Áslaug Arna: Tímarnir breytast og stjórnmálin þurfa að taka mið af því
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ritari Sjálfstæðisflokksinsog formaður utanríkismálanefndar Alþingis, var kjörin á þing haustið 2016 oghefur verið áberandi í forystu flokksins á undanförnum árum. Í viðtali viðÞjóðmál fer Áslaug Arna yfir stöðu Sjálfstæðisflokksins á 90 ára afmæliflokksins og mikilvægi þess að hann svari kalli um nýja tíma og nýjar áherslurog störf sín sem þingmaður. Hér birtist sá hluti úr viðtalinu.
Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins lauk nýlega við hringferðum landið, þar sem yfir 50 sveitarfélög víðs vegar um landið voru heimsótt. Ferðinvakti mikla athygli, sérstaklega á samfélagsmiðlum, og fundir þingflokksins vorualmennt vel sóttir.
„Svona hringferð gerir heilmikið, bæði fyrir þingflokkinn ogþá sem komu og hittu okkur víðs vegar um landið,“ segir Áslaug Arna spurð umferðina.
„Þingmenn nýta svokallaðar kjördæmavikur til að heimsækjakjördæmi sín og það er allur gangur á því hvers konar fundarform er notað. Viðákváðum að breyta til og gera eitthvað sem hafði ekki verið gert áður og égheld að mér sé óhætt að segja að það hafi tekist vel. Það var líka við hæfi aðgera þetta stærra og veglegra en áður enda 90 ára afmæli flokksins í ár. Meðþessu móti fær allur þingflokkurinn að kynnast fleiri hliðum þjóðfélagsins ogfær vitneskju um þær áskoranir sem blasa við fólki á öllum aldri um allt land.“
Áslaug Arna segir að ferð sem þessi sé til þess fallin aðauka nánd á milli kjörinna fulltrúa og kjósenda.
„Það er mikilvægt að kjósendur eigi greiðan aðgang aðþingmönnum,“ segir Áslaug Arna.
„Við erum aldrei hrædd eða feimin við að mæta kjósendum. Þaðgefur fólki möguleika á samtali við þingmenn sína og ráðherra. Við tökum margtút úr svona ferð, skiljum betur áherslumál ólíkra byggða og allt leiðir þetta tilþess að stjórnmálamenn læra að forgangsraða verkefnum sínum enn betur. Það varlíka einstakt að heyra frá fólki hvað það er ánægt með, hvað við höfum gert semhefur haft góð áhrif á líf þess og síðan hvað við getum gert betur.“
Sjálfstæðisflokkurinnþarf að höfða til ólíkra hópa og einstaklinga
En víkjum þá að Sjálfstæðisflokknum og stöðu hans. Eins ogfram kom eru nú liðin 90 ár frá stofnun flokksins. Í þessu riti Þjóðmála er birturgreinaflokkur um stöðu og framtíðarhorfur Sjálfstæðisflokksins en það verðurekki hjá því komist að spyrja Áslaugu Örnu, sem er ritari flokksins, um stöðuhans. Það verður að segjast eins og er að margir horfa til þess tíma semSjálfstæðisflokkurinn var með 30-40% fylgi en flokkurinn mælist nú með um 25%fylgi.
„Ég skil vel að menn skuli hugsa með hlýjum hug til þesstíma þegar Sjálfstæðisflokkurinn var 35% flokkur en til þess að verða aftur svostór flokkur er ekki eingöngu hægt að gera allt eins og hann gerði á síðastaáratug síðustu aldar,“ segir Áslaug Arna.
„Við erum nú með allt annan kjósendahóp og öðruvísipólitískt landslag. Sjálfstæðisflokkurinn á erindi við alla landsmenn á öllumaldri en við þurfum samt að átta okkur á því að ekki eru allir í sama forminu. Sjálfstæðisflokkurinnþarf að höfða til ungra sem aldinna, þeirra sem búa á höfuðborgarsvæðinu og álandsbyggðinni, kvenna og karla. Við þurfum að gæta að því að tala við alla ogleyfa fjölbreytt sjónarmið.“
Þú vísar í yngrikjósendur. En eru hagsmunir ungs fólks í grunninn ekki þeir sömu og þeir vorufyrir 20 árum, að koma sér upp heimili, stofna fjölskyldu, velja sérstarfsferil og svo framvegis?
„Jú, í grunninn eru þeir það en tímarnir eru samt aðbreytast og stjórnmálin þurfa að taka mið af því,“ segir Áslaug Arna.
„En það er rétt aðgrunnþarfirnar eru oft þær sömu. Þess vegna hef ég meðal annars lagt framfrumvarp um að afnema stimpilgjöld af fasteignalánum fyrir einstaklinga. Afnám stimpilgjalda,sem eru ekkert annað en ósanngjarn skattur, er skref í því að auðvelda ungufólki að eignast íbúð en að sama skapi gagnast það einnig eldri einstaklingumsem vilja minnka við sig. Við eigum alltaf að reyna að einfalda öll kerfi einsog hægt er og það er það sem Sjálfstæðisflokkurinn á að standa fyrir – aðauðvelda líf sem flestra.“
Áslaug Arna segir í framhaldinu að þó svo að grunnþarfirungs fólks séu að mörgu leyti þær sömu og fyrir 20 árum þurfi stjórnmálin aðtaka mið af breyttum tímum. „Fólk vill og hefur meira frelsi en það hafði fyrir20 árum. Við sjáum það til dæmis á vinnumarkaði en einnig í mörgu öðru,“ segir ÁslaugArna.
„En almennt vill fólk hafa frelsi og frjótt umhverfi til aðskapa sína eigin hamingju og grípa þau tækifæri sem gefast. Það er hlutverkstjórnmálamanna að skapa þann grundvöll og án afskipta ríkisins, eða öllu heldurán þess að ríkið leggi stein í götu þess. Fólk hefur miklu fleiri tækifæri tilað nálgast upplýsingar, mennta sig, meira svigrúm á vinnumarkaði og svoframvegis. Ungt fólk hefur líka fleiri tækifæri til að bæði mennta sig ogstarfa erlendis. Alþjóðavæðingin er alltaf að aukast og við þurfum að vera óhræddvið að taka þátt í henni.“
En er flokkurinn eðastefna hans gamaldags?
„Að sumu leyti er hann það en það má allt eins gera ráðfyrir því að 90 ára gamall flokkur sé á einhvern hátt gamaldags,“ segir Áslaug Arna.
„Á sama tíma stendur hann á traustum og einstökum grunni oginnan hans eru aðilar sem hafa mikla og góða reynslu. Sjálfstæðisflokkurinn erríkastur allra flokka af fólki alls staðar um land. Það er mjög dýrmætt að hafareynt fólk innan hans og fyrir yngra fólk að geta leitað til þeirra sem erureyndari og lært af þeim. En flokkurinn getur ekki stoppað þar, við þurfumalltaf að gæta að því að standast tímans tönn og höfða til ólíkra hópa ogeinstaklinga og það var einmitt það sem ég ræddi þegar ég bauð mig fyrst framsem ritari árið 2015.“
Grunngildin enn tilstaðar
Áslaug Arna vísar hér til landsfundar Sjálfstæðisflokksins haustið2015. Fyrir landsfundinn hafði ungliðahreyfing flokksins farið yfir drög aðlandsfundarályktunum og gert á þeim breytingar sem miðuðu að því að auka frelsienn frekar, minnka ríkisafskipti og svo framvegis. Ungliðarnir skipulögðu vinnusína vel og mönnuðu málefnanefndir fundarins í þeim tilgangi að vinna hugmyndumsínum brautargengi og náðu í því töluverðum árangri.
Í stuttu máli mætti segja að ungliðahreyfingin hafi gertuppreisn í málefnastarfi flokksins – og í kjölfarið á því var Áslaug Arnakjörin ritari flokksins. Nú eru liðin um þrjú og hálft ár og það liggur þvíbeinast við að spyrja Áslaugu Örnu hvort þetta hafi á einhvern hátt haft jákvæðáhrif á stefnu og starf Sjálfstæðisflokksins.
„Já, þetta hafði jákvæð áhrif og við sáum það meðal annars íkosningabaráttu flokksins haustið 2016,“ segir Áslaug Arna.
„Þegar ég bauð mig fram var Sjálfstæðisflokkurinn að mælastmeð um 20% fylgi en við fengum síðan um 29% í kosningunum 2016. Þá höfðum viðverið í ríkisstjórn í rúm þrjú ár og fórum inn í kosningar eftir erfiðleika í stjórnarsamstarfinu.Niðurstaða kosninganna var ánægjuleg fyrir flokkinn. Bjarni Benediktsson, formaðurSjálfstæðisflokksins, sýndi það líka eftir kosningar að hann treystir ungufólki fyrir ábyrgðarhlutverkum. Ég varð formaður allsherjar- ogmenntamálanefndar og Þórdís Kolbrún Gylfadóttir varð ráðherra. Við vorum báðarað koma nýjar inn á þing og ekki orðnar þrítugar.“
Áslaug Arna segir að í framhaldinu sé mikilvægt, burtséð fráeinstaka persónum eða þingmönnum, að Sjálfstæðisflokkurinn sýni að hann eigierindi við fjölbreyttan hóp kjósenda.
„Ég nefndi hér áðan að við værum gjörn á að vísa í árangurSjálfstæðisflokksins á árum áður en við þurfum fyrst og fremst að sýna fram aðvið eigum erindi við nútímann og framtíðina. Því Sjálfstæðisflokkurinn ogstefna hans á alltaf við. Það má nefna sem dæmi að þær áskoranir sem íbúar áhöfuðborgarsvæðinu standa frammi fyrir eru aðrar en þær sem íbúarlandsbyggðarinnar standa frammi fyrir. Við getum talað við báða hópa en þaðþarf kannski að gera það með mismunandi hætti,“ segir Áslaug Arna.
Er ekki hætt við þvíað flokkurinn svíki sín eigin prinsipp ef hann telur sig þurfa að þóknastöllum?
„Ég er ekki að segja að við þurfum að þóknast öllum endagengur það ekki upp,“ segir Áslaug Arna.
„Það getur aldrei verið markmið stjórnmálamanna, eða stjórnmálaflokka, að ætla sér að þóknast öllum og ná til allra. Við höfum séð þannig flokka, sem enda yfirleitt á því að ná ekki til neinna og gera ekki neitt. Sjálfstæðisstefnan á víða sterkan hljómgrunn en þó svo að 20 ára gömul slagorð séu enn í fullu gildi þarf að átta sig á því að sama efni þarf að nálgast öðruvísi í dag. Grunngildin eru alltaf þau sömu; frjáls viðskipti, minna ríkisvald, lægri skattar, einstaklingsfrelsi, öflugt atvinnulíf og þannig mætti áfram telja. Við viljum búa til gott samfélag þar sem allir hafa skilyrði og tækifæri til að athafna sig og vera sinnar gæfu smiðir. Stefna Sjálfstæðisflokksins er forsenda allra framfara í landinu. Þau skilaboð eiga erindi við alla.“
—
Viðtalið birtist í vorhefti Þjóðmála, 1. tbl. 2019. Hægt er að gerast áskrifandi að Þjóðmálum með því að senda tölvupóst á askrift@thjodmal.is eða skilaboð á facebook síðu ritsins. Ritið færst einnig í lausasölu í verslunum Pennans/Eymundsson.