Flokkadrættir

Á tímamótum eins og afmælum er gjarnan litið yfir farinn veg. Skoðað hvert við erum komin og hvernig við komumst þangað. Það er ekki síður mikilvægt, og jafnvel enn mikilvægara, að horfa fram á veginn, marka stefnuna og ákveða hvert við ætlum að fara. Ég hef gegnt margvíslegum trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn síðan ég var 17 ára, eða í meira en 20 ár. Verið formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna og hverfafélags, setið í miðstjórn, flokksráði, kjörnefndum og kjördæmisráði og setið í stjórn ungliðafélags, fulltrúaráðs og málefnanefnda. Ég hef tekið þátt í millilandasamstarfi við systurflokka og í starfi flestra stofnana flokksins, þó ekki í Landssamböndum sjálfstæðiskvenna og eldri sjálfstæðismanna.
Í tilefni af 90 ára afmæli Sjálfstæðisflokksins vil ég því stinga niður penna og segja frá því hver mín sýn er á það hvert flokkurinn ætti að vera að stefna og hvaða áherslur hann ætti að hafa.
1. Landsmál
Þegar ég hef verið spurður af útlendingum hvers konarflokkur Sjálfstæðisflokkurinn er hef ég gjarnan lýst honum sem hófsömum hægriflokkieða hægri-miðjuflokki. Það verður seint sagt að hann sé hreinn hægriflokkur, frjálshyggjuflokkureða einhvers konar öfgahægriflokkur. Í raun mætti miklu frekar segja að hann séstærsti velferðarflokkur landsins. Sjálfstæðisflokkurinn á mjög stóran þátt íþví öfluga velferðarkerfi sem við búum við og það er vel. Í ljósi stærðarsinnar og tíðrar veru í ríkisstjórn hefur hann verið leiðandi í því hlutverkisem sósíaldemókrataflokkarnir á Norðurlöndum hafa verið. Í þeim löndum eruhægriflokkarnir yfirleitt talsvert minni og hreinni í sinni hægristefnu. Íeinni setningu mætti segja að Sjálfstæðisflokkurinn ætti að standa fyrirlágmörkun ríkisafskipta og þar með aukið frelsi.
Birtingarmyndir þess eru þríþættar.
1.1 Fjárhagslegt frelsi
Í fyrsta lagi ætti ætti ríkið að skipta sér sem minnst afþví hvernig fólk og fyrirtæki ráðstafa fé sínu með því að lágmarka skattheimtu.Opinber útgjöld á Íslandi eru þau þriðju hæstu meðal þróaðra ríkja, eða 41% aflandsframleiðslu. Það þarf miklar skatttekjur til að standa undir öllum þessumútgjöldum. Skattheimta á Íslandi er enda sú þriðja hæsta meðal þróaðra ríkja,eða 33% af landsframleiðslu. Þetta ætti að segja okkur að skattheimta gæti ekkiverið meiri án þess að það hafi slæm áhrif á samkeppnishæfni útflutningsgreina okkar.Lakari samkeppnishæfni þeirra myndi svo skila sér í minni fjárfestingu og færriog ótryggari störfum, sem myndi á endanum minnka skatttekjur. Skattheimta erþví í botni.
Lönd sem halda úti öflugum velferðar- og menntakerfum getaþað auðveldlega með minni útgjöldum og minni skattheimtu. Öll önnur lönd semvið berum okkur saman við þurfa þó að verja talsverðu fé til hernaðarmála og ímörgum þeirra þurfa ríkissjóðir að sinna hlutverki sem lífeyrissjóðir sinnahér. Munurinn liggur í því að við nýtum fé ekki nægjanlega vel og við erum aðverja of miklu fé í hluti sem eru utan þess sem ætti að skilgreina semgrunnhlutverk ríkisins; réttarvörslu, velferð, menntun og samgöngur. Gripið vartil skattahækkana í kreppunni í kjölfar hrunsins 2008 sem standa að mestu óhaggaðarþrátt fyrir það góðæri sem við höfum gengið í gegnum síðustu ár. Með skattheimtuí botni, eins og rakið var að framan, erum við því ekki vel búin undir næstuniðursveiflu, sem mun óhjákvæmilega koma einhvern tímann. Á hinn bóginn hafa opinberarskuldir lækkað skarpt síðustu ár svo að ríkissjóður er að því leyti vel búinn undirniðursveifluna.
Við þetta bætist að framfarir í læknavísindum og hækkandimeðalaldur þjóðarinnar gerir það að verkum að þrýstingur á aukin útgjöld tilheilbrigðismála mun halda áfram að aukast. Við erum nú að ganga í gegnum tæknibreytingarsem oft eru kallaðar fjórða iðnbyltingin. Þær breytingar kalla á að sum störfverða óþörf og önnur koma í staðinn. Það mun valda auknum þrýstingi á útgjöld tilfullorðinsfræðslu, sem er stundum kölluð fjórða stoð menntakerfisins. Mikilríkisútgjöld eru því búin að koma okkur í mjög þrönga stöðu sem á bara eftir aðversna. Við munum ekki losna úr henni með flatri hagræðingarkröfu eingöngu.Þessi vandi verður aðeins leystur með tvennu.
Annars vegar breyttri forgangsröðun sem þýðir að ríkiðverður að hætta að veita fé til margra þeirra málaflokka sem eru utangrunnhlutverks ríkisins og draga úr útgjöldum til annarra. Hins vegar verður aðauka aga í útgjöldum til þeirra málaflokka sem eftir eru. Það þarf að geraauknar kröfur til þeirrar þjónustu sem ríkið vill fá fyrir peningana með því aðgera fleiri mælanlegar gæðakröfur. Þar þarf einnig að nýta betur kostieinkarekstrar og eftirláta einkaaðilum að reka stofnanir og mannvirki sem ríkiðrekur í dag, þótt ríkið haldi áfram að fjármagna þær. Þetta á sérstaklega við ívelferðar-, mennta- og samgöngumálum. Forgangsröðun og agi í ríkisfjármálum erí raun stærsta velferðarmálið því það mun gera okkur kleift að sinna þeimmálaflokki vel til framtíðar.
1.2 Atvinnufrelsi
Í öðru lagi ætti Sjálfstæðisflokkurinn að standa fyriratvinnufrelsi. Fyrirtækið er ein mikilvægasta uppfinning sögunnar. Það að einstaklingargeti komið saman og myndað félag til að skapa eitthvað án þess að hætta öðru enhlutafé sínu hefur verið lykill að mörgum þeim framförum sem við höfum séð ásíðustu áratugum. Þær framfarir hafa átt þátt í auknum lífsgæðum víðast hvar umheim.
Á Íslandi eru það útflutningsfyrirtæki sem eru grundvöllurlífsgæða okkar. Þau skapa störf, bein og afleidd, og standa undir skatttekjum semgera okkur kleift að halda úti velferðarsamfélagi. Öflug útflutningsfyrirtækieru ekki sjálfsögð. Við þurfum að hlúa að þeim. Til viðbótar við hóflegaskattlagningu, eins og rakið var að framan, er mikilvægt að lagaumhverfi þeirrasé ekki of íþyngjandi.
Þar er nærtækast að líta til annarra landa á Evrópskaefnahagssvæðinu. Stór hluti löggjafarinnar um íslenskt atvinnulíf kemur þaðanog stór hluti viðskipta okkar á sér stað innan svæðisins. Oft hefur Íslandákveðið svigrúm þegar reglur EES eru innleiddar til að ákveða hversu íþyngjandiþær eiga að vera. Því miður er of algengt að meira íþyngjandi leiðir séufarnar. Meira íþyngjandi reglur auka kostnað fyrirtækja, sem minnkar um leið samkeppnishæfniþeirra. Til þess að íslensk fyrirtæki geti séð sem flestum fyrir öruggum störfumog hafi svigrúm til að borga sem hæst laun og hæsta skatta er þvígrundvallaratriði að lagaumhverfi þeirra sé ekki íþyngjandi í samanburði viðönnur lönd. Við ættum því alltaf að fara eins lítið íþyngjandi leiðir og hægter.
Áframhaldandi vera Íslands í EES skiptir Ísland miklu málivegna þess aðgangs sem hún veitir íslenskum fyrirtækjum að innri markaðiEvrópu. Hún gerir það líka að verkum að minni ástæða er fyrir Ísland til að gangaí Evrópusambandið. Samningurinn hefur líka fært okkur frelsi á ýmsum sviðum. Svariðvið spurningunni um inngöngu í Evrópusambandið ætti að ráðast af hagsmunamati frekaren þjóðerniskennd. Það hagsmunamat breytist óhjákvæmilega eftir aðstæðum hér álandi og því hvernig sambandið þróast. Fólk getur litið þetta hagsmunamatólíkum augum og því ætti Sjálfstæðisflokkurinn vel að geta rúmað fólk sem erhlynnt og andvígt inngöngu í ESB. Fólk sem hefur sterkar skoðanir á þessu þarf aðhafa skilning á skoðunum fólks sem er því ósammála. Í mínum huga er hagsmunum Íslandsbest borgið utan Evrópusambandsins. Þar ræður mestu að mikilvægt er að við höfumáfram stjórn á sjávarútveginum.
1.3 Persónufrelsi
Í þriðja lagi ætti ríkið sem minnst að skipta sér af þvíhvað sjálfráða fólk aðhefst. Að sjálfsögðu með hinum hefðbundna fyrirvara um aðþað sé ekki að skaða aðra eða stefna þeim í hættu. Það er helst þegar kemur að neyslu,hvort sem það er á sykri, áfengi eða öðrum vímuefnum, eða kynhegðun fólks semríkisvöld sjá ástæðu til að skipta sér um of af fólki. Sjálfstæðisflokkurinnhefur verið á móti sykurskatti og það voru fyrst og fremst sjálfstæðismenn sembörðust fyrir því að bjórinn var leyfður. Þá hefur stefna flokksins verið aðafnema einkasölu ríkisins á áfengi og þingmenn flokksins hafa lagt fram frumvörpþess efnis, þótt ekki hafi tekist að fá nægjanlegan stuðning alþingismanna til þessað klára málið. Ungir sjálfstæðismenn hafa opnað á umræðuna um að tekið verði ávímuefnavandanum með forvörnum og aðstoð við fíkla frekar en með bönnum og refsingum.Sjálfstæðisflokkurinn hefur lengi verið í fararbroddi þegar kemur að réttindum samkynhneigðraog hefur átt þátt í flestum þeim réttarbótum sem orðið hafa á því sviði.
Séreignarrétturinn er órjúfanlegur þáttur í frelsieinstaklings. Það sem greinir lönd með miklum lífsgæðum frá öðrum er að þar erséreignarréttur skýrt skilgreindur og verndaður. Þannig hefur það verið áÍslandi frá því að land byggðist. Séreignarstefna virðist líka rík í hugumlandsmanna. Þannig myndu t.d. um 80% þeirra sem eru á leigumarkaði frekar viljabúa í eigin húsnæði. Húsnæðisstefna stjórnvalda ætti því fyrst og fremst aðsnúa að því að gera sem flestum sem auðveldast að eignast sitt eigið húsnæði. Annarangi þessa er að eignarhaldi á auðlindum sé best komið í höndum einstaklinga.Engir aðrir hafi meiri hagsmuni af því að tryggja sjálfbæra nýtingu þeirra tillangs tíma.
Átakalínurnar um þetta liggja fyrst og fremst ísjávarútvegi. Þar verður flokkurinn að halda áfram að standa vörð umaflamarkskerfið og beita sér fyrir því að aflaheimildir séu varanlegar ogframseljanlegar.
Það ætti ekki að vera neinn tímafrestur á persónufrelsinu.Með því á ég við að það er engin ástæða til þess að það taki bara til okkar semáttum forfeður sem voru innflytjendur heldur ætti það líka að taka til nýrraÍslendinga. Það er ekki bara siðferðisleg skylda okkar að taka vel á mótiútlendingum sem vilja koma hingað til að vinna heldur sýna rannsóknir að íþróuðum ríkjum hafa innflytjendur jákvæð áhrif á lífsgæði þeirra sem fyrir eruí landinu. Þeir sinna störfum sem væri ella ekki sinnt og þurfa að kaupa vörurog þjónustu og auka þannig hagvöxt.
2. Borgarmál
Grundvallaratriði í stefnu Sjálfstæðisflokksins íborgarmálum ætti að vera að borgin sé góður og skemmtilegur staður til að búaá. Þar gilda að sjálfsögðu sömu lögmál og rakin voru að framan um lága skatta,aðhald í rekstri og einkarekstur. Það sem sameinar borgir sem skemmtilegt er aðheimsækja er að þær eru þéttbyggðar og skipulag þeirra hverfist ekki um bíla.Reykjavík má því gjarnan vera þéttari en samgöngur þurfa líka að vera greiðari.Fleiri og afkastameiri mannvirki fyrir bíla munu bara auka umferð, en greiðaekki fyrir henni. Það þarf því að leggja áherslu á fjárfestingar sem gera fólkiauðveldara að komast leiðar sinnar gangandi, hjólandi eða í almenningssamgöngum,t.d. með Borgarlínu. Það gagnast ekki síst þeim sem vilja fyrst og fremstkeyra. Þá er mikilvægt að Reykjavíkurflugvöllur fari úr Vatnsmýrinni því þargefst einstakt tækifæri til að byggja nýtt og þétt hverfi miðsvæðis í borginni.
3. Innra starfið
Stjórnskipulag Sjálfstæðisflokksins var búið til þegarflokkurinn var stærri og fyrir tíma stafrænna samskipta. Skipulagið er því barnsíns tíma og þarfnast gagngerrar endurskoðunar. Flokkar eru verkfæri til aðhrinda hugsjónum í framkvæmd. Það er því mikilvægt að verkfærið virki sem bestog sé í takt við þann tíma sem á að nota það á. Flokksforystan getur nú komiðskilaboðum fljótt og milliliðalaust til flokksmanna í gegnum tölvupóst ogsamfélagsmiðla. Það er því ekki lengur þörf á öllum þeim fjölda félaga ogstofnana sem nú er innan flokksins. Þannig eru t.d. 18 sjálfstæðisfélög íReykjavík, þar af 15 almenn hverfafélög. Þau miða við gamla hverfaskiptingu semfáir þekkja eða skilja. Þannig eru til dæmis þrjú mismunandi hverfafélög sem náyfir mismunandi hluta póstnúmersins 101. Sameina ætti öll hverfafélögin í eitt.Þá má velta fyrir sér hvort að hin svokölluðu málfundafélög séu ekkitímaskekkja.
Það er ekkert launungarmál að klofningur er í starfi ungasjálfstæðismanna og í starfi flokksins í Reykjavík. Sá klofningur er djúpstæðurog hefur verið viðvarandi í marga áratugi. Hann byggir að litlu leyti áhugsjónum en miklu meira á afstöðu til kjörinna fulltrúa flokksins og ræður ofttilviljun í hvorri fylkingunni menn lenda. Kosturinn við þetta er að það heldurfólki á tánum í nýliðun og þetta fjölgar þeim sem skrá sig í flokkinn og sækjafundi þar sem kosningar fara fram.
Gallarnir eru hins vegar miklu veigameiri. Þetta gerir þaðað verkum að þegar önnur fylkingin vinnur og tekur stjórn í félagi er hin fylkinginekki virk innan félagsins á meðan. Fólk velst einnig frekar til ábyrgðarstarfa innanflokksins á grundvelli hollustu við aðra hvora fylkinguna frekar en hæfni.
Það snýst allt um að vinna kosningar innan flokksins ogvaldastóla frekar en að vinna saman að því að vinna sigra í alþingis- eða sveitarstjórnarkosningum.Starfið snýst frekar um að halda röngu fólki úti en að koma góðu fólki inn.Þetta hefur líka fælt marga almenna stuðningsmenn flokksins frá því að takaþátt í starfinu. Það er ekki óeðlilegt að fleiri en einn gefi kost á sér tilábyrgðarstarfa innan flokksins og að kosið sé á milli þeirra. Það er hins vegarmjög óeðlilegt að það séu alltaf sömu fylkingarnar sem takast á og bjóða sínafulltrúa fram í þau embætti sem losna. Ég kemst ekki hjá því að játa að ég hefsjálfur tekið þátt í þessum klofningi og jafnvel átt þátt í að ýta undir hann.En ég hef í seinni tíð komist á þá skoðun, og trúi því einlæglega, að þettaverði að hætta svo að flokkurinn nái vopnum sínum í Reykjavík.
4. Að lokum
Nýjar kynslóðir kjósenda kalla á meira frjálslyndi og minniíhaldssemi. Ungt fólk virðist hafa minni áhuga á flokksstarfi en þeir sem eldrieru. Þó virðist áhugi ungs fólks á ýmsum málefnum og hvers kyns aðgerðahyggjuvera mikill. Til þess að höfða betur til þessara nýju kynslóða mætti því talameira um hugmyndafræði. Margir stjórnmálamenn eru of hræddir við það eða skortirhugsjónir til þess. Þá er mikilvægt að átta sig á því að stjórnmálaflokkar sem viljaláta taka sig alvarlega eiga ekki að elta almenningsálitið, heldur að móta það.Ekki að fylgja kjósendum heldur fá kjósendur til að fylgja sér. Hlutverkstjórnmálaflokka er að sannfæra sem flesta um að grunngildi þeirra séu best tilað búa til betra samfélag.
Höfundur er lögmaður og MBA og var formaður SUS á árunum 2011-2013.
—
Greinin birtist í vorhefti Þjóðmála, 1. tbl. 2019, undir greinaflokk um Sjálfstæðisflokk framtíðarinnar, sem birtur er í tilefni 90 ára afmæli flokksins . Hægt er að gerast áskrifandi að Þjóðmálum með því að senda tölvupóst á askrift@thjodmal.is eða skilaboð á facebook síðu ritsins. Ritið færst einnig í lausasölu í verslunum Pennans/Eymundsson.