, þeir Bergur Jónsson, HermannJónasson og Stefán Jóhann Stefánsson.

Það er ljóst að ýmislegt mátti betur fara í rekstri Einars áembættinu. Einar var sýslumaður af gamla skólanum á þriðja áratug síðustualdar. Þá var margt venja sem okkur á 21. öldinni er algerlega framandi. Hanngerði ekki skýran greinarmun á eigin fjármálum og embættisins og eins og margiraðrir sýslumenn þess og fyrri tíma leit hann á ýmsar sporslur sem launabæturfrekar en eitthvað sem skila bæri í ríkissjóð. Hann var Jónasi því auðveldbráð.

En Jónasi nægði ekki að setja Einar af heldur var gengiðmjög hart að honum og teknar af honum allar eignir. Einar var stoltur maður ogþess handviss að hann gæti fengið embættið aftur, að réttlætið myndi sigra ogtók því ákvarðanir sem augljóslega gengu gegn hagsmunum hans. Þannig gróf hanneigin gröf og varð að hluta útskúfaður úr samfélagi heldri manna í Reykjavík áfjórða áratug tuttugustu aldarinnar.

Um leið og sagan rekur vandræði sýslumannsins fyrrverandi þáer saga Jónasar frá Hriflu rakin. Jónas var einn áhugaverðasti stjórnmálamaðurfyrri hluta síðustu aldar. Hann var einn stofnenda fyrsta stjórnmálaflokks vinstrimanna á Íslandi, Alþýðuflokksins, snemma árs 1916 og svo lykilmaður í stofnun Framsóknarflokksinsí desember sama ár, aðeins nokkrum mánuðum seinna.

Hann var gríðarlega duglegur og hugmyndaríkur en um leið varhann ósvífinn og ófyrirleitinn stjórnmálamaður sem sveifst einskis í sókn sinnitil valda. Það var og er lítill munur á stjórnlyndi þá og nú eins og sást best þegarKristján X. Danakonungur hitti Jónas á alþingishátíðinni 1930 og sagði viðhann: „Spiller De stadigvæk den lille Mussolini?“. Konungurinn sá í þeimskýrslum sem hann fékk frá Íslandi að á þeim sem lék aðalhlutverkið ístjórnmálum hér og var frumkvöðull vinstri flokkanna á Íslandi, var stigs eðastærðar en ekki eðlismunur í samanburði við fasistana í Suður-Evrópu.

Heift og ákefð og jafnvel innræti Jónasar á þessum tíma séstbest á því að hann lét sér ekki nægja að setja Einar af og gera hann eignalausanheldur sætti Jónas allra færa til að niðurlægja Einar, út yfir gröf og dauða. ÞegarJónas er síðar orðinn valdalaus og sér að hann nær ekki völdum aftur, bráir af honumog hann verður hatrammur andstæðingur helstefnu kommúnista og beitir sér afafli gegn þeim þótt það hafi í engri líkingu verið við ráðherraár Jónasar.

Davíð skrifar söguna lipurlega og fléttar inn í hanasögulegum þáttum og innsæi sem fyllir myndina og glæðir persónur og leikendur lífi.Sagan rekur þannig mikilvæga atburði í stjórnmálasögu undir lok þriðja og áfjórða áratugnum og fléttar þá inn í söguna. Bók Davíðs verður þannigskemmtileg skemmri skírn lykilatburða stjórnmála þess tímabils. Þannig fá þeirsem minna hafa lesið um þennan tíma góða innsýn í orðfæri og átök tímans.

Það sem stendur upp úr sögunni er hve hættulegt það er þegarósvífið fólk fær mikil völd þar sem lítið aðhald er. Sagan er harmleikurbreysks manns sem á bæði við ofurefli að etja og sjálfan sig. Allar ákvarðanir Einarshitta hann sjálfan fyrir og hann virðist ófær um að taka rétta ákvörðunstoltsins vegna. Þess vegna er þessi bók prýðisgóð saga, innsýn í Ísland 20.aldarinnar. Innsýn í einsleitt og einhæft þjóðfélag sem er horfið og við flestsöknum ekki mikið.

Höfundur er framkvæmdastjóri.

Bókarýnin birtist í vetrarhefti Þjóðmála, 4. tbl. 2018. Hægt er að gerast áskrifandi að Þjóðmálum með því að senda tölvupóst á askrift@thjodmal.is eða skilaboð á facebook síðu ritsins. Ritið færst einnig í lausasölu í verslunum Pennans/Eymundsson.

Previous
Previous

Ríki meðal ríkja, þjóð meðal þjóða

Next
Next

Miðstýring var verst fyrir konur