Aukin framleiðni - forsenda betri lífskjara
Grundvöllur betri lífskjara er aukin framleiðni, þ.e. aukin verðmætasköpun á hverja vinnustund. Þetta efnahagslögmál á sér þó færri talsmenn en að bætt kjör megi einkum þakka baráttu hugsjónafólks. Verðmæti skapast í flóknu samspili margra þátta í atvinnulífinu og viðhorf sem ekki taka mið af því kunna að eiga stóran þátt í linnulitlum kjaraátökum hér á landi. Lífskjör hefðu líklega batnað enn meira síðustu áratugi með minni átökum um skiptingu gæðanna og jafnari og hófstilltari þróun launa, verðlags og vaxta.

Framleiðni og kaupmáttur haldast í hendur
Framleiðni vinnuafls og fjármagns skiptir langmestu málifyrir lífskjörin. Lífskjör geta aðeins batnað og velferð aukist ef framleiðni eykst.Framleiðni og hagvöxtur eru nátengd hugtök. Landsframleiðslan vex þegar störfumfjölgar og þá mælist hagvöxtur. Landsframleiðsla á hvern vinnandi mann, þ.e.framleiðni vinnuafls, vex þó ekki nema verðmæti aukist meira en störfumfjölgar, að gefnum óbreyttum vinnutíma. Verðmætaaukning á hverja vinnustundgetur átt sér fjölmargar skýringar, s.s. fjárfestingar sem stuðla að aukinniframleiðslu, tækniframfarir sem bæta nýtingu vinnuafls og fjármagns, betri framleiðsluaðferðir,aukna menntun, betri stjórnun, skipulagsbreytingar, nýsköpun, markaðssókn ogvísindaframfarir.
Náið samhengi er milli kaupmáttar launa og verðmætasköpunará hverja vinnustund. Til langframa batna kjör einungis ef framleiðni viðframleiðslu vöru og þjónustu eykst. Launahækkanir umfram framleiðnivöxt valdatil lengdar annaðhvort verðbólgu eða fækkun starfa, eða hvoru tveggja.
Mikil hækkun launa umfram framleiðni, t.d. vegna óábyrgrakjarasamninga eða launaskriðs af völdum ofþenslu í efnahagslífinu, rýrir því lífskjörþegar til lengri tíma er litið og ýtir undir sveiflur í efnahagslífinu.Sveiflukenndur kaupmáttur launa raskar áætlunum fólks og fyrirtækja ogefnahagssamdráttur í kjölfar mikilla þensluskeiða leiðir óhjákvæmilega tilatvinnuleysis. Jafn og traustur hagvöxtur er því ákjósanlegri en hraður ogótryggur vöxtur. Sígandi lukka er best í þessum efnum. Hagstjórn, þ.e. stjórnopinberra fjármála og peningamála og launastefna á vinnumarkaði, sem sneiðirhjá miklum hagsveiflum leggur grunn að meiri langtímahagvexti og betri lífskjörumen ella.
Viðspyrnan frá síðustu efnahagslægð
Á síðasta ári hóf Hagstofan birtingu talna um framleiðni vinnuafls eftir atvinnugreinum. Talnaröðin nær þó aðeins til áranna 2008-2017, en fyrirhugað er að birta tölur um lengra tímabil á næstu misserum. Þó að erfitt sé að draga marktækar ályktanir af svo stuttu tímabili, auk þess sem það hefst í djúpri efnahagslægð, er margt sem vekur athygli. Áhugavert er að skoða hvar viðspyrnan hefur verið mest í formi aukinnar framleiðni, eins og sést á súluritinu hér fyrir neðan.
Fyrst er að nefna að framleiðniaukning í öllu hagkerfinu áþessu tímabili var 1,3% á ári að jafnaði, sem er í takti við áætlað langtímameðaltalhennar á Íslandi, sem er að framleiðni vinnuafls hafi aukist um 1,5% að meðaltaliá ári undanfarna áratugi. Aukningin var langmest í atvinnugreininni upplýsingumog fjarskiptum, 5,1% á ári að jafnaði, en þar á eftir komu atvinnugreinar sembúa við mesta samkeppni, annaðhvort á alþjóðamarkaði eða keppa við innfluttavöru og þjónustu, en aukningin í þeim var 2,7-3,9% á ári að jafnaði. Engum vafaer undirorpið að mikil og ör framþróun í upplýsingatækni og fjarskiptum hefurstuðlað að mikilli framleiðniaukningu í öllum greinum atvinnulífsins.
Fiskveiðar, fiskeldi og landbúnaður eru flokkaðar saman, enþar vegur landbúnaður um fimmtung. Athygli vekur hversu lítil framleiðniaukningvar í þessum flokki, eða einungis 0,6% á ári að jafnaði. Það er bagalegt aðútgerð og fiskvinnsla flokkist ekki saman í sjávarútveg í framleiðnigögnum Hagstofunnar.Fiskvinnsla flokkast sem iðnaður, en talsverð fjárfesting var í greininni áþessu tímabili sem fækkaði störfum með aukinni sjálfvirkni og leiddi tilaukinnar framleiðni vinnuafls. Þá kemur ekki á óvart ör framleiðniþróun íatvinnugreininni upplýsingar og fjarskipti á þessu tímabili vegna stöðugra ogmikilla framfara í upplýsingatækni, né heldur framleiðniminnkun í fjármálakerfinu,því í upphafi tímabilsins var stærð bankanna í hámarki og þeir skruppu síðansaman í bankahruninu haustið 2008.
Þróunin síðustu tvo áratugi áætluð
Gagnlegt væri fyrir upplýsta umræðu um kjara- ogvelferðarmál að framleiðnitölur næðu yfir lengra tímabil. Þó má gera grófa áætlunum framleiðniþróun eftir atvinnugreinum á árabilinu 1997-2007 á grundvelli talnaHagstofunnar um vinnsluvirði skv. framleiðsluuppgjöri og áætluðum fjölda vinnustundasamkvæmt vinnumarkaðsrannsókn stofunnar.
Niðurstaða þeirrar áætlunar sést á súluritinu hér að neðan, en þar kemur fram árleg framleiðniaukning fimm atvinnugreina og hagkerfisins í heild.
Framleiðniaukning vinnuafls í efnahagslífinu öllu, þ.m.t.hinu opinbera, var 2,8% á tímabilinu 1997-2017 samkvæmt þessum útreikningum ogvar þannig mun meiri á fyrri hluta tímabilsins en því síðara.
Framleiðniaukningin var mest í sjávarútvegi, 3,3% árlega aðjafnaði, sem skýrist fyrst og fremst af mjög mikilli fækkun vinnustunda, bæði ífiskvinnslu og útgerð. Framleiðniaukningin var einnig mikil í iðnaði, 3,0% árlegaað jafnaði, sem skýrist að hluta af álveri Fjarðaáls sem hóf rekstur árið 2007.Framleiðniaukningin var álíka mikil í öðrum samkeppnisgreinum atvinnulífsins oghagkerfisins í heild, eða á bilinu 2,0-2,6%.
Samspil kaupmáttar og framleiðni
Það er áhugavert að bera saman þróun framleiðni vinnuafls og kaupmáttar launa. Hagstofan hefur birt vísitölur launa í atvinnugreinunum sem hér er fjallað um, þ.e. framleiðslu, byggingarstarfsemi, verslun og flutningum, fyrir tímabilið 2005-2018.
Á súluritinu hér að ofan er sjávarútvegi bætt við oglaunaþróun þar áætluð út frá þróun meðallauna fiskvinnslufólks, en ekki liggjafyrir opinberar tölur um launaþróun sjómanna. Í meðfylgjandi samanburði hefur launaþróuná almennum vinnumarkaði í heild verið skeytt framan við talnaraðir atvinnugreinannaá tímabilinu 1997-2005 og hagkerfisins í heild.
Á þessum tveimur áratugum, 1997-2017, óx kaupmáttur launa ogframleiðni vinnuafls álíka mikið í efnahagslífinu í heild, eða um 2,4-2,8%árlega að jafnaði. Það felur í sér að framleiðni vinnuafls og kaupmáttur launavar 60-70% hærri árið 2017 en tveimur áratugum fyrr. Framangreindur samanburðursýnir að kaupmáttur launa og framleiðni vinnuafls haldast í hendur til langstíma, með tilteknum frávikum sem eiga sér yfirleitt einfaldar skýringar.
Hófsemd stuðlar að meiri velferð
Kaupmáttur launa jókst meira á Íslandi en annars staðar áNorðurlöndum á árunum 1997-2017. Kaupmáttur jókst um 2,4% árlega að jafnaði áÍslandi, 2,1% í Noregi, 1,7% í Svíþjóð og 1,1% í Danmörku. Miklu munar umhverja prósentu þegar litið er yfir langt tímabil. Þannig varkaupmáttaraukningin í heild 61% á Íslandi, 50% í Noregi, 39% í Svíþjóð og 23% íDanmörku á þessu tímabili. Þetta segir þó ekki alla söguna.
Skuggahlið batnandi lífskjara á Íslandi á þessu tímabili varmeiri verðbólga, hærri vextir og meiri sveiflur í efnahagslífi en í samanburðarlöndunum.Samanburður við Norðurlandaríkin þrjú sýnir að launahækkanir á Íslandi voru aðjafnaði tvöfalt til þrefalt meiri, verðbólga tvöfalt til fjórfalt meiri og stýrivextireinnig tvöfalt til fjórfalt hærri.
Mikil verðbólga leikur þá verst sem við lökust kjör búa ogbera þunga framfærslubyrði. Háir vextir leggjast hlutfallslega þyngst á ungt fólksem er að koma sér upp húsnæði og leigjendur, en gera má ráð fyrir að í báðum hópunumsé hátt hlutfall lágtekjufólks.
Enginn vafi leikur á því að velferð landsmanna hefði aukistenn meira ef kaupmáttaraukning launa hefði átt sér stað við lægri verðbólgu ogvexti. Í Noregi var til að mynda næstum jafn mikil kaupmáttaraukning og áÍslandi á þessu tímabili en verðbólgan var rúmlega helmingi minni. Svíar náðusínum ágæta árangri með tæplega 3% launahækkunum og 1% verðbólgu árlega aðjafnaði.
Íslendingar mættu gjarnan læra af eigin reynslu og nágrannaþjóðanna. Haft er eftir Otto von Bismarck að kjánar segist læra af eigin reynslu en hann kjósi að læra af reynslu annarra. Lærdómurinn er einfaldlega sá að stilla launahækkunum í hóf svo þær séu í samræmi við verðmætasköpun á hverjum tíma og leggja áherslu á efnahagsstjórn sem jafnar efnahagssveiflur eins og kostur er.
Mest kaupmáttaraukning á Íslandi meðal OECD-ríkja1997-2017
Kaupmáttur launatekna jókst meira á Íslandi en í öðrum aðildarríkjum OECD á tímabilinu 1997-2017. Mælikvarði OECD kallast Compensation per employee in the total economy, sem þýða má sem launatekjur á hvern starfsmann í hagkerfinu. Þessi hagfellda niðurstaða fyrir íslenskt launafólk átti sér stað þrátt fyrir bankahrunið á miðju tímabilinu. Jafnframt styttist vinnutími Íslendinga verulega á þessum tveimur áratugum þar sem meðalvinnuvikan styttist um 3,5 stundir, eða 8%. Á móti jókst hlutur launa í verðmætasköpuninni úr 57% í 63% og er orðinn einna hæstur meðal OECD-ríkjanna. Samandregið sýna þessar tölur magnaða frammistöðu íslensks efnahagslífs og mikinn viðnámsþrótt þegar á móti hefur blásið.
Lífskjarasamningurinn, framleiðniaukning og sveiflujöfnun
Í Lífskjarasamningnum 2019 eru launahækkanir tengdar viðframleiðniaukningu og jafnframt er í honum viðleitni til jöfnunar kjarasveiflna.Samkvæmt ákvæði samningsins um hagvaxtarauka munu launaliðir samningsins hækkaá samningstímanum ef framleiðni (skilgreind sem hagvöxtur á hvern íbúa) vexmeira en 1%. Þá munu kauptaxtar hækka ef launaskrið á markaði verður umframtiltekin mörk samkvæmt ákvæði um kauptaxtaauka. Þannig er ætlunin að koma í vegfyrir spennu við gerð næstu kjarasamninga ef kauptaxtar dragast aftur úralmennri launaþróun vegna launaskriðs. Þessi ákvæði ættu að öðru óbreyttu aðstuðla að auknum stöðugleika, lægri vöxtum og betri lífskjörum. Það er tilmikils að vinna að vel takist til.
Höfundur er aðstoðarframkvæmdastjóri Samtakaatvinnulífsins.
Greinin birtist í sumarhefti Þjóðmála, 2. tbl. 2019. Hægt er að gerast áskrifandi að Þjóðmálum með því að senda tölvupóst á askrift@thjodmal.is eða skilaboð á facebook síðu ritsins. Ritið færst einnig í lausasölu í verslunum Pennans/Eymundsson.