Landnámshaninn gól að morgni

WOW - ris og fall flugfélags, er skemmtileg bók aflestrar og í henni er margs konar fróðleikur. Fyrirsögnin vísar til mikillar hátíðar í tilefni af 50 ára afmæli stofnanda WOW, Skúla Mogensen, sem fram fór í Hvammsvík. Sú frásögn af veitingum og skemmtanahaldi er brosleg þar sem títtnefndur landsnámshani lék stórt hlutverk. Afdrifum hans í morgunsárið verður ekki gerð frekari grein fyrir á þessum vettvangi.

WOW - ris og fall flugfélags
Höfundur: Stefán Einar Stefánsson
Útgefandi: Vaka Helgafell
Reykjavík, 2019.
367 bls.

Höfundurinn tekst á við verðugt verkefni, að skrifasamtímabók um mikilvæga atburði sem snerta marga. Bókin ætti að vera hvatningöðrum blaðamönnum til skrifta um stór mál og þá má ekki gleyma velvild vinnuveitendablaðamanna við að gera þeim það kleift að skrifa svona bók. Hún er góð heimildum mikil umbrot og viðskiptahugmynd sem varð að veruleika en brotlenti.

Frá útkomu bókarinnar hafa síðan verið skrifaðir nýir kaflarnánast vikulega og sér ekki fyrir endann á þeim. Stofnandinn boðaði reyndar ákynningu að hann sæi fyrir sér WOW 2.0 og í það stefnir jafnvel þegar þetta erritað, þó ekki með aðkomu Skúla svo vitað sé. Við blasir að bókin hefði aðeinhverju leyti orðið öðruvísi hefði stofnandinn gefið færi á samtölum viðskrif hennar, sem hann gerði ekki. Eftir útkomu bókarinnar skrifaði hann færsluá Facebook sem átti að draga úr gildi hennar en gerði ekki. Einnig hamlaði þaðhöfundi að aðgengi að fjárhagslegum upplýsingum um félagið var takmarkað enda umóskráð félag að ræða. Að öðru jöfnu hefðu margs konar upplýsingar umraunverulega stöðu félagsins orðið skýrari fyrr með dreifðu eignarhaldi. Það ervafalítið að þessi óvissa um raunverulega stöðu félagsins hefur frekar lengt ílíftíma þess.

Það er einkum þrennt sem mig langar til að staldra við: Ífyrsta lagi áhugaverðar persónur sem koma fram í bókinni og eru hluti af atburðarásinni.Í annan stað nefni ég atriði sem bókin fjallar ekki um og hefði hugsanlega máttgefa betri gaum. Og að lokum nokkur orð um framtíðarsýn í flugrekstri í ljósiþeirra miklu breytinga sem orðnar eru í þeim heimi.

Persónur og leikendur

Tíminn líður hratt og í bókinni er haldið til haga tímataliallt frá því að tilkynnt var um stofnun WOW air 2011 og opnað fyrir bókanir hjáfélaginu. Gott er að rifja upp að WOW keypti Iceland Express út af markaðnum 2012og fékk nýtt flugrekstrarleyfi 2013. Farið er yfir miklar skylmingar í kringumstofnun WOW og viðskilnað Matthíasar Imsland við Iceland Express, þar sem hanngegndi stöðu forstjóra á meðan Pálmi Haraldsson var þar aðaleigandi. Matthíashætti snögglega sem forstjóri Iceland Express og gekk til liðs við SkúlaMogensen um það leyti sem hann var að undirbúa stofnun flugfélags. Birgir Jónsson,nýskipaður forstjóri Íslandspósts, kemur tvívegis við sögu Iceland Express. Fyrststarfaði hann sem forstjóri félagsins á árunum 2004 til 2006 og til hans varsvo leitað aftur þegar Matthías hætti snögglega í september 2011. En í þettasinn varð dvölin stutt því Birgir hætti 10 dögum síðar og bar við ágreiningivið eigendur. Þá steig fram annar maður, Skarphéðinn Berg Steinarsson, núverandiferðamálastjóri. Hann sat í stjórn Iceland Express og tók við forstjórakeflinu þegarBirgir hrökk úr skaftinu. Baldur Oddur Baldursson, Davíð Másson og Páll Borgeru tilgreindir sem lykilmenn í upphafi hjá Skúla, nöfn sem ekki heyrast oft.Af öðrum má nefna Þórólf Árnason, fráfarandi forstjóra Samgöngustofu, sem fermeð umsjón flugmála, þ.m.t. flugrekstrarleyfin.

Þá kemur að þætti Steve Házy, stofnanda flugvélaleigunnarAir Lease Corporation, en hann er sannarlega örlagavaldur í sögu WOW air. Fráfyrsta fundi þeirra Skúla er sagt á skemmtilegan máta í bókinni þegar Házy flýgurtil Íslands 2015 og nánast tilkynnir að hann vilji standa að uppbyggingu WOWair með því að leigja félaginu flugvélar. Samband þeirra Skúla er mikið á næstuárum en svo kárnar gamanið í lokin því það er einmitt hin kyrrsetta flugvél WOWá Keflavíkurflugvelli sem var í eigu Air Lease Corporation. Nefndur er til söguBen Baldanza, sem áður var forstjóri lággjaldaflugfélagins Spirit Airlines. Baldanzahefur afskipti af WOW air í ársbyrjun 2016 og eitthvað er málum blandið aðfrumkvæði hvers. Bókin segir að Airbus hafi haft milligöngu um innkomu hans ístjórn félagsins en því hefur Skúli mótmælt. Ben hefur tjáð sig opinberlega um reynslunaaf því að sitja í stjórn félagsins frá því snemma árs 2016 og þar til hannsagði sig úr stjórninni í ágúst 2018. Hann birti grein undir fyrirsögninni:Five reasons WOW Airlines failed and two reasons it didn‘t. Tvennt stendur uppúr sem meginástæður að mati Baldanza; skortur á kostnaðaraðhaldi og ákvörðuninum að ráðast í rekstur á breiðþotum. Sú ákvörðun sérstaklega hafi jarðað félagið.

Undir það síðasta kemur síðan Bill Franke, eigandi IndigoPartners, mikið við sögu. Sá kann sannarlega að reka lágfargjaldafélög, á hlutí þeim mörgum, m.a. Wizz Air sem flýgur til Íslands. Þrátt fyrir miklar vonirog langan aðdraganda hrökk Indigo frá borði í ársbyrjun 2019 þegar dauðastríðinuvar að ljúka. Áhugaverðar upplýsingar koma fram um aðkomu Icelandair og þáerindisleysu þrátt fyrir nokkrar tilraunir við að koma WOW til bjargar.

Hvað kemur ekki fram

Það vakti talsverða athygli nánast allan þann tíma sem WOWstarfaði hversu örar mannabreytingar voru í félaginu, ekki síst í lykilstöðum. Áhugaverthefði verið að fjalla um þær, ekki síst vel auglýsta komu Ragnhildar Geirsdóttursem aðstoðarforstjóra og hljóðlega brottför hennar eftir frekar skamman tíma ístarfi. Henni var ætlað að koma skikki á versnandi rekstur.

WOW air seldi losunarheimildir vegna útblásturs skömmu áðuren félagið varð gjaldþrota og mun félagið hafa fengið um 400 milljónir krónafyrir heimildirnar, en greiðsluna átti að nota til að standa straum af launagreiðslummarsmánaðar 2019. Greiðslan barst þó ekki fyrr en nokkrum dögum eftir aðfélagið var gefið upp til gjaldþrotaskipta og rann því andvirðilosunarheimildanna til þrotabúsins. Umhverfisstofnun lagði síðanstjórnvaldssekt á þrotabú flugfélagsins WOW air að upphæð 3,8 milljarðar krónavegna vanrækslu flugrekanda á að standa skil á losunarheimildum fyrir árið 2018.Um er að ræða langhæstu sekt sem Umhverfisstofnun hefur lagt á. Margar spurningarvakna í tengslum við þennan gjörning, sem mun eins og margir aðrir sjálfsagt ratafyrir dómstóla.

Hið dæmalausa samkomulag WOW air og Isavia um að flugfélagiðtryggði skuldir sínar við Isavia með haldsrétti í einhverri af vélum félagsinsóháð eignarhaldi þeirrar vélar er með ólíkindum. Það var sem sé slembilukka semréði því hvaða vél var á vellinum þegar blaðran sprakk og hún var kyrrsett.Einmitt ein af vélunum sem félag Steve Házy átti. Þvælan í kringum málatilbúnaðinnhérlendis nær engri átt en fyrr en síðar greiðist úr og nú þegar þetta erskrifað liggur fyrir úrskurður um að eigandi megi fljúga vélinni á brott. Fyrirþað fyrsta stenst það varla að menn setji að veði hlut sem þeir eiga ekki. Þaðgetur varla virkað þannig að leigusali á vél, í góðri trú, fái í hausinnheildarskuld WOW air við Isavia eins og flugrekstraraðilinn heldur fram ogvísar í lög.

Aðkoma Isavia að skuldauppsöfnun WOW air við sig er líka sérmál sem hefði mátt fara betur ofan í við bókarskrifin. Fyrir utan hið dæmalausasamkomulag um kyrrsetningarheimildir vekur athygli að í ársreikningi Isaviafyrir árið 2018 er með engu móti gerð grein fyrir áhættunni sem felst í stórrikröfu á hendur WOW air. Stærð kröfunnar er slík í samhengi viðheildarútistandandi kröfur að nánast óhugsandi er að stjórnin hafi ekki veriðvel upplýst og jafnvel eigandinn. Spurningar vakna um ábyrgð stjórnenda ogstjórnarmanna sem hljóta að koma til skoðunar. Það á augljóslega við um WOW airen einnig stjórnendur Isavia, í tengslum við hið dæmalausa samkomulag. Standistsamkomulagið á milli WOW air og Isavia mun það hafa ugglaust hafa neikvæð áhriffyrir flugrekendur sem leið eiga um Keflavíkurflugvöll, þurfi þeir að fástaðfesta vitneskju fyrir fram um skuldastöðu flugrekstraraðilans við Isavia. Íbókina vantar að mínu mati betri greiningu á lokatilraunum eigandans við að aflafélaginu fjár með vel auglýstu skuldabréfaútboði og tengdum aðgerðum. Það má þóskilja frásögnina þannig að ýmsar skuldbreytingar hafi nánast veriðsýndargjörningar sem skiluðu félaginu ekki reiðufé en bættu tímabundiðhlutföll. Þeir sem þó greiddu inn fé munu sjálfsagt telja að ekki hafi alltverið uppi á borðum sem hefði átt að vera.

Gjaldþrot af þessari stærðargráðu veldur gríðarlegu tjóni ogsnertir marga. Viðskiptavini, starfsmenn og þjónustuaðila sem störfuðu fyrirfélagið, einnig samkeppnisaðila og að sjálfsögðu lánardrottna. Þótt félagið hafiðlátið gott af sér leiða á starfstímanum dreifist ábatinn af því ekki endilega áþá sem urðu fyrir miklu tjóni. Það kemur því ekki á óvart að ríkisstjórnin hafiskoðað alvarlega að stíga inn í og bjarga WOW. Hvort það hefði verið skynsamlegráðstöfun er erfitt að segja til um og miðað við lýsingar í bókinni verður ekkiséð að alvöru greining hafi verið gerð á kostum og göllum slíks inngrips.

 Hvað gerist næst?

Sem betur fer hefur vaxandi ferðamannastraumur til Íslandsvakið áhuga flugfélaga víðs vegar að og því hafa aldrei verið fleiri kostir íboði fyrir ferðamenn en núna til að komast til og frá landinu. WOW air ýttiundir þá þróun og kynnti til leiks innlent lágfargjaldafélag en hélt sig ekkivið formúluna sem gefist hefur vel. Hingað fljúga þó mörg félög sem eru byggð áþeim grunni s.s. Easy Jet, Wizz Air, Norwegian og Transavia.

Fram hefur komið á síðustu dögum að til standi að endurvekjaWOW air, með dýrkeyptan lærdóm mistaka í farteskinu og skýrari sýn á hvernigfélagið verður byggt upp. Ljóst er að tími lággjaldafélaga er kominn til aðvera enda hafa mörg þeirra sýnt fram á mjög traustan rekstur þótt fargjöldinséu lág. Ryanair fer þar fremst en rekstur Easy Jet og Wizz Air gengur vel, svodæmi séu tekin. Í flugrekstrinum eru framkvæmdar samanburðarrannsóknir á milli flugfélagasem leiða fram innbyrðis stöðu þeirra gagnvart öðrum félögum og gefa til kynnagetu þeirra til að standast samkeppni í náinni framtíð. CASK (Cost pr.available seat kilometers) er viðurkennd mælieining í þessum tilgangi, enda erþað staðreynd að félögin hafa betri tækifæri til að ráða við kostnað en tekjur.Gömlu félögin svokölluðu, sem Icelandair fellur undir, eiga í erfiðleikum meðað mæta breyttum tímum og lækka kostnaðinn við reksturinn svo að félagið verði arðbærtog eftirsóknarvert fyrir fjárfesta. Í sambærilegri stöðu eru félög eins og Air France,KLM og Lufthansa.

Í þessu samhengi er oft rætt um stutta leggi, millileggi oglanga leggi (e. short-mediumlong haul). Ef við horfum bara á okkur Íslendingaerum við meira og minna að fljúga stutta leggi, 3-5 klukkustundir. Það semhefur breyst í neyslumynstrinu er að farþegar vilja ferðast á milli tveggjastaða, A og B, með sem minnstum kostnaði, þar sem þjónustan skiptir ekki öllu.Þetta er viðskiptalíkan Ryanair og Easy Jet í hnotskurn. Mun Icelandair til að myndageta lagað sig að þessum veruleika?

Að síðustu veldur vaxandi framboð af flugi frá Íslandi þvíað farþegar þurfa að skoða alla kosti og nota leitarvélar á netinu til að finnahvaða kostur er bestur fyrir næsta stutta legg, sem er meginþorri þess sem við fljúgum.Við erum hvert og eitt orðið eigin ferðaskrifstofur ef svo smá segja og Dohop. com,Kiwi.com, Kayak.com og fleiri leitarvélar leiða mann áfram við valið og seljajafnframt farmiða og aðra þjónustu. Og samkeppnin svíkur sjaldan. Það er ólíkusaman að jafna að fljúga til London eða til dæmis Óslóar eða Amsterdam. Viðleit blasir við að Easy Jet er fyrsti kosturinn án mikillar umhugsunar til að fljúgatil London og þá með áframflugi, ef vill til Evrópu eða annað. Þar semsamkeppnin er minni er valið ekki eins augljóst og inn í spilar hvað menn gefamikið fyrir beint flug.

Að lokum, varðandi bókina og þá þætti sem leiða af henni, máfullyrða að það eru spennandi og krefjandi tímar fram undan í flugrekstri oghagur farþeganna er betri en nokkru sinni fyrr. WOW air hafði áhrif á verð hérlendisog sem betur fer mun sú þróun halda áfram óháð því hvort WOW 2.0 verður aðveruleika.

Höfundur er hagfræðingur, MBA að mennt og fjármálastjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins.

---

Bókarýnin birtist í sumarhefti Þjóðmála, 2. tbl. 2019. Hægt er að gerast áskrifandi að Þjóðmálum með því að senda tölvupóst á askrift@thjodmal.is eða skilaboð á facebook síðu ritsins. Ritið færst einnig í lausasölu í verslunum Pennans/Eymundsson.

Previous
Previous

Maður framfara og árangurs

Next
Next

Íslenska menntakerfið verði framúrskarandi