Vonandi Sjálfstæðisflokkurinn

Laufey Rún Ketilsdóttir.

Að morgni dags þann 25. maí 1929 vöknuðu Íslendingar á björtum vordegi og lásu fréttir úr dagblöðum. Morgunblaðið greindi frá erlendum fregnum sem bárust undurhratt með þá nýrri tækni símskeyta, Knútur Zimsen var með orðsendingu um útsvarsmál, vinnudeila var á Siglufirði og á baksíðu var frétt um að tekist hefði með herkjum að nota þráðlausa talstöð í skipi við Ísland. Þá yrði rafmagnið tekið af Reykjavík í átta tíma vegna viðhalds og þótti eðlilegt. Auglýsingar snúa að bökunarvörum, fatnaði, leiksýningum og matvöruverslunum. Tilboð á eggjum í Drífanda.

Það var ekki fyrr en næsta dag að fluttar voru fréttir afstofnun Sjálfstæðisflokksins enda prentvélin aðeins ræst daglega.

Hvað hefur breyst?

Síðan eru liðin 90 ár. Maí er enn bjartur vormánuður, Morgunblaðið kemur enn út, símskeytiheita nú smáskilaboð, enn er deilt um útsvarsmál, verkföll eru boðuð og allir notaþráðlausar talstöðvar sem í dag heita símar. Rafmagnið er að vísu orðið stöðugten skömmtun á heitu vatni var boðuð fyrir skömmu í Reykjavík. Enn eru auglýstarbökunarvörur og smásölufyrirtæki eiga flestar auglýsingar í fjölmiðlum. Egg erusjaldan á tilboði og fást líklega ekki í Drífanda – en það má alltaf láta Bónuseða Hagkaup duga og verð þeirra hefur snarlækkað. Fréttir af nýjumstjórnmálaflokki berast nú samstundis enda prentvélin komin í vasa hvers manns– snjallsíminn.

Allt hefur breyst

Sumir gætu sagt að allt hefði breyst á þessum 90 árum.Stjórnmálaflokkar væru börn síns tíma og ættu ekkert erindi í nútímann. Nú væritæknin allsráðandi og nútímafólk hefði ekki áhuga á því að taka sér stöðu meðflokkum eða stjórnmálastefnum. Það væri ekki lengur slagur kommúnisma við frjálshyggju,stjórnmál væru gamaldags og hugmyndir skiptu ekki lengur máli.

Einhver tæki þá undir og segði að ungt fólk hefði ekki áhugaá stjórnmálum, það væri nóg um afþreyingu og að vandamálin væru svo breytt að gamalttal um frjálst atvinnulíf og persónufrelsi væru tímaskekkja. Sitt sýnist hverjumog kannski væri það strámaður sem héldi öðru eins fram. En í þágu umræðunnar, hefurallt breyst?

Ekkert hefur breyst

Í heimi hugmyndanna, sem eru kjarni stjórnmálanna, hefur íraun ekkert breyst. Enn er tekist á um hlut ríkisins í lífi einstaklinga og rekstrifyrirtækja.

Skal stefnt að frjálsu atvinnulífi eða ríkisreknu? Skalstefnt að opnum landamærum eða lokuðum? Á að hefta innflutning til þess að verndahóp framleiðenda á kostnað þeirra sem vilja kaupa vörurnar eða heimila frjáls viðskipti?Á duglegur einstaklingur að geta hafið rekstur innan dagsins eða eftir þrjú árþegar hann hefur sótt um öll leyfin? Á forréttindahópur að njóta lögverndar eðaeiga allir að fá að spreyta sig? Á ríkisnefndin sem allt telur sig vita að takaákvörðun eða einstaklingarnir sem meta stöðuna hver fyrir sig?

Ekkert er sjálfsagt

Þessar spurningar, og ótal aðrar, eru eins lifandi og mestmá vera. Það er sama hvar gripið er niður í dagblöðum fortíðar, eða netmiðlumnútímans, þar er tekist á um þessi efni. Sjónarmiðin eru ætíð þau sömu og njótamismunandi stuðnings eftir tíðaranda.

Stundum eykst frelsið hröðum skrefum, þegar slíkar hugmyndirnjóta brautargengis, en þess á milli eru tekin skref aftur á bak með auknumafskiptum ríkisins og heftandi lögum og reglugerðum sem hindra fólk í því aðleita hamingjunnar á eigin forsendum.

Nýir tímar daglega

Það gerist eitthvað nýtt í heiminum á hverjum degi. Ný tækiog forrit opna óteljandi möguleika. Verð lækkar stöðugt vegna tækniframfara oglífsgæði hafa farið batnandi á Íslandi dag frá degi undanfarin 90 ár.

Eru þá ekki nýjar áskoranir á hverjum degi þar sem kynslóðmorgundagsins tilkynnir um breyttar þarfir og breytta stöðu í stjórnmálum? Eflaust.En alltaf er svarið það sama. Á ríkið að leysa það eða einstaklingurinn? Er hinnnýi kjósandi áhugasamari um að ríkið ákveði örlög sín eða hann sjálfur? Ætlar hannað reka fyrirtæki til að selja nýjungar til nýja fólksins og ef svo er – villhann hafa til þess fullt frelsi?

Annað sem er ekki síður athyglisvert er að sá sem stendurföstum fótum á góðri stefnu þarf ekki að takast á við nýja tíma með sérstökumhætti. Það er fólkið á hverjum tíma sem sér um útfærsluna. Stefnan er einföld oglýtur að frelsi. Hvað þarf að athuga, hvar þarf að sækja fram, hvaða rökræðurþarf að vinna – þetta er dagsverk þeirra sem koma að Sjálfstæðisflokknum.

Ný frétt daglega

Þótt 90 ár séu að baki eru nýjar fréttir alltaf nýjar ogáhugaverðar. Nútíminn er í vandræðum vegna offramboðs frétta og skemmtiefnis enfortíðin var í vandræðum vegna skorts í þeim efnum. Það er því ekki skrýtið aðeinföld sýn á nútímann sé sú að stjórnmálin séu í skugganum af skemmtiefni ogótal málum sem seint munu teljast þjóðþrifamál. Út frá þessu reynir svo einhverað alhæfa um áhugaleysi kynslóðanna og dauða hugmyndanna.

Fátt er þó eins fjarri sanni. Það sést best á því þegar stórmál eru til umfjöllunar í stjórnmálum. Þá er lækkað í tónlistinni og athyglinnibeint að kjarna málsins. Þá reynir á – ríkið eða einstaklingurinn? Helsi eðafrelsi.

NýrSjálfstæðisflokkur daglega

Veruleiki nýjunganna veldur því að endurnýjun ístjórnmálaflokkum sem helga sig tímalausum hugmyndum er stöðug. Einsmálsflokkarkoma og fara. Skrumflokkar koma og fara. En hugmyndir eru komnar til að vera.Þar hefur Sjálfstæðisflokkurinn sérstöðu sem tryggir honum daglega endurnýjun fylgjenda,flokksmanna, forystumanna og áhugasamra ungmenna sem velta fyrir sér hvernigbest sé að kjósa með nýfenginn kosningaréttinn.

Landsfundir Sjálfstæðisflokksins eru fjölmennustu samkomurlandsins þar sem unnið er lýðræðislega að mótun stefnu sem felur í sér útfærsluá ótal atriðum í takt við grunnhugmyndir flokksins. Þar er tekist á og breytiststefna í ýmsum málum á milli funda.

Tíðarandinn situr fundinn rétt eins og frelsisandinn ogsannast þar að allir eru velkomnir á landsfund. Unga fólkið heldur sig viðfrelsið og þrátt fyrir bölsýni þeirra sem telja stjórnmál úrelt er það ungafólkið sem hefur hæst og tekur slaginn um bætta framtíð.

Sé horft á höfðatölu ungmenna í stjórnmálahreyfingum virðistSjálfstæðisflokkurinn, þrátt fyrir háan aldur, vera vinsælasti vettvangur ungafólksins með allar nýjungarnar til þess að koma að mótun stefnu fyrir land ogþjóð sem lögð er fyrir kjósendur.

Tímalaus stefna

Til marks um styrk hugmynda í Sjálfstæðisflokknum er gott aðgrípa niður í fyrstu stefnumál flokksins sem kynnt voru í Morgunblaðinu daginneftir stofndag flokksins fyrir 90 árum, þar sem sagði að flokkurinn ætlaði sérað gera tvennt, annars vegar að tryggja að Ísland tæki „að fullu sín mál ísínar eigin hendur“ og hins vegar að bæta úr innanlandsmálum á „grundvellieinstaklingsfrelsis og atvinnufrelsis með hagsmuni allra stétta fyrir augum“.

Þannig var það sagt fyrir 90 árum. Hvað gæti átt betur viðnú árið 2019 en grunnstef um sjálfsstjórn í utanríkismálum og einstaklingsog atvinnufrelsiinnanlands?

Þessi einfaldi og sterki vegvísir Sjálfstæðisflokksins hefurstaðið af sér veður og vind lengur en nokkur annar.

Gott lífshlaup

90 ár eru fljót að líða. Sá sem fæddist 25. mars 1929 ermögulega enn lifandi og gæti allt eins mætt á næsta landsfund og lagt þar orð íbelg. Hann gæti hafa mætt á sinn fyrsta stjórnmálafund sem unglingur þar semengin voru snjalltækin heldur haldnir málfundir. Hann heillaðist af hugmyndinnium frelsið, tækifærin og að geta elt hamingjuna á eigin forsendum.Stuðningurinn hélt svo áfram í gegnum öll hans æviskeið, þrátt fyrirsíbreytilega sérhagsmuni unglings, námsmanns, einstaklings, launþega,fyrirtækjaeiganda, fasteignaeiganda, fjölskyldumanns eða eldri borgara.

Á hverju einasta stigi gat hann sagt; ég vil frekar takaþessa ákvörðun er varðar mitt líf en embættismaður sem ég hef aldrei hitt. Þegarhugmyndir eru sterkar og höfða til hjartans geta þær fylgt fólki í gegnumlífið. Eitt sinn var sagt að grunngildi Sjálfstæðisflokksins væru um margt einsog fjöllin – þau standa stöðug áratugum saman, taka á sig vind dag hvern enbjóða alltaf hverjum sem koma vill að leggja með sér á brattann og berjastfyrir betri tíð. Þegar það svo tekst og upp er komið er útsýnið gott. Eitt ervíst, að fáar stefnur hafa haldið gildi sínu betur en sjálfstæðisstefnan á þeim90 árum sem að baki eru.

Næstu 90 ár

Það má ljóst vera af því sem að framan segir að næstu 90 áreru í senn óviss og spennandi en um leið fyrirséð. Barátta hugmyndanna helduráfram þótt tískan breytist, leiðtogar komi og fari, fylgi fari upp og niður ognýjasta tækið sé alltaf margfalt merkilegra en það síðasta.

Hvað verður í fjölmiðlum ársins 2109 er erfitt að sjá fyrirsér. Ef eitthvað er að marka síðustu 90 ár verður þar fjallað um tíðindi fráöðrum löndum, skattamál, kjaramál og nýjustu tækni. Smásalar reyna að náathygli lesenda með vörum sínum og vonandi verður áfram tilboð á eggjum einhversstaðar.

Úrslitaspurningin

Það má lengi spá í spilin og velta fyrir sér fortíð ogframtíð. Hvað sem verður er eitt þó víst. Árið 2109 mun einhver leggja til aðríkið taki að sér verkefni í stað einkaaðila, einhver mun telja rétt að meiraverði tekið af einstaklingum og fyrirtækjum til að fjármagna gæluverkefni,einhver mun biðja stjórnmálamenn um að vernda sig gegn samkeppni og enn annarmun leggja til að einhverjum verði bannað að leita hamingjunnar af því að þaðsamræmist ekki tískunni, trúnni eða viðteknum venjum. Hver á þá að standa vörð umatvinnu- og einstaklingsfrelsi? Vonandi Sjálfstæðisflokkurinn.

Höfundur er aðstoðarmaður ráðherra og var formaður SUS á árunum 2015-2017.

Greinin birtist í vorhefti Þjóðmála, 1. tbl. 2019, undir greinaflokk um Sjálfstæðisflokk framtíðarinnar, sem birtur er í tilefni 90 ára afmæli flokksins . Hægt er að gerast áskrifandi að Þjóðmálum með því að senda tölvupóst á askrift@thjodmal.is eða skilaboð á facebook síðu ritsins. Ritið færst einnig í lausasölu í verslunum Pennans/Eymundsson.

Previous
Previous

Flokkadrættir

Next
Next

Kjarninn – að kaupa sig til áhrifa