Sumarhefti Þjóðmála er komið út

Sumarhefti Þjóðmála er komið út og verður dreift tiláskrifenda. Í blaðinu er sem fyrr mikið af áhugaverðu efni.

Lilja DöggAlfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra og varaformaður Framsóknarflokksins,er í ítarlegu viðtali um mótun menntastefnu, mikilvægi kennara, árangur okkar íefnahagsmálum á liðnum árum, evruna, stöðu Íslands í Evrópusamstarfinu og margtfleira.

Björn Bjarnasonfjallar um umrót í íslenskum stjórnmálum vegna þriðja orkupakkans.

Hannes G. Sigurðsson,aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, fjallar um framleiðni ogforsendur betri lífskjara.

Erlendur Hjaltasonskrifar minningarorð um Hörð Sigurgestsson, fv. forstjóra Eimskips.

Hannes H.Gissurarson stjórnmálafræðiprófessor fjallar um einn hugsuð jafnaðarstefnunnar,Thomas Piketty.

Pétur Magnússonfjallar um fyrirhugaðan sykurskatt og möguleg áhrif hans.

Fredrik Kopschfjallar um pólitísk afskipti af leigumarkaði og hvort þau séu nauðsynleg.

Gunnar Björnssonfjallar um skákkennslu í skóla og átök í norskum skákheimi.

Björn Jón Bragasonfjallar um heimsókn sína til Maríusystra í Darmstadt.

Fjölnir hefur göngusína á ný og fjallar um seðlabankastjóraskipti. 

Sigurður Már Jónssonfjallar um Kjarnann í umræðunni.

Kai Wess fjallar umsannleiksgildi hins ­norræna sósíalisma.

Í tilefni þess að 70ár eru liðin frá stofnun NATO endurbirtir Þjóðmál grein eftir Ólaf Egilssonsendiherra þar sem fjallað er um aðkomu Íslands að stofnun bandalagsins.

Að auki eru birtirkvikmynda- og bókadómar.

Þjóðmál kemur út ársfjórðungslega. Áskriftarverð er kr. 5.855 á ári. Hægt er að gerast áskrifandi að Þjóðmálum með því að senda tölvupóst á askrift@thjodmal.is eða skilaboð á facebook síðu ritsins. Ritið færst einnig í lausasölu í verslunum Pennans/Eymundsson.

Previous
Previous

Lélegur lífskjarasamningur og hálaunaðir ríkisstarfsmenn

Next
Next

Ríkislottóið sem elskar fátækt