Áslaug Arna: Mikilvægt að vera trúr hugsjón sinni
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ritari Sjálfstæðisflokksinsog formaður utanríkismálanefndar Alþingis, var 26 ára gömul þegar hún settist áþing. Hún var þá orðin ritari flokksins. Þó svo að hún hafi áður verið formaðurHeimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, og setið í miðstjórn ogstjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna, segir hún aðspurð að það hafi ekkiverið markmið í sjálfu sér að fara svo ung út í stjórnmál. Röð atvika hafi þóorðið til þess, meðal annars fyrrnefndur landsfundur flokksins haustið 2015.
„Það er mikilvægt að ungt fólk láti til sín taka ístjórnmálum,“ segir Áslaug Arna meðal annars í ítarlegu viðtali í nýjasta heftiÞjóðmála.
„Það eykur fjölbreytileika og hefur jákvæð áhrif á þingið ogsamfélagið í heild. En ungt fólk þarf ekki að skilgreina sig út frá því einu,ekki frekar en að konur tali eingöngu máli kvenna eða að karlar tali eingöngumáli karla. Maður er einfaldlega talsmaður sjálfstæðisstefnunnar og hún nær tilallra aldurshópa, allra kynja og allra þjóðfélagshópa.“
Í framhaldi af þessari umræðu segir Áslaug Arna að það sémikilvægt að skapa þannig umhverfi að einstaklingar sjái sér fært að bjóða sigfram til að starfa í stjórnmálum, óháð aldri og kyni.
„Stjórnmálin þurfa að vera eftirsóknarverður vettvangur tilað starfa á,“ segir Áslaug Arna.
„Ég vildi óska þess að ég ætti auðveldara með að mæla meðþessu starfi. Það er vissulega að mörgu leyti skemmtilegra en ég hafði gert mérvonir um, en fyrst og fremst fjölbreyttara. Vinnan á bak við frumvörp, fundirmeð fólki og nefndarvinnan í þinginu eru til dæmis þættir starfsins sem sjástminna út á við en eru allir mjög mikilvægir. En auðvitað er þetta vinna semtekur mikinn tíma og fólk þarf að vera tilbúið að takast á við ýmiss konargagnrýni, bæði málefnalega og ómálefnalega. Maður verður að vera tilbúinn að gefasig allan í verkefnið; ástríðan og áhuginn á starfinu drífur mann áfram.“
Getur þú ekki mælt meðþessu starfi?
„Jú, hiklaust, ég held þó að við þurfum alltaf að stefna aðþví að gera þingið meira spennandi vettvang til að þangað sækist öflugt fólktil að starfa. Fólk sem á erindi og er í stjórnmálum til að fylgja hugsjónsinni eftir mun njóta þess bæði í auðveldum og erfiðum verkefnum. Þá er stundumóhjákvæmilegt að rugga bátnum og fólk verður ósátt og gagnrýnir en þá þarf aðgeta tekið þeirri gagnrýni og svarað henni með málefnalegum hætti,“ segirÁslaug Arna.
„Svo er mismunandi hvernig fólk sinnir þingstarfinu og áhvað það leggur áherslu. Ég held að það sé mikilvægt að vera trúr hugsjón sinniog það endurspeglist í bæði í málflutningi manns og störfum almennt. Stundumþarf að rugga bátnum, leggja fram mál sem ýta á ráðherra í ákveðnum málum tilað halda sinni hugsjón hátt á lofti. Síðan getur fólk lagt öðruvísi áherslur íþingstörfunum. Þingmenn geta komist upp með það að lenda aldrei á millitannanna á fólki en þá má spyrja um leið hvort þeir séu að hafa áhrif og þáhversu mikil. Stundum þarf að kasta boltanum lengra en svo að hann lendi bara ámiðjunni.“
Sem fyrr segir er Áslaug Arna í ítarlegu viðtali í nýjasta hefti Þjóðmála. Þar fer hún yfir stöðu Sjálfstæðisflokksins á 90 ára afmæli flokksins, mikilvægi þess að hann svari kalli um nýja tíma og nýjar áherslur og störf sín sem þingmaður. Þá fjallar Áslaug Arna um þær áherslur sem hún hefur lagt á menntamálin og þörfina á því að menntakerfið taki framförum.
—
Viðtalið birtist í vorhefti Þjóðmála, 1. tbl. 2019. Hægt er að gerast áskrifandi að Þjóðmálum með því að senda tölvupóst á askrift@thjodmal.is eða skilaboð á facebook síðu ritsins. Ritið færst einnig í lausasölu í verslunum Pennans/Eymundsson.