Lilja um fjölmiðlafrumvarpið: Ég ætla mér að koma þessu í gegn

Lilja D. Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, kynntisíðastliðinn vetur drög að frumvarpi sem felur í sér opinberan stuðning viðeinkarekna fjölmiðla. Frumvarpið er enn í vinnslu enda er ágreiningur um þaðmeðal stjórnarliða – og þá sérstaklega meðal þingmanna Sjálfstæðisflokksins.

Um þetta er meðal annars fjallað í ítarlegu viðtali við Liljuí nýjasta hefti Þjóðmála og verður sá kafli birtur hér. Rétt er að taka fram aðforveri Lilju í starfi, Illugi Gunnarsson, skipaði nefnd sem ætlað var að skilatillögum um bætt rekstrarumhverfi fjölmiðla í lok árs 2016 og sú nefnd skilaði tillögumsínum í lok janúar 2018. Þá hafði Lilja tekið við embætti ráðherra.

„Í þessu ferli hefur verið horft til Norðurlandanna ogsérstaklega til Danmerkur. Þar er stuðningur við einkarekna fjölmiðla sem ersambærilegur þeim stuðningi sem ég hef verið að boða,“ segir Lilja.

„Við sjáum líka að þar er danska ríkisútvarpið ekki áauglýsingamarkaði. Ég hef stutt þá stefnu og lagt til að Ríkisútvarpið verðitekið af auglýsingamarkaði en það hefur ekki verið pólitískur stuðningur viðþað fram til þessa. Ég ætla hins vegar að kanna það til hlítar í haust. Það erþó ljóst að við förum ekki þá leið nema gætt verði að tekjum Ríkisútvarpsins ogmismunurinn brúaður.“

Ríkisútvarpið fær rúma fjóra milljarða árlega meðþvinguðu útvarpsgjaldi og aðra tvo í auglýsingatekjur. Er ekki hægt að rekaöflugt fjölmiðlafyrirtæki fyrir fjóra milljarða á ári?

„Ég mun ekki styðja þá stefnu að Ríkisútvarpið veikist, farisvo að ákveðið verði að það af auglýsingamarkaði. Ríkisútvarpið hefur stutt velvið íslenska menningu og tungu. Traust til RÚV er mikið og hlustun á Rás 1hefur vaxið,“ segir Lilja.

„Eins og ég hef áður sagt erum við stödd í upplýsinga-,samskipta- og tæknibyltingu. Samhliða því erum við að horfa upp á allt aðratekjuafkomu fjölmiðla en áður var. Frakkar hafa til dæmis ákveðið aðskattleggja Facebook, Google og fleiri aðila sem taka til sín auglýsingatekjur.Tekjuafkoma fjölmiðla, ekki bara á Íslandi heldur úti um allan heim, ergjörbreytt samhliða því hvernig við neytum þeirra. Efnið er sniðið að okkur sjálfumog áhugamálum okkar og það heyrir til undantekninga að neyta fjölmiðlaefnis í línulegridagskrá. Auglýsingar taka mið af þessu, við þurfum ekki annað en að opna símannokkar til að sjá íslenskar auglýsingar á Google. Það skiptir einnig máli íþessu samhengi að við viljum standa vörð um íslenskuna og RÚV er mikilvæguraðili hvað það varðar.“

En Stöð 2, Hringbraut, Síminn og aðrir miðlar framleiðaekki minna af íslensku efni. Er þá ástæða til að halda sérstaklega upp áríkisfjölmiðilinn?

„Sumir þessara aðila sem þú nefnir selja áskriftir og allirhafa, og munu áfram hafa, aðgang að auglýsingamarkaði. Við sjáum að auglýsendureru helst að leitast eftir því að auglýsa í kringum íslenskt efni enda er það gjarnanvinsælt,“ segir Lilja.

Hún ítrekar að á Norðurlöndum séu einkareknir fjölmiðlarstyrktir með fjölbreyttum hætti og að hægt sé að sækja mörg fordæmi þaðan.Helsta málið sé að koma sér saman um hvernig best sé að standa að því.

„Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið duglegur að gagnrýnafrumvarpið, en það tekur þó mið af því stuðningskerfi sem fjármála- og efnahagsráðherrahefur verið að innleiða á síðustu árum. Það er dálítil þversögn í þessu,“ segirLilja og brosir.

„Það var ekki vilji til þess að fara í aðgerðir á borð viðþað að afnema virðisaukaskatt, því sú aðgerð nær ekki yfir fríblöð og annað slíktog gagnast því ekki öllum. Við vitum þó að þær aðgerðir sem hafa verið boðaðarog það frumvarp sem liggur fyrir skiptir héraðsmiðlana mjög miklu máli. Þeireru ekki minna mikilvægir en miðlar á höfuðborgarsvæðinu. Mikilvægast er þó aðÍslendingar hafi aðgang að íslensku efni, íslenskri umfjöllun um málefnilíðandi stundar og svo framvegis, og þess vegna er mikilvægt að styðja einkareknamiðla. Þá er um leið mikilvægt að eignarhald á fjölmiðlum sé gagnsætt. Þannigað það er að mörgu að huga í þessu, en ég ætla mér að koma þessu í gegn.“

Í hvaða mynd?

„Sjálfstæðisflokkurinn og VG hafa einnig komið að þessufrumvarpi. Þegar ég mæli fyrir frumvarpinu á þingi geri ég ráð fyrir því aðSjálfstæðisflokkurinn standi með sínum eigin tillögum en annars á þetta eftirað koma í ljós,“ segir Lilja.

Telur þú að Sjálfstæðisflokkurinn hafi vilja til þess að takaRÚV af auglýsingamarkaði?

„Sjálfstæðisflokkurinn hefur stýrt þessu ráðuneyti lengi og ekki lagt upp í þá vegferð fram til þessa. Ég held að það myndi hjálpa til í stóra samhenginu og við verðum að taka mið af þeirri upplýsinga- og samskiptabyltingu sem við erum stödd í,“ segir Lilja.

Nánar er rætt við Lilju í nýjasta hefti Þjóðmála. Þar er meðal annars fjallað um ríkisstjórnarsamstarfið, þann árangur sem náðst hefur í efnahagsmálum á undanförnum árum, evruna og stöðu Íslands í Evrópusamstarfinu og fleira.

Viðtalið birtist í sumarhefti Þjóðmála, 2. tbl. 2019. Hægt er að gerast áskrifandi að Þjóðmálum með því að senda tölvupóst á askrift@thjodmal.is eða skilaboð á facebook síðu ritsins. Ritið færst einnig í lausasölu í verslunum Pennans/Eymundsson.

Previous
Previous

Svört saga gjaldeyriseftirlitsins

Next
Next

Maður framfara og árangurs