Ríkislottóið sem elskar fátækt
Það er stundum sagt að lottó sé í raun skattur á heimsku,eða a.m.k. þá sem kunna ekki stærðfræði – það fer eftir því hversu grófir mennvilja vera. Ástæðan er einfaldlega sú að vinningsmöguleikarnir eru svostjarnfræðilega litlir að það liggi í augum uppi að kaup á lottómiða erafskaplega slæm fjárfesting.
Í greinsem Arthur C. Brooks, forseti bandarísku hugveitunnar American EnterpriseInstitute, birti í Wall Street Journal sl. haust fjallar hann um Powerballlottóið sem spilað er í Bandaríkjunum. Powerball er spilað í flestum ríkjumvestanhafs og er í eigu þeirra ríkja þar sem það er spilað. Powerball er m.ö.o.ríkislottó og ágóðinn af því er notaður til að fjármagna ýmis gæluverkefnistjórnmálamanna. Brooks rifjar upp að stjórnmálamenn hafi ætlað sér að nýtahagnaðinn af lottóinu til að berjast gegn fátækt, en raunin sé sú að lottóiðfeli í raun í sér aukin útgjöld þeirra sem minna hafa á milli handanna.
Brooks bendir á að tekjur hins opinbera af Powerball lottóinusé um 70 milljarðar Bandaríkjadala á ári hverju. Hagnaðurinn af lottóinu er um33%, sem er mun hærri framlegð en hjá einkareknum veðmálafyrirtækjum ogspilavítum. Með öðrum orðum, það eru meiri líkur á því að vinna með því aðheimsækja spilavíti heldur en að spila í ríkislottóinu.
Að sögn Brooks eru þeir sem fátækari eru stærstuviðskiptavinir lottósins. Vissulega eru þeir til sem kaupa miða öðru hvoru, enrannsóknir sýni mikil tengsl milli fátæktar og kaup á lottómiðum. Þannig kaupirfátækasti þriðjungur um helming allra lottómiða vestanhafs, sem er einmittástæðan þess að lottó sé auglýst mikið í fátækari hverfum.
„Þú gætir sagt að hér sé um að ræða skaðlausa skemmtun en þeirsem fátækari eru sjá það ekki með þeim hætti. Þeir hafa tilhneigingu til að lítaá kaup á lottómiða sem fjárfestingu,“ segir Brooks og vísar í rannsóknfrá árinu 1990, sem framkvæmd var af þeim Charles Clotfelter og Philip Cookí Duke háskólanum. Þar kemur fram að þeir sem þéni undir 30 þúsund dali á áriséu líklegri til að spila lottó peninganna vegna frekar en til skemmtunar.Brooks segir að það komi í sjálfu sér ekki á óvart, enda séu lottómiðarnirauglýstir þannig og auglýsingunum meðvitað beint að þeim sem hópum sem hafaminnst á milli handanna. Þannig séu lagðar fyrir fátækt fólk tálsýnir um auðæfi,sem séu með öllu óraunhæfar.
Brooks bendir á að líkurnar á því að vinna í lottóinu séu 1á móti 292 milljónum. Aftur á móti séu til gögn sem sýni að þeir sem ekki hafalokið háskólaprófi telji líkurnar á vinningi 40% hærri en þær eru í raun ogveru, á meðan þeir sem lokið hafa prófi hafi raunhæfari mynd afvinningsmöguleikum. Þá sé jafnframt algengt að kaupendur á lottómiðum kaupimiða sína á stöðum sem hafi áður selt vinningsmiða, þó staðreyndin sé sú aðlottótölur hverju sinni komi upp af algjöru handahófi. Brooks vísar í rannsóknfrá árinu 2008 sem sýni að staðir sem selt hafi vinningsmiða séu líklegirtil að auka sölu á lottómiðum um 38% í vikunni á eftir. Þetta eigi sérstaklegavið á svæðum hvar íbúar hafi hætt snemma í skóla og/eða reiða sig að mikluleyti á hið opinbera velferðarkerfi. Sama rannsókn sýni að þeir sem minna hafiá milli handanna verji hluta af því fjármagni sem annars hefði farið ímatarinnkaup og greiðslur af lánum og leigu til lottókaupa.
„Það er ákveðin kaldhæðni fólgin í því að hið opinbera skuliverja milljörðum í matar- og húsnæðisúrræði fyrir fátækt fólk á sama tíma ogþað hvetur þessa sömu einstaklinga til að verja fjármagni sínu í ríkislottóið,“segir Brooks í grein sinni og veltir því síðan fyrir sér hvort mögulega sé tilmeiri mótsögn en sú sem felst í því að ota lottómiðum að fátæku fólki og látasama fólk skrá sig fyrir velferðarúrræðum og gera það enn fjárhagslega háðarahinu opinbera.