Silfrið: Vinstri-vísitalan heldur velli
Í vetrarhefti Þjóðmála 2018 var birtur listi yfir gesti Silfursins, stjórnmálaþáttar sem sýndur er í Ríkissjónvarpinu á sunnudögum. Þátturinn á sér langa sögu en hefur á undanförnum árum verið sýndur í ríkisfjölmiðlinum.
Tekið var fram að í lögum um Ríkisútvarpið ohf. er skýrtkveðið á um skyldu til óhlutdrægni og fyllstu hlutlægni í allri umfjöllun ogfréttaflutningi. Eftirfylgni á þessum lögum er þó ávallt háð huglægu mati. Fariðvar yfir þá gesti þáttarins sem tekið höfðu þátt í hinum fasta lið, Vettvangur dagsins frá því að Silfriðhóf aftur göngu sína sl. haust og fram í miðjan desember. Venjan er sú aðfjórir gestir taki þátt í umræðum um það sem helst ber á góma í stjórnmálumhverju sinni eða þá því sem þáttastjórnendum dettur í hug að fjallað um. Afþeim 55 einstaklingum sem þá hafði verið boðið í þáttinn til að ræða um viðhorfsín til stjórnmála var um helmingur þeirra einstaklingar sem flokka má semvinstrimenn.* Um fimmtung gesta mátti þá flokka sem hægri- eða miðjumenn.
Nú þegar liðið er fram í apríl (þegar vorhefti Þjóðmála kom út) hefur alls 121 gesti verið boðið að taka þátt undir þessum lið þáttarins. Eins og sjá má á listanum hér á opnunni hefur nokkrum verið boðið tvisvar og sumum þrisvar og eru nöfn þeirra talin upp eftir því.
Af þessum gestum er hægt með sanngjörnum hætti að flokka 63 þeirra sem vinstrimenn. Hlutföllin hafa því haldist svo gott sem óbreytt frá því í aðventunni. Af 121 gest mætti flokka 21 til hægri og 23 í miðju. Aðrir, 14 talsins, eru óflokkaðir eftir pólitísku litrófi.
*Sigríður María Egilsdóttir, varaþingmaður Viðreisnar, varranglega flokkuð á vinstri kantinum í síðasta riti. Þó svo að þingflokkur Viðreisnarteygi sig ítrekað í samstarf til vinstri má teljast fullgróft að Viðreisnarfólksem vinstrimenn og er Sigríður María beðin velvirðingar á þessum mistökum. Afgefnu tilefni og vegna athugasemda sem bárust frá fyrri útgáfu er rétt að takafram að þó svo að þingmönnum Viðreisnar sé hér ýtt frá vinstri og inn á miðjuverður seint sagt að fyrrverandi formaður flokksins, Benedikt Jóhannesson, séannað en hægrimaður.