Lélegur lífskjarasamningur og hálaunaðir ríkisstarfsmenn
Það er óhætt að segja að kjaraviðræður hafi einkenntstærstan part umræðunnar síðastliðinn vetur, í það minnsta í stjórnmálum ogatvinnulífinu. Það þurfti ekki mikla skynsemi eða þekkingu á efnahagsmálum tilað sjá að kröfur verkalýðsfélaganna voru með öllu óraunhæfar og sjálfsagt hafa samninganefndirhinna ýmsu samtaka innan atvinnulífsins oft þurft að bíta á jaxlinn til að hleypaviðræðunum, ef viðræður skyldi kalla, ekki upp í loft þegar sumum þessara krafavar varpað fram.
Og þó. Eins og búast mátti við var engu að síður boðað tilverkfalla með látum. Það vildi einmitt svo skemmtilega til að daginn eftir að boðaðhafði verið til verkfalla var verkalýðsfélagið Efling tilbúið með sérstakaverkfallsbifreið sem notuð var til að draga starfsmenn hótela hér og þar umborgina til að greiða atkvæði með því að fara í verkfall. Það ríkti árshátíðarstemningí herbúðum Eflingar og Sósíalistaflokksins, svo einkennilegt sem það hljómar.Þau vissu að ferðaþjónustan var viðkvæm á þessum tímapunkti og í samræmi viðþað hvernig hrottar haga sér lá því beinast við að ráðast að henni.
Stuttu síðar varð Wow air gjaldþrota (sem hafði þó ekkertmeð verkalýðsbaráttuna eða kjaramál að gera) og tónninn breyttist. Öllum máttiverða ljóst að ekki yrði lengra komist með þessa baráttu. Meira að segjaEflingarforystan, sem seint verður kennd við nokkra skynsemi, áttaði sig á því.
Þá stigu Samtök atvinnulífsins og ríkisstjórnin þaðfurðulega skref að koma til móts við kröfur þeirra sem höfðu með orðræðu sinni skaðaðatvinnu- og efnahagslífið í allan vetur. Þegar VR var við það að brotna og almenningurvar búinn að átta sig á því að Efling var ekki að starfa í þágu hins almenna launamannsmætti ríkisstjórnin á vettvang með 45 aðgerðir til stuðnings því sem menn viljakalla lífskjarasamning. Innan þeirra aðgerða má svo sem finna ágætis liði enþær eru að miklu leyti kostnaðarsamar.
Embættismenn fjármálaráðuneytisins hljóta nú að vinna hörðumhöndum að því að skrifa minnisblöð til stjórnmálamanna þess efnis að ekki verðihægt að lækka skatta á næstu misserum.
***
Að öllu óbreyttu munum við sjá töluvert um uppsagnir ogfrekari hagræðingu innan atvinnulífsins í haust þegar áhrif samningsins komafram. Lífskjarasamningurinn verður atvinnulífinu og ríkisvaldinu dýr en munekki bæta lífskjör nema að litlu leyti.
Það hefði frekar átt að leyfa verkalýðsforystunni að rekastá vegg hins raunverulega. Bæði Samtök atvinnulífsins og ríkisvaldið hefðu áttað halda þetta lengur út og standa í lappirnar. Þetta var - og er - ekki barabarátta um tæknilegar útfærslur á kjarasamningum, heldur barátta um hugmyndir,barátta um frjáls markaðshagkerfi, frjáls viðskipti o.s.frv. Halda menn að þaðfólk sem enn situr í verkalýðsfélögunum, með alla þá digru sjóði sem þar er aðfinna, sé búið að pakka saman í þeirri baráttu?
***
Það eru þó ekki minni verkefni sem bíða hins opinbera þóttenginn virðist ætla sér að taka á þeim. Hagstofan birti nýlega tölur um heildarlaunfullvinnandi launamanna fyrir árið 2018, sem voru að meðaltali 721 þúsund krónurá mánuði. Þegar horft er á dreifingu heildarlauna var algengast að mánaðarleg heildarlaunværu á bilinu 550 til 600 þúsund krónur (í framhjáhlaupi má nefna að félagsmennVR eru að miklu leyti með þessi laun og hærri – þannig að það hefði seinttekist að sannfæra þá um að fara í verkfall).
Það sem allir ættu aftur á móti að hafa áhyggjur af er að ámeðan heildarlaun á almennum vinnumarkaði voru að meðaltali 729 þúsund krónur ámánuði árið 2018 voru heildarlaun ríkisstarfsmanna 818 þúsund krónur aðmeðaltali. Meðallaun hjá ríkinu eru því tæplega 100 þúsund krónum hærri en í einkageiranum.
Þrátt fyrir að Sjálfstæðisflokkurinn hafi setið íríkisstjórn síðastliðin sex ár bendir ekkert til þess að ríkisstarfsmönnum munifækka. Hinn opinberi eftirlitsiðnaður mun halda áfram að blása út, ráðuneytinstækka, stjórnsýslan stækkar, það þarf verkefnastjóra í alls konar verkefni,mannauðsstjóra til að stýra þessu og þannig mætti áfram telja – vel og lengi.
Einkageirinn þarf bara að halda áfram að vera duglegur, menn þurfa að mæta vel í vinnuna og leggja mikið á sig, jafnvel taka aukavinnu þegar svo ber undir, því þessi laun ríkisstarfsmanna greiða sig ekki sjálf.
Höfundur er ritstjóri Þjóðmála.
Greinin birtist í sumarhefti Þjóðmála, 2. tbl. 2019. Hægt er að gerast áskrifandi að Þjóðmálum með því að senda tölvupóst á askrift@thjodmal.is eða skilaboð á facebook síðu ritsins. Ritið færst einnig í lausasölu í verslunum Pennans/Eymundsson.