Hið lítt rædda hlutverk Sjálfstæðisflokksins

Ég ólst upp á heimili tveggja kennara sem lærðu í Svíþjóð.Eins og gerist í uppeldi tók ég á bernskuheimilinu eins konar barnatrú á ýmisgildi um það hvernig hlutirnir eigi að vera. Þau voru mörg ágæt og dugðu mér frameftir aldri. Það var ekki fyrr en í laganámi sem ég fór að spyrja mig gagnrýnnaspurninga um það á hverju væri hyggilegast að byggja samfélagið.

Hildur Sverrisdóttir.

Ég komst fljótt að því, og hef bara styrkst í þeirri trú síðan, að mesta réttlætið felist í trú á fólk og frelsi þess til að gera það sem því hugnast. Ég komst líka að þeirri niðurstöðu að andstæðurnar; stjórnlyndið, helsið og vantrúin á fólk, bæri að varast, sama undir hvaða nöfnum þessi hugtök kynnu að birtast okkur og hversu velmeinandi þau væru.

Það var svo í hruninu sem ég endanlega sannfærðist. Allt talvinstra megin sjóndeildarhringsins virtist snúast um að leiðin úr öllum ógöngumfælist í vantrausti á frelsi fólks. Á meðan ég áttaði mig á því að gottatvinnulíf og athafnasemi fólks væru nauðsynlegur drifkraftur til að skapa alltþað sem við viljum á endanum fá út úr farsælu samfélagi, hluti eins og tekjurog velferð, voru atvinnulíf og fyrirtækjarekstur orðin skammaryrði í allri umræðu.Ofurtrú vinstrisins á hið algóða og alltumlykjandi ríki varð til þess að égskráði mig í Sjálfstæðisflokkinn.

Ég held að frelsið og trúin á athafnasemi fólks séu og verðistoðir sem muni halda Sjálfstæðisflokknum í stafni sem mikilvægasta stjórnmálaafliðí landinu. Ég hef líka verið talsmaður þess að Sjálfstæðisflokkurinn sé opinnog víðsýnn flokkur með frjálslyndi að leiðarljósi. Þannig held ég að hann skapisem bestan grundvöll svo að framtíðin geti komið og við getum átt frumkvæði íöllu því nýja sem henni fylgir.

Með tímanum hef ég samt áttað mig á því að flokkurinn minnhefur annað ómissandi hlutverk sem kannski er ekki mikið rætt um en mér finnstbrýnt að Sjálfstæðisflokkurinn standi vörð um, sérstaklega í þeim nýjaraunveruleika sem við búum í þar sem ölduþungi umræðunnar er mikill og geturbreytt landslagi stjórnmála og stemningu samfélags á örskotsstundu.

Heilagur rétturhagsmunahópanna

Það er gömul saga og ný að hagsmunahópar hafi áhrif ástjórnmálamenn. Þetta má setja í annarlegt ljós en oft er það raunar hið besta málog getur stuðlað að því að stjórnmálamenn séu betur upplýstir. Raddir fólks og hópaeiga að heyrast og hafa áhrif – en það er líka eðlilegt að spyrja hversu langtslík áhrif eigi að ganga í að stöðva breytingar og framþróun. Raddir stakrahópa sem hafa hagsmuni eða sameiginlegan málstað eru nauðsynlegar en mega ekkihertaka umræðuna. Tveir hópar með háværar raddir á öndverðum meiði geta báðirhaft heilmikið til síns máls og það er alveg eðlilegt að þeim finnist þaðréttur sinn að fá sínu fram. Það þýðir samt ekki endilega að það sé rétt.

Nærtækt dæmi er umræðan um áfengi í búðir. Þar er á ferðinnimál sem er í grunninn frjálslyndismál og snýst um að treysta fólki til að seljaog kaupa löglega neysluvöru. Þetta er í dag orðin einföld tillaga um að afnema einkaréttríkisins á að afhenda kúnnum áfengi yfir búðarkassa í afmörkuðu rými.

En vantraust sumra á fólk verður til þess að engum nemaopinberum starfsmönnum skal treyst til að standa við kassann þegar rauðvínsflaskakemur eftir færibandinu. Hringavitleysan og óþarfi hennar er algjör.

Við virðumst stundum kikna í hnjánum og missa móðinngjörsigruð þegar stór orð um lýðheilsu, illt innræti kaupmanna eðafyrirsjáanlegt óheft aðgengi barna að áfengi fara á loft. Það að einhver teljisig bera skarðan leik frá borði virðist stundum nægja til að hætta við alltsaman, hversu mikill sem heildarávinningurinn er. Þá virðist engu máli skiptaað svipuð rök hafi verið höfð uppi um svo gott sem allt sem leyfa hefur átt semeinhvern tímann hafði verið bannað eða þá að reglurnar ófrávíkjanlegu séufullkomin andstæða við fyrirkomulag annarra ríkja. Bjórbannið kemur vitaskuldlíka upp í hugann, einkavæðing hinna ýmsu fyrirtækja, smásala á mjólk,opnunartímar verslana og svo mætti lengi telja.

Það má nefna umræðuna um að gera leigubílaakstur frjálsan ogopna fyrir frjálsa samkeppni. Þar eru það ekki lýðheilsa eða börn sem verður aðgæta að heldur einfaldlega klassísk sérhagsmunagæsla. Skiljanlega viljaeinstakir hópar passa sína sérstöðu og lífsviðurværi. Það er eflaust baramannlegt og sjálfsagt. Við munum líka að unnið var gegn því með kjafti og klómað útvarp yrði gefið frjálst, þá var öll menning landsins undir og útilokað aðafleiðingin gæti orðið fjölbreyttari, frjálsari og einfaldlega betri menning.

Tilfinningarökin rista djúpt enda mála þau oftastáhrifameiri myndir en tölfræði og fordæmi. Við hrökkvum jafnan í kút ef einhvervarpar því fram að tiltekin ákvörðun sé ekki augljóslega í þágu barnanna eða annarrahópa sem okkur er annt um.

Varnaðarorð eiga að fá að heyrast. Háværar raddir hræðslu,afturhaldssemi og forræðishyggju eiga líka að heyrast. En við verðum að greinaá milli og velja hvað við hlustum á. Þetta lítt rædda hlutverk sem ég minntistá áðan er það að enginn annar flokkur en Sjálfstæðisflokkurinn hefur gert beturí því að horfa á heildarávinning ákvarðana, lögmæti og réttmæti þeirra og látaekki stundarstemningu, múgsefjun eða tilfinningahita stöðva ákvarðanatöku ogferla kerfisins sem við búum við.

Vonda og leiðinlegafólkið

Dæmin sem nefnd voru að ofan eru langt í frá þau einu. Viðerum vön því að taka okkur hlutverk þess sem verður að benda á heildarmyndina íefnahagsmálum, vön því að vera kjölfestan sem segir upphátt að það sé ekki hægtað gera allt. Stundum fær sá sem heldur uppi skynseminni að heyra að hann séleiðinlegur, strangur og jafnvel vondur andstætt hinum sem segja bara fallegaog skemmtilega hluti. En stundum þarf slíkar raddir, því annars eiga partíintil að enda illa.

Sjálfstæðisflokkur nú og í framtíðinni situr uppi með þaðhlutverk að vera þessi skynsemisrödd í smásamfélagi sem hefur enn mjög takmarkaðakunnáttu í samfélagsmiðlanotkun og hinum mikla raddstyrk sem fylgir upplýsingabyltingunni.Sögulega hefur ábyrgðin enda verið mest hans og hann valdið henni heilt yfirágætlega.

Þetta hlutverk er bráðnauðsynlegt um þessar mundir.Staðreyndir og vandaðar rökleiðslur fá allt of lítið pláss. Upphrópanir,tilfinningahiti og gífuryrði eiga hins vegar vel upp á pallborðið. Efstjórnmálin láta stjórnast af þessari stemningu er hætt við að áhrif upphrópanannaverði slík að sá sem hæst lætur geti haft áhrif á hvort lög eru sett eða virt,skoðanakannanir teknar á versta tíma verði látnar ráða för í mikilvægum málumog hjartnæmar fyrirsagnir stýri efnahagsmálum.

Það eru þegar dæmi um þetta, og flokkarnir standa sig vægastsagt misvel í því að standast hrópkórana. Sjálfstæðisflokkurinn hefurblessunarlega staðið sig ágætlega í að láta ekki vindstyrk umræðunnar stjórna sér.Oftast er þetta bara truflandi en hefur ekki áhrif á fagleg störf. En það geturlíka haft síður sýnilegar afleiðingar í för með sér. Stjórnmálamenn getaskirrst við að ræða mikilvæga hluti ef vitað er fyrir fram að þeir feli í sérpólitíska lífshættu.

Það eru til dæmis sárafáir ef nokkrir stjórnmálamenn semræða það grafalvarlega ástand sem er að myndast með fjölgun ungra karlmanna áörorku.

Þetta umræðuefni sem þyrfti að taka fyrir á opinn og breiðanhátt út frá öllum sjónarmiðum, allt frá mannsæmandi bótafjárhæðum tilnauðsynlegra samfélagshvata til að skapa sér framtíð, er þó sama sem ekkertrætt. Ástæðan er hugsanlega sú að hræðslan við að vera brigslað um fordóma er yfirsterkariviljanum til að taka umræðuna.

Þegar sögunni varlokið og allt var leyst

Ég er mikill aðdáandi sjónvarpsþáttanna The West Wing sem fjalla um Bandaríkjaforsetann geðþekka JedBartlet og starfsfólk hans í kringum aldamótin síðustu. Það er áhugavert, jafnvelljúfsárt, að sjá hve mikið hefur breyst á tveimur áratugum. Árið 1999 virtistallt á réttri leið, Rússagrýlan var orðin að sérvitrum vini og minnihlutahóparhöfðu svo gott sem fengið öll sín réttmætu réttindi á meðan Bandaríkjaherskottaðist um heiminn í góðu skapi og lagaði það litla sem aflaga fór. Öll vandamálvirtust snurfus og frágangur eftir hin farsælu sögulok. Katastrófurnar urðu helstef forsetinn mismælti sig í ræðustól eða innsláttarvilla rataði á minnisblað.

Það þarf ekki að eyða orðum í samanburð á Hvíta húsiBartlets og Hvíta húsi ársins 2019. Í TheWest Wing talaði enginn um „post truth“ eða „fake news“ en í einum þættinumer hins vegar komið inn á frasann „Vox Populi, Vox Dei“ eða „rödd fólksins errödd Guðs“, frasa sem fylgt hefur m.a. breskum stjórnmálum um aldir. Þar er áferðinni prýðisgott dæmi um það hvernig hlutirnir eiga það til að skolast til.Þessi hljómfögru orð ku nefnilega rekja rætur sínar allt aftur til áttundualdar í heilræði fræðimanns að nafni Alcuin til keisarans Karlamagnúsar oghljómuðu upprunalega einhvern veginn svo: „Hlustið ekki á þá sem segja röddfólksins vera rödd guðs því múgæsingur mannfjöldans er alltaf nærri brjálæði.“

Þetta má ekki skilja svo að ég sé að leggja til aðSjálfstæðisflokkurinn velji sér einvald og leggist í stríðsrekstur gegn Söxum.Kannski er lærdómurinn sá að sagan er aldrei búin og mannfjöldi á einum stað erekki endilega rödd allra.

Hlutverk stjórnmálanna er að hlusta á raddir fólks en ekkielta þær í blindni, meta vilja og hagsmuni heildarinnar, virða leikreglurnar semvið höfum sett og fara vel með ábyrgðina. Stundum felur það í sér að takaóvinsælar ákvarðanir og stundum verða einhverjir undir. Hagsmunahóparnir verðaalltaf á sínum stað. Skoðanirnar verða alltaf margar og háværar. Stjórnvöldverða að hafa agann til að skera á hnúta, taka ákvarðanir, bera pólitískaábyrgð og ganga svo með verk sín í dóm kjósenda. Festa, framtíðarsýn ogskynsemi eru ekki í hávegum höfð þessa dagana, en þeir dagar munu líka líða ogsá sem stendur í lappirnar mun á endanum fá það launað. Það er einn afmikilvægustu eiginleikum Sjálfstæðisflokksins sem hann þarf hlúa að og taka meðsér inn í framtíðina.

Höfundur er varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins og aðstoðarmaður ráðherra.

Greinin birtist í vorhefti Þjóðmála, 1. tbl. 2019, undir greinaflokk um Sjálfstæðisflokk framtíðarinnar, sem birtur er í tilefni 90 ára afmæli flokksins . Hægt er að gerast áskrifandi að Þjóðmálum með því að senda tölvupóst á askrift@thjodmal.is eða skilaboð á facebook síðu ritsins. Ritið færst einnig í lausasölu í verslunum Pennans/Eymundsson.

Previous
Previous

Sjálfstæði í flokknum

Next
Next

Að gæta fullveldisins