Kjarninn – að kaupa sig til áhrifa

Þegar við blasti að vinstrimenn myndu gjalda afhroð og missastjórnartaumana í kosningum til Alþingis vorið 2013 fóru nokkrirvinstrisinnaðir einstaklingar úr fjölmiðlum, stjórnmálum og viðskiptalífi aðkanna möguleika á því að stofna nýjan fjölmiðil sem gæti veitt yfirvofandihægristjórn mótstöðu. Niðurstaðan var sú að vefmiðillinn Kjarninn var formlega stofnaðurhinn 1. júní 2013, viku eftir að ný ríkisstjórn Framsóknarflokks ogSjálfstæðisflokks tók til starfa. Lagt var upp með að gefa út netmiðil – vikublað– sem lesendur gætu halað niður í heilu lagi.

Yfirlýsingar stofnenda Kjarnans voru hástemmdar í byrjun. Íeinni auglýsingu vefritsins er haft eftir blaðamanni: „[V]ið eigum Kjarnann,engir fjárfestar, engin hagsmunaöfl, ekkert rugl.“

Ekki leið þó á löngu uns útgáfufélag Kjarnans hafði gefið útnýtt hlutafé og fjárfestar hófu að birtast í bakgrunninum og höfðu fljótt eignastá milli 30% og 40% í miðlinum á móti stofnendum. Í hluthafahópinn bættust meðalannarra Vilhjálmur Þorsteinsson, gjaldkeri Samfylkingarinnar, og Ágúst ÓlafurÁgústsson, fyrrverandi varaformaður flokksins. Þar með höfðu allar fjórarstaðhæfingarnar í auglýsingunni fokið út í veður og vind. Miðillinn var ekki íeigu starfsmanna, með fjárfesta og augljós hagsmunatengsl.

Kjölfestufjárfestar Kjarnans voru þeir Vilhjálmur Þorsteinssonfjárfestir og Hjálmar Gíslason frumkvöðull. Báðir höfðu haft sig talsvert íframmi í þjóðfélagsumræðunni og þó sérstaklega Vilhjálmur, sem var einarður talsmaðurþess að Íslendingar tækju á sig skuldbindingar vegna Icesave-reikninga Landsbankans.Þar hafði hann gerst eindreginn andstæðingur Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar,þáverandi formanns Framsóknarflokksins. Honum eins og mörgum vinstrimönnum varmjög brugðið við að Sigmundur Davíð yrði forsætisráðherra og sjálfsagt ekkisíður vegna þess víðtæka persónulega fylgis sem hann naut á þessum tíma. Aðrirfjárfestar komu einnig af vinstri vængnum þó að þeir hefðu fæstir haft sig mikiðí frammi, utan auðvitað Ágústs Ólafs Ágústssonar, sem hafði verið og varð aftursíðar alþingismaður fyrir Samfylkinguna.

Pólitísk slagsíða

Ritstjórn Kjarnans var í höndum þeirra Þórðar SnæsJúlíussonar og Magnúsar Halldórssonar blaðamanna, sem árin á undan höfðu verið fyrirferðarmiklirí þjóðfélagsumræðunni. Þeir höfðu sagt skilið við Fréttablaðið/365 miðla með hvelli þegar þeir efndu tilritstjórnarlegs ágreinings með skrifum sínum um Jón Ásgeir Jóhannesson, en konahans Ingibjörg Pálmadóttir var þá eigandi Fréttablaðsins/365miðla. Í skrifum fyrir kosningarnar 2013 höfðu þeir ráðist hart gegnhugmyndum Sigmundar Davíðs í aðdraganda kosninga um hina svokölluðu„leiðréttingu“ og þá hugmynd hans að láta erlenda vogunarsjóði bera kostnaðinnaf henni. Þórður Snær skrifaði meðal annars forystugrein í Fréttablaðið, þar sem hann sagði Sigmund Davíð vera „óvinur [Íslendinga]nr. 1“. Þessum málflutningi héldu þeir áfram eftir að þeir færðu sig yfir á Kjarnann.

Þórður Snær Júlíusson, eða Doddi eins og hann er jafnankallaður, hefur mikil tengsl við vinstrimenn. Alþjóð varð vitni að samskiptum hansvið Elías Jón Guðjónsson, þá aðstoðarmann Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherraog fyrrverandi samstarfsmann Þórðar á blaðinu 24 stundum, þegar fyrir tilviljun komst upp um að þeir höfðu lagt áráðin um spunafrétt undir slagorðinu: „Dodda langar að skúbba.“

Viðvarandi taprekstur

Rekstur Kjarnans hefur frá upphafi gengið erfiðlega, en hann hófst á miðju ári 2013. Hagnaður fyrsta ársins nam um 300 þúsund krónum. Tap hefur síðan verið af rekstrinum öll heilu rekstrarárin, þannig að við blasir að aðstandendur miðilsins kjósa að leggja fram töluvert fé til að sú vinstri rödd sem fjölmiðillinn stendur fyrir heyrist. Það kemur þó ekki í veg fyrir að Þórður Snær, ritstjóri Kjarnans, geri gjarnan taprekstur Árvakurs, útgáfufélags Morgunblaðsins, að umtalsefni.

Uppsafnaður taprekstur þessara fjögurra ára nemur 47milljónum króna og lætur nærri að miðillinn tapi einni milljón á hverjum mánuði.Tapreksturinn framan af var útskýrður með vísun í fjárfestingar. Frá 2016 hafaKjarnamenn leitað eftir stuðningsáskriftum. Lengst af hefur fjölmiðillinn orðiðað treysta á fórnfýsi eigenda sinna, sem hafa hlaupið undir bagga, ýmist meðlánum eða auknu hlutafé, en eins hafa starfsmenn í einhverjum tilvikum þegiðhlutabréf, sem við þessar aðstæður eru verðlaus.

Í seinni tíð hefur miðillinn orðið að skera niður starfsemisína og flokkast hann nú undir það að vera eins konar bloggsíða sem birtir hugleiðingarÞórðar Snæs og treystir mikið á endurbirtingar frétta úr öðrum fjölmiðlum, svomjög að aðrir fjölmiðlamenn hafa orðið að gera athugasemdir við endurbirtingar Kjarnans.

Þannig benti Stefán Einar Stefánsson, viðskiptaritstjóri Morgunblaðsins, á það í janúar 2019 aðKjarninn hefði birt 900 orða frétt beint upp úr 2.400 orða viðtali sem blaðamaðurMorgunblaðsins hafði unnið að daganaá undan og látið duga ein sæmdarkynning. Þar var farið yfir skynsamleg mörk endursagnarúr fréttum annarra miðla og verið að gera annarra efni að sínu.

Oft hafa fylgt ýmsar yfirlýsingar þegar breytingar verða áfjármögnun Kjarnans. Árið 2016 var til dæmis greint frá stofnun Kjarnasjóðsins,fyrsta íslenska rannsóknarblaðamennskusjóðsins sem ætlað er að styrkja stór ogmetnaðarfull verkefni á sviði rannsóknarblaðamennsku. Í frétt blaðsins sagði aðmeð honum væri ætlunin að gefa blaðamönnum tækifæri til að helga sig alfariðstórum og flóknum verkefnum í dágóðan tíma. Tekið var fram að sjóðurinn myndiúthluta allt að fimm milljónum króna árlega og gæti hver einstakur styrkurnumið allt að 500 þúsund krónum. Ekkert hefur spurst til sjóðsins síðan.

Náin tengsl við RÚV

Kjarninn hefur lengi endurvarpað skoðunum hluthafansVilhjálms Þorsteinssonar. Frá upphafi hefur Kjarninn unnið náið með öðrumfjölmiðlum sem telja má til vinstri í íslenskum stjórnmálum. Þetta samstarf náðihámarki þegar ráðist var að Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, þá forsætisráðherra,með vinnslu og birtingu Panama-skjalanna. Ljóst var að atlagan hafði verið íundirbúningi í marga mánuði með samstarfi við erlenda fjölmiðla, en sú hugmyndað geta fellt forsætisráðherra með birtingunum heillaði vafalaust marga. Eftirá að hyggja blasir við að áherslan á Sigmund Davíð var langt umfram það semgögnin sögðu til um.

Kjarninn gekk til þannig samstarfs við Reykjavík Media, Ríkisútvarpið og Stundina um birtingu skjalanna. Ljóst var að Ríkisútvarpið myndi gegna lykilhlutverki í fréttaflutningnum auk þesssem það tók að sér að fjármagna hann að nokkru, meðal annars með því að bera launakostnaðReykjavík Media enda hafði það félagí raun enga starfsemi aðra en að senda reikninga út í nafni JóhannesarKristjánssonar rannsóknarblaðamanns.

Tengsl Kjarnans við Ríkisútvarpiðhafa verið náin. Ægir Þór Eysteinsson var þannig meðal stofnenda Kjarnans(9,44% eignarhlutur), en hann hafði áður verið fréttamaður hjá Ríkissjónvarpinu. Hann sneri aftur til Ríkissjónvarpsins í lok árs 2015 vegnarekstrarerfiðleika Kjarnans, en miðillinn stóð ekki undir launakostnaði hans.Ægir var þó áfram í eigendahópi Kjarnans, þar sem hlutur hans í Kjarnanum varillseljanlegur. Að lokum leysti félagið sjálft til sín hlut Ægis Þórs til aðkomast hjá gagnrýni, en aðrir fjölmiðlar höfðu gert þetta að umtalsefni, meðalannars Viðskiptablaðið. Í byrjun árs2015 var Þórunn Elísabet Bogadóttir gerð að aðstoðarritstjóra Kjarnans, en húner dóttir Boga Ágústssonar, fyrrverandi fréttastjóra Ríkisútvarpsins. Síðar gekk Fanney Birna Jónsdóttir einnig til liðsvið Kjarnann, en í upphafi árs 2018 var hún gerð að aðstoðarritstjóra blaðsins.Hún hætti tíu mánuðum síðar. Fanney Birna hefur um tveggja ára skeið séð umstjórn á þjóðmálaþættinum Silfrinu ámóti Agli Helgasyni, samhliða því að eiga í og stýra Kjarnanum (0,97%eignarhlutur).

Eigendabreytingar

Í október 2014 var miklum breytingum á Kjarnanum hrint íframkvæmd. Þá var kynntur til leiks fréttavefur sem myndi sinna daglegrifréttaþjónustu en halda áfram fast í þá hugmyndafræði sem Kjarninn er byggður á.Samhliða var útgáfu stafræna fréttavikublaðsins hætt, því þrátt fyrir að ýmsirhefðu látið vel af fyrirtækinu var lesendahópurinn lítill og niðurhaliðumstangsmeira en nýir neysluhættir leyfðu.

Upphafleg viðskiptahugmynd Kjarnans um einhvers konarfréttaapp til þess að ná í blað á PDF-formi hafði þar með fallið um sjálfa sig,afskrifa varð allt stofnframlagið og endurfjármagna reksturinn.

Meginvandi Kjarnans hefur alla tíð verið að lesturinn hefurlátið á sér standa. Í upphafi var gerð metnaðarfull tilraun um netdreifingu áóprentuðu blaði, en hún gekk sem fyrr segir ekki upp. Þá var hafist handa viðað breyta Kjarnanum í hefðbundnari vefmiðil, en lesturinn hefur samt sem áðurlátið á sér standa. Samræmdar vefmælingar bentu til þess að honum hefði aldreiauðnast að ná út fyrir tiltölulega lítinn kjarna lesenda (svo segja má aðmiðillinn hafi borið nafn með rentu). Nú er svo komið að Kjarninn nær hvorki áblað í vefmælingum Gallups né Modernus.

Afskriftir og endurfjármögnun hefur nokkrum sinnum veriðendurtekin, en nú má heita að starfsemi miðilsins sé í lágmarki, tveirritstjórar og tveir blaðamenn. Af upphaflegu ritstjórninni eru aðeins ÞórðurSnær Júlíusson og Magnús Halldórsson eftir, sá síðarnefndi raunar mjög laustengdur,býr erlendis og sinnir fyrst og fremst vikuritinu Vísbendingu. Auk þeirra sem hér hafa verið nefndir að framan fluttiBirgir Þór Harðarson, starfsmaður Kjarnans (2,46% eignarhlutur), sig einnigyfir á fréttastofu Ríkisútvarpsins.Virðist því sem stofnunin hafi tekið að sér að vera griðastaður fyrirstarfsfólk Kjarnans, en á það hefur verið bent að ráðningar Ríkisútvarpsins á fyrrverandistarfsmönnum Kjarnans séu iðulega án auglýsinga.

Vorið 2019 var gengið frá því að Þórður Snær yrði fasturgestur í Morgunútvarpi Rásar 1 til aðræða um viðskipti og efnahagsmál. Það var að frumkvæði þáttastjórnandans Óðins Jónssonar.Innan fjölmiðlaheimsins hefur vakið athygli að RÚV leitar sjaldan eða aldrei tilritstjóra þeirra viðskiptablaða sem hér eru gefin út; Viðskiptablaðsins, og viðskiptablaða Morgunblaðsins og Fréttablaðsins.Nú hefur það gerst að Óðinn Jónsson hefur hætt störfum hjá RÚV og gengið til liðs við Aton, sem er almannatengsla- og lobbýistafyrirtækiá vinstri vængnum. Hjá Aton starfa Huginn Freyr Þorsteinsson, fyrrumaðstoðarmaður Steingríms J. Sigfússonar, fyrrnefndur Elías Jón, sem og Ingvar Sverrissonog Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir sem bæði eru atkvæðafólk í Samfylkingunni.

Nú eru fjórir skráðir starfandi á ritstjórn Kjarnans, enenginn þeirra er í fullu starfi. Þórður Snær hefur undanfarið tekið að sér störfog verkefni víða. Hann er stundakennari við Háskóla Íslands, þar sem hannkennir fjölmiðlafræði (blaðamennsku), og vakti athygli þar með því að nota þannvettvang til að efna til kæru til siðanefndar gegn Hannesi HólmsteiniGissurarsyni prófessor. Tilefnið var að Hannes hafði gefið þekktri sögu vængi,en hún snerist um tengsl Kjarnans við erlenda vogunarsjóði. Sagan var í raunaldrei til umræðu nema í formi ásakana Þórðar Snæs og Magnúsar um að tilteknirmenn, oftast tengdir Framsóknarflokknum, væru að breiða út slíkar sögur.

Þórður Snær og Magnús hafa tekið að sér að skrifa vikulegarfréttaskýringar og fréttaefni í auglýsingavikublaðið Mannlíf sem er ýmist birtundir nafni þeirra eða Kjarnans. Eigandi Mannlífser skráður Halldór Kristmannsson, sem hefur verið handgenginn Róbert Wessmann,stjórnanda lyfjarisans Alvogens. Magnús starfar sem fyrr segir fráBandaríkjunum, en hann er jafnframt ritstjóri tímaritsins Vísbendingar, sem Kjarninn keypti af Benedikt Jóhannessyni, fyrstaformanni Viðreisnar og fyrrverandi fjármálaráðherra.

Auk þessa er Þórður Snær þáttagerðarmaður á Hringbraut, en það er verst varðveitta leyndarmálfjölmiðlaheimsins að Helgi Magnússon fjárfestir stendur að fyrirtækinu ásamtviðskiptafélaga sínum Sigurði Arngrímssyni (áður hjá Morgan Stanley), sem erskrifaður fyrir eignarhlutnum. Hann var í fréttum vegna stuðnings síns viðstjórnmálaflokkinn Viðreisn, en Hringbraut hefur verið talin höll undirViðreisn og aðild að Evrópusambandinu. Heimildir eru fyrir því að Helgi hafisamband reglulega við stjórnendur stöðvarinnar og hafi sjálfur útbúið listayfir fólk sem eigi alls ekki að ræða við þar.

Þrátt fyrir þessi tengsl við Mannlíf og Hringbraut hefurÞórður Snær verið óhræddur við að gagnrýna eignarhald fjölmiðla í ræðu og riti enoftast beinast skeyti hans að Morgunblaðinuog þá sérstaklega að stærsta eigandanum, Guðbjörgu Matthíasdóttur, og svo DavíðOddssyni ritstjóra.

Eigendur Kjarnans ogaflandsfélög

Vilhjálmur Þorsteinsson, þá gjaldkeri Samfylkingarinnar og einn stærsti eigandi Kjarnans, Illugi Jökulsson, rithöfundur og dagskrárgerðarmaður á Ríkisútvarpinu, og Birna Þórðardóttir, leiðsögumaður og fjölmiðlakona, berja tunnu á Austurvelli til að mótmæla aflandsfélögum vorið 2016.

Ætla má að það hafi komið ritstjórn Kjarnans mjög á óvart að einn helsti eigandi miðilsins, Vilhjálmur Þorsteinsson, skyldi vera með aflandsfélög þegar hún hóf afskipti af Panamamálinu. Samkvæmt gögnum Mossack Fonseca stofnaði Kaupþing í Lúxemborg félagið M-Trade á skattaskjólseyjunni Tortólu í október 2001. Skráðir stjórnendur þess voru þrjú önnur Tortólafélög. Raunverulegur eigandi M-Trade og stjórnandi var þó annað félag sem skráð var fyrir öllum eignum Tortólafélagsins: Félag Vilhjálms Þorsteinssonar, Meson-Holding í Lúxemborg. Nafn Vilhjálms er því ekki í gögnum Mossack Fonseca en nafn félags hans er það hins vegar. Fjölmiðlar upplýstu að litlar upplýsingar væru fáanlegar um starfsemi M-Trade á Tortóla. Það tók við pósti sem áframsendur var til Lúxemborgar árið 2005 en var formlega afskráð 2012. Í upplýsingum um félagið í þessu yfirliti Mossack Fonseca segir að eignir þess séu bankareikningur sem ekki eru frekari upplýsingar um. Einnig átti Vilhjálmur félög skráð á Kýpur.

Í kjölfar uppljóstrana um eignarhald Vilhjálms Þorsteinssonará aflandsfélögum árið 2015 hvarf hann úr stjórn Kjarnans en heldur enn eignarhlutsínum. Aflandseignarhaldsfélagaflétta hans er talin flókin. Þrátt fyrir það vafðistekki fyrir Vilhjálmi að mæta á Austurvöll og berja tunnulok með Illuga Jökulssyniog Birnu Þórðardóttur til þess að mótmæla því að annað fólk hefði tengsl viðaflandsfélög í skattaskjóli. Þeir Vilhjálmur og Illugi þekktust vel enda höfðubáðir sest í stjórnlagaráð á sínum tíma eftir að Hæstiréttur hafði ógiltkosningu til stjórnlagaþings þar sem þeir voru í kjöri.

Eignir Vilhjálms komu aldrei fram í hagsmunaskráningu hansvegna stjórnlagaráðs. Þá má hafa í huga að þann tíma sem Vilhjálmur var gjaldkeriSamfylkingarinnar hafði hann einnig umsjón með huldusjóðnum Sigfúsarsjóði, sem umárabil hefur haldið utan um fjárhagslegar eigur vinstrimanna, „Rússagullið“ svokallaða,meðal annars húsakynni á Hallveigarstíg 1 í Reykjavík.

Tengsl Vilhjálms Þorsteinssonar (sem er hálfbróðir ViðarsÞorsteinssonar, framkvæmdastjóra Eflingar) við ritstjórn Kjarnans eru mikil ognú síðast var ákveðið að fjölmiðillinn myndi færa starfsstöð sína í húsnæði semVilhjálmur hefur umráð yfir úti á Granda við Fiskislóð. Kjarninn var til húsa áLaugavegi 3 en er nú starfræktur inni á skrifstofu Vilhjálms.

Félagið Miðeind ehf., í eigu Vilhjálms Þorsteinssonar, á nú17,8% og hefur aukið hlut sinn undanfarin ár. Félagið er algjörlega í eiguMeson Holding A.S. sem skráð er í Lúxemborg eins og áður sagði. Hlutur Miðeindarehf. í Kjarnanum var bókfærður á rúmar 14 milljónir króna í lok árs 2016.

Stærsti hluthafinn og stjórnarformaður Kjarnans er HjálmarGíslason með 18,28% eignarhlut í gegnum félag sitt HG80 ehf. Hjálmar setti uppstarfsemi í Bandaríkjunum í lágskattaríkinu Delaware og hefur efnast vel ástofnun, rekstri og sölu tæknifyrirtækja. Delaware er skilgreint semskattaskjól (e. tax shelter) og dregur þannig til sín gríðarlegan fjöldaskúffufélaga. Þessi starfsemi hefur sætt harðri gagnrýni víða.

Leiða má að því líkur að Kjarninn hafi að einhverju leytiverið fjármagnaður með fjármunum sem eiga uppruna sinn í skattaskjólum. Við þaðþarf ekki að vera neitt ólöglegt en spyrja má hversu siðlegt það er, einkum íljósi þeirrar gagnrýni sem Kjarninn sjálfur hefur verið iðinn við að beina til annarra.Síðan Panamamálið fór af stað hefur Kjarninn reynt að nýta sér þá athygli semþá fékkst með því að sækja áheitastuðning til almennings og hefur það gengiðþokkalega að sögn Kjarnamanna.

Málefni Ágústs Ólafs

Ágúst Ólafur Ágústsson, fyrrverandi varaformaðurSamfylkingarinnar og nú þingmaður í veikindaleyfi, eignaðist hlut í Kjarnanum2014. Í frétt á heimasíðu Kjarnans segir að á þeim tíma hafi Ágúst Ólafur ekki veriðþátttakandi í stjórnmálum. Hann sat enn fremur í stjórn miðilsins um tíma.

Í september 2017 tilkynnti Ágúst Ólafur að hann ætlaði aðhefja stjórnmálaþátttöku að nýju og vék hann þá úr stjórn Kjarnans, enda varþað mat stjórnenda Kjarnans, Ágústs Ólafs og annarra hluthafa að ekki færisaman að vera kjörinn fulltrúi og eiga hlut í fjölmiðli, eins og sagði ítilkynningu frá þeim tíma. Samhliða var gert samkomulag um að Ágúst Ólafur yrðimeð öllu óvirkur eigandi í félaginu og að hlutur hans yrði settur í söluferli.

Í fjölmiðlum var greint frá því að hlutur Ágústs Ólafs íKjarnanum hefði aukist milli áranna 2017 og 2018. Sú skýring var gefin á því aðhluthafalán, sem veitt var vegna fjárfestinga á fyrri hluta ársins 2017,hefðafi verið breytt í hlutafé í byrjun árs 2018. Illa gekk að selja hlutÁgústs, sem var upp á tæp 5%, og það var ekki fyrr en um miðjan febrúar 2018 aðtilkynnt var móðurfélag Kjarnans hefði að endingu keypt hlut Ágúst Ólafs. Umleið var tilkynnt að Fanney Birna aðstoðarritstjóri hefði bæst viðhluthafahópinn en hún er eins og áður sagði enn í hluthafahópnum þrátt fyrirstörf sín hjá Ríkissjónvarpinu.

Afskiptum Ágústs Ólafs af Kjarnanum var þó ekki með öllulokið. Í desember 2018 var upplýst að Ágúst Ólafur hefði sætt áminningu trúnaðarnefndarSamfylkingarinnar fyrir að hafa brotið gegn Báru Huld Beck, blaðamanniKjarnans, með því reyna endurtekið og í óþökk Báru að kyssa hana. Þettakynferðisáreiti átti sér stað á starfsstöð Kjarnans eftir lokun skemmtistaðanóttina 20. júní 2018. Kjarninn fjallaði ekki um málið fyrr en það var upplýstá öðrum vettvangi og litlar fréttir hafa verið fluttar af viðbrögðum stjórnendaKjarnans við atvikinu.

Tilkynningar þeirra Ágústs Ólafs og Báru Huldar voru látnarnægja í umfjöllun um málið. Athygli vekur að Bára Huld hélt áfram að birtafréttir er vörðuðu stjórnmálavafstur Ágústs Ólafs í Kjarnanum, eftir atvikið ogfram að því að hann fór í leyfi. Augljóst var þó að Bára Huld var ekki ánægðmeð hvernig tekið hafði verið á máli hennar.

Styrkhæfni?

Eins og áður sagði er starfsemi félagsins að dragast samanen eigendur félagsins hafa leitað ýmissa leiða til að minnka tapið.

Í byrjun árs 2017 átti Vilhjálmur Þorsteinsson þannig íviðræðum við Sigurð Gísla Pálmason, einn aðaleigenda Fréttatímans á þeim tíma, um samstarf milli miðlanna. Af því varðekki og Fréttatíminn lagði upplaupana skömmu síðar. Engum blöðum er um það að fletta að viðvarandi tapreksturKjarnans hvílir þungt á eigendum, eins og sést á því að ritstjóri Kjarnanssækir fast eftir ríkisstyrkjum nú þegar allt lítur út fyrir að Alþingi samþykkiað veita fjölmiðlum slíka styrki. Mikið álitamál er þó enn hvort miðillinnuppfyllir kröfur þær sem gerðar eru til styrkhæfra fjölmiðla, þar sem sáralítiðer þar um frumframleiðslu frétta, en slíkt verður tíminn að leiða í ljós. Styrkjafyrirætlanirstjórnvalda til handa fjölmiðlum og fyrirferð Ríkisútvarpsins á fjölmiðlamarkaðier hins vegar efni í aðra fjölmiðlaúttekt.

Af ritstjórnarefni og fréttum Kjarnans má vel ráða pólitísktleiðarhnoð hans, en það er borgaraleg vinstristefna sem teygir sig allt fráVinstri grænum um Samfylkingu og yfir á miðjuna til Viðreisnar, en oft má fremurgreina hana af andstæðingunum en samherjunum. Hún er raunar svo fyrirsjáanleg (oggreinarnar langorðar) að gárungar í fjölmiðlastétt hafa uppnefnt miðilinn Kranann.Það er vitaskuld ekkert að því að Kjarninn marki sér ritstjórnarstefnu með þeimhætti, en það má heita fullreynt að hún afli miðlinum lesenda.

Þá má hins vegar spyrja til hvers verið er að halda honumúti og hver leggi honum til fé til þess að halda öndunarvélinni gangandi undirþví yfirskyni að Kraninn sé laus við fjárfesta, hagsmunagæslu og rugl.

Höfundur er blaðamaður.

*Eignarhlutar eru skráðir hér eins og þeir koma fyrir hjá Fjölmiðlanefnd.

ÁRÉTTING: Rétt er að geta þess að Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, svaraði grein Sigurðar Más. Svargrein Þórðar Snæs má lesa HÉR. Sigurður Már svaraði til baka og má lesa grein hans HÉR.

Viðbót 14.07.19: Þjóðmálum hafa borist athugasemdir frá forsvarsmönnum Kjarnans vegna umræddrar greinar. Þær athugasemdir má lesa HÉR.

Greinin birtist í vorhefti Þjóðmála, 1. tbl. 2019. Hægt er að gerast áskrifandi að Þjóðmálum með því að senda tölvupóst á askrift@thjodmal.is eða skilaboð á facebook síðu ritsins. Ritið færst einnig í lausasölu í verslunum Pennans/Eymundsson.

Previous
Previous

Vonandi Sjálfstæðisflokkurinn

Next
Next

Sjálfstæði í flokknum